Apple kærir íslenska ríkið 29. nóvember 2004 00:01
Stjórnendur Apple-tölvuverslunarinnar ætla að kæra íslenska ríkið fyrir tollaflokkun á Ipod margmiðlunarlófatölvunni. Tollstjórinn hefur skilgreint tækið sem upptökutæki sem hefur þær afleiðingar að fáir kaupa það hér á landi. Ipod er nýjasta æðið. Talið er að um 6000 manns eigi slíkt tæki hér á landi en fæst þeirra eru keypt á Íslandi. Ástæðan: Þau eru of dýr. Íslenskufræðingar vilja helst kalla þetta tæki lófaspilara en það nær kannski ekki alveg yfir það sem ipod gerir. Hann spilar tónlist, getur haldið utan um leiki, dagbók, símanúmer og síðasta útgáfan af honum geymir myndir í miklu magni. En það er flokkun hans hjá tollstjóra sem afspilunar- og upptökutæki sem veldur því að hann ber mikinn toll og er dýrari hér á landi en annars staðar. Söluaðilar hans fullyrða að munurinn sé fimmtíu prósent á verði. Bjarni Ákason, stjórnarformaður Apple á Íslandi, segir að gengið hafi verið á milli manna í stjórnsýslunni og að þeir séu allir sammála Apple, en það vilji enginn gera neitt í málinu. Það sem þá sé hægt að gera er að fara dómstólaleiðina til að málið verði leiðrétt. Bjarni segir að þetta rokseljist út um allan heim - nema á Íslandi. Þær upplýsingar fengust hjá tollstjóra í dag að nýjustu afbrigði Ipod, þ.e.a.s. sá sem geymir myndir, yrði að skoðast alveg sérstaklega. Til greina kæmi að endurskoða tollaflokkunina.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira