Fleiri
Samvinna um stóriðju Norðlendingar þurfa að vinna saman í stóriðjumálinu. 19.11.2004 00:01 Skuldir heimila að hættumörkum Fólk virðist í vaxandi mæli skuldsetja sig meira heldur en greiðslugetan leyfir, segir Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður vegna vaxandi fjölda árangurslausra fjárnáma. Hún vill koma á greiðsluaðlögun fyrir þennan hóp. 19.11.2004 00:01 Varar við uppsöfnun mengunarefna Send var út viðvörun vegna uppsöfnunar mengunarefna í Reykjavík í gær.</font /> 19.11.2004 00:01 Bensínlækkun Skeljungur lækkaði í gær bensínlítrann um eina krónu. </font /> 19.11.2004 00:01 Hafsteinn hættir hjá Gæslunni Hafsteinn Hafsteinsson lætur af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslu Íslands 1. janúar næstkomandi. Fallist hefur verið á ósk hans um tilflutning í starfi og mun hann hefja störf sem skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu. Hafsteinn mun á þeim vettvangi meðal annars starfa að málefnum sem tengjast hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. 19.11.2004 00:01 ESB kemur sér upp her Evrópusambandið mun hafa fjórar viðbragðssveitir hermanna tilbúnar á næsta ári til þess að senda hvert sem er í heiminum, ef þörf krefur. Átta sveitir til viðbótar eiga að vera til staðar árið 2007. Um fimmtán hundruð hermenn verða í hverri sveit. 19.11.2004 00:01 Árásum verður að linna Fyrrverandi yfirmaður í öryggissveitum Palestínumanna, Mohammad Dahlan, sagði í dag að harðlínumenn verði að hætta árásum sínum á Ísrael til þess að skapa ró í kringum kosningarnar um eftirmann Jassers Arafats þann 9. janúar næstkomandi. 19.11.2004 00:01 Ekki sama vöfflur og vöfflur Landsmenn hafa ólíkan hátt á að búa til vöfflur. Óvísindaleg athugun leiðir í ljós að um tuttugu mismunandi vöffluuppskriftir eru á kreiki en vitaskuld allar keimlíkar. 19.11.2004 00:01 Tilhlökkun í hópnum Karlakór Reykjavíkur er á leið til Englands til jólatónleikahalds. Icelandair efnir til sérstakrar ferðar á tónleika kórsins í einni af fjölmörgum dómkirkjum Lundúnaborgar. 19.11.2004 00:01 Kúluskítur og snjóhús Nýsköpunarverðlaun í ferðaþjónustu voru veitt í fyrsta sinn í gær. Verðlaunin fóru til Mývatns og sérstök viðurkenning til Seyðisfjarðar. 19.11.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Safnað fyrir fjölskyldu Feribu Ákveðið hefur verið að efna til samskota handa fjölskyldu litlu stúlkunnar Feribu, sem lést þegar ráðist var á íslensku friðargæsluliðana í Kabúl 23. október. Söfnunin fer fram í Hvítasunnukirkjunni í Keflavík næstkomandi fimmtudagskvöld. Þá verður söngsamkoma haldin þar. 19.11.2004 00:01
Ungi fanginn vill á geðdeild Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á miðvikudaginn Andra Má Gunnarsson, 19 ára dreng, í eins árs fangelsisvist á Litla Hrauni. Dómurinn stimplaði Andra sem síbrotamann. Í viðtali við DV segist Andri eiga heima í heilbrigðiskerfinu en ekki fangelsi. 19.11.2004 00:01
Leikskólakennarar hjá sáttasemjara Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman hjá Ríkissáttasemjara nú klukkan níu og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok. 19.11.2004 00:01
Kosningarnar í uppnámi? Herskár íslamskur hópur ógnar væntanlegum frambjóðendum og kjósendum í fyrirhuguðum kosningum í Írak í janúar. Hópurinn hótar því að hver sá múslimi sem bjóði sig fram í kosningum verði refsað í nafni guðs. 19.11.2004 00:01
Fangelsi fyrir umferðalagabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tuttugu og þriggja ára mann í þriggja mánaða fangelsi í gær fyrir að hafa tíu sinnum á fimm mánuðum gerst brotlegur við umferðarlög. Hann var réttindalaus í öllum tilvikum og nokkrum sinnum ók hann líka of hratt. 19.11.2004 00:01
Norðurlandaráð lagt niður? Finnski þingmaðurinn Tarja Cronberg lagði til á finnska þinginu í gær að Norðurlandaráð verði lagt niður en um þessar mundir er hann formaður velferðarnefndar ráðsins. Annar þingmaður tók undir þetta og segir að stjórnsýsla ráðsins sé orðin allt of umfangsmikil. Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður er formaður ráðsins. 19.11.2004 00:01
Ópíumræktun í blóma Ræktun ópíumvalmúa blómstrar sem aldrei fyrr í Afganistan og hefur aukist um 64 prósent frá því í fyrra. Þetta segir í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Þar kemur jafnframt fram að ræktun ópíumvalmúa er vaxtarbroddurinn í afgönsku efnahagslífi. 19.11.2004 00:01
Jarðskjálfti norður af Flatey Jarðskjálfti upp á 3,2 á Richter varð norður af Flatey á Skjálfanda á fjórða tímanum í nótt. Enn sterkari skjálfti mældist á sömu slóðum í gær og annar álíka. Þeir eru líklegast hluti af skjálftahrinunni sem hófst austur af Grímsey fyrir nokkrum dögum.</font /> 19.11.2004 00:01
Banamein Arafats upplýst? Það ætti jafnvel að liggja fyrir í dag hvert banamein Jassers Arafats, fyrrverandi leiðtoga Palestínumanna, var. Sögusagnir hafa verið á kreiki um dánarorsök Arafats og menn hafa velt fyrir sér hvort eitrað hafi verið fyrir honum. Frændi leiðtogans er væntanlegur til Parísar í dag og munu frönsk yfirvöld láta honum í té sjúkraskýrslu Arafats. 19.11.2004 00:01
Bílþjófar fengu aðstoð lögreglu Athugull vegfarandi sem átti leið fram hjá Seyðishólum í Grímsnesi í nótt sá þar til tveggja manna, sem voru að bjástra við að skipta um dekk á bíl, en fórst það illa úr hendi. Hann lét lögregluna á Selfossi vita sem fór á vettvang og kom þá ýmislegt í ljós. 19.11.2004 00:01
Danskar stúlkur fara ránshendi Penar unglingsstúlkur, stolt foreldra sinna, uppáhald kennara sinna og sakleysið upmálað fara nú sem eldur í sinu um verslanir í Kaupmannahöfn og stela þar öllu steini léttara. Að sögn lögreglunnar er þetta alveg nýr hópur búðaþjófa sem starfsfólk verslana á erfitt með að átta sig á. 19.11.2004 00:01
Þjófur flúði vegna öskurs Það var ekki af ótta við þjófavarnakerfi eða að lögreglan væri rétt að koma sem þjófur lagði í ofboði á flótta af innbrotsstað í íbúðarhúsi í Grafarvogi í nótt, heldur skelfdist hann öskur sem húsfreyjan á bænum rak upp þegar hún varð hans var. Þá var hann kominn inn í forstofu og hafði kveikt þar ljós í rólegheitum þegar ósköpin dundu yfir. 19.11.2004 00:01
Týndi hlekkurinn fundinn? Fornleifafræðingar hafa fundið 13 milljón ára gamla beinagrind prímata sem talinn er síðasti sameiginlegi forfaðir bæði manna og mannapa. Mannapar, svo sem górillur og sjimpansar, eru taldir hafa skilið sig frá öðrum og minni öpum á þessum tíma og því er þetta hugsanlega hinn svokallaði „týndi hlekkur“. 19.11.2004 00:01
Vopnahlé í Súdan Stríðandi fylkingar í Súdan undirrituðu í morgun heit um að ná friðarsamningum fyrir árslok á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í Kenía. Talið er að yfir tvær milljónir Súdana hafi látið lífið vegna borgarastríðsins. 19.11.2004 00:01
Hótar látum ef upp kemst um svindl Frambjóðandi frjálslyndra í forsetakosningunum sem fram eiga að fara í Úkraínu á sunnudaginn hefur hótað að vera með læti ef grunur leikur á svindli í kosningunum. Frambjóðandinn, Viktor Yushchenko sem er fyrrverandi forsætisráðherra landsins, segir að hann muni ganga fylktu liði um götum borgarinnar ef upp kemst að maðkur sé í mysunni. 19.11.2004 00:01
Kaldasti nóvember í heila öld Óvenju kalt er á landinu miðað við árstíma, einkum á Suður- og Vesturlandi. Í Reykjavík hefur ekki orðið svona kalt svo snemma vetrar síðan 1981. Með 15 stiga frosti í nótt var metið jafnað og þarf að fara hundrað ár aftur í tímann til að finna meira frost í Reykjavík í nóvember. 19.11.2004 00:01
Funda aftur á miðvikudag Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman í húsakynnum Ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok. Fundurinn stóð í tvær klukkustundir og ætla samningamenn að hittast aftur á miðvikudag. 19.11.2004 00:01
Forvarnir góðar í Hafnarfirði Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar þakkar það hafnfirsku stórfjölskyldunni að tekist hefur að minnka umtalsvert vímuefnaneyslu og reykingar ungs fólks í bænum. Á hverju ári gerir Rannsókn og greining rannsókn á lífstíl ungs fólks. Helstu niðurstöður í ár eru þær að reykingar hjá unglingum í 10. bekk minnka umtalsvert. 19.11.2004 00:01
Andspyrnan brotin á bak aftur Talsmenn Bandaríkjahers segja að andspyrna í borginni Fallujah í Írak hafi nú verið brotin á bak aftur. Uppreisnarmenn láta þó enn til sín taka og hóta þeim ofbeldi sem taka þátt í boðuðum kosningum í janúar. 19.11.2004 00:01
Norðurlöndin í eina sæng Norðurlöndin ætla í sameiningu að kynna norrænan lífsstíl, fjölbreytt náttúrulíf og vistvæna orku á heimssýningunni EXPO 2005 sem haldin verður í Japan á næsta ári. Ákvörðun um sameiginlega þátttöku miðar að því að halda kostnaði í skefjum en hann er áætlaður um hálfur milljarður íslenskra króna í heild. 19.11.2004 00:01
Stórmeistarar skora á stjórnvöld Íslenskir stórmeistarar hafa sent stjórnvöldum áskorun um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að losa Bobby Fischer úr fangelsi í Japan. Fischer hefur setið í fangelsinu mánuðum saman meðan karpað er um hvort hann verði framseldur til Bandaríkjanna. 19.11.2004 00:01
Dánartíðnin minnki um helming Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með nýrri lyfjameðferð fyrir HIV-smituð börn sem rannsóknir sýna að geti dregið úr dánartíðni þeirra um helming. Meðferðin felst í því að gefa börnunum algengt sýklalyf sem kostar um tíu krónur á dag. Á hverjum degi látast u.þ.b. 1.300 börn af völdum alnæmisveirunnar í heiminum. 19.11.2004 00:01
Nýr forstjóri hjá Tæknivali Sigrún Guðjónsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Tæknivals frá og með deginum í dag. Sigrún var áður framkvæmdastjóri Innn hf. Hún er 33 ára, arkitekt frá Technische Hochschule Karlsruhe í Þýskalandi og upplýsingaarkitekt frá ETH í Sviss. 19.11.2004 00:01
Fölsuðum legókubbum fargað Finnskir tollverðir hafa malað yfir tíu tonn af fölsuðum legókubbum, mélinu smærra, og verður duftið síðan brennt. Eins og allir vita eru hinir einu og sönnu legókubbar framleiddir í Danmörku. Kubbarnir sem finnska tollgæslan lagði hald á voru hins vegar framleiddir í Kína og var verið að flytja þá til Rússlands til sölu þar. </font /></font /> 19.11.2004 00:01
Fordæma aðgerðaleysi ráðherra Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fagna auknum fjárframlögum til Samkeppnisstofnunar en fordæma aðgerðarleysi viðskiptaráðherra gagnvart bönkum og tryggingafélögum. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi hreyfingarinnar í gær. 19.11.2004 00:01
Afnám eignarskatts einstaklinga Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp sem felur í sér 4% lækkun tekjuskatts einstaklinga, afnám eignarskatts á einstaklinga og fyrirtæki og tæplega helmings hækkun barnabóta. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar komi til framkvæmda í áföngum á árunum 2005-2007. 19.11.2004 00:01
77 ára kona fær dauðadóm Hæstiréttur Japans hefur staðfest að sjötíu og sjö ára gömul kona skuli hengd fyrir morðið á eiginmanni sínum og kunningjakonu. Konan var dæmd til dauða fyrir að hafa árið 1987 fengið ættingja til liðs við sig til að drepa eiginmanninn, gegn því að þeir fengju hlut af þrjátíu milljón króna líftryggingu hans. 19.11.2004 00:01
Ósló dýrasta verslunarborg Evrópu Það kveinka sér fleiri undan háu verðlagi en Íslendingar. Norðmenn eru nú í nokkurri geðshræringu yfir nýrri könnum sem sýnir að Ósló er dýrasta verslunarborg í Evrópu. Að strauja kortið á Karl Jóhannsgötu kostar 21 prósenti meira en meðaltalið er í ríkjum Evrópusambandsins. 19.11.2004 00:01
Sonur Thatchers verði framseldur Stjórnvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu eru að leggja lokahönd á beiðni til Suður-Afríku um að framselja Mark Thatcher, son Margrétar Thatchers, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Thatcher er sakaður um að hafa átt þátt í samsæri um að steypa ríkisstjórn Miðbaugs-Gíneu af stóli. 19.11.2004 00:01
Skeljungur lækkar bensínverð Vegna lækkunar á gengi dollars og lækkunar á heimsmarkaðsverði hefur Skeljungur lækkað bensínlítrann um eina krónu. Eftir lækkunina kostar lítrinn víðast hvar 103,4 krónur í sjálfsafgreiðslu. V-Power hefur jafnframt lækkað og er á sama verði og 95 oktana bensín. 19.11.2004 00:01
2 1/2 ár fyrir líkamsárás Tveir menn voru dæmdir til langrar fangelsisvistar fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjvíkur í dag. Annar þeirra var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en hinn í tveggja ára fangelsi. Í niðurstöðum dómsins segir meðal annars að árásin hafi verið hrottafengin og miskunnarlaus og valdið fórnarlambinu umtalsverðu líkamstjóni. 19.11.2004 00:01
Breytt dagsetning samræmdra prófa Dagsetningum samræmdra lokaprófa í 10. bekk næstkomandi vor hefur verið breytt vegna þeirrar röskunar sem orðið hefur á skólahaldi í grunnskólum í haust. Röð prófanna hefur einnig að nokkru leyti verið breytt frá því sem áður var tilkynnt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 19.11.2004 00:01
Danir mótmæla reglum ESB Danir munu berjast hart gegn nýjum reglum Evrópusambandsins um flutning á sláturdýrum. Í nýju reglunum er mönnum gefnar nánast frjálsar hendur um hversu lengi dýrin eru látin hírast á flutningabílum, auk þess sem ekkert er kveðið á um lágmarkspláss. 19.11.2004 00:01
Snjórinn veldur usla í Noregi Íbúar í Norður-Noregi veltast nú um af hlátri yfir brölti landa sinna í suðri. Fyrsti snjórinn féll í Ósló í vikunni og það var eins og við manninn mælt - það fór allt í steik á götum höfuðborgarinnar. 19.11.2004 00:01
Kennarar biðjist afsökunar Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, segir að kennarar við Brekkuskóla skuldi foreldrum og börnum í skólanum, svo og öðrum bæjarbúum afsökunarbeiðni.</font /> 19.11.2004 00:01
Skuldir heimila að hættumörkum Fólk virðist í vaxandi mæli skuldsetja sig meira heldur en greiðslugetan leyfir, segir Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður vegna vaxandi fjölda árangurslausra fjárnáma. Hún vill koma á greiðsluaðlögun fyrir þennan hóp. 19.11.2004 00:01
Varar við uppsöfnun mengunarefna Send var út viðvörun vegna uppsöfnunar mengunarefna í Reykjavík í gær.</font /> 19.11.2004 00:01
Hafsteinn hættir hjá Gæslunni Hafsteinn Hafsteinsson lætur af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslu Íslands 1. janúar næstkomandi. Fallist hefur verið á ósk hans um tilflutning í starfi og mun hann hefja störf sem skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu. Hafsteinn mun á þeim vettvangi meðal annars starfa að málefnum sem tengjast hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. 19.11.2004 00:01
ESB kemur sér upp her Evrópusambandið mun hafa fjórar viðbragðssveitir hermanna tilbúnar á næsta ári til þess að senda hvert sem er í heiminum, ef þörf krefur. Átta sveitir til viðbótar eiga að vera til staðar árið 2007. Um fimmtán hundruð hermenn verða í hverri sveit. 19.11.2004 00:01
Árásum verður að linna Fyrrverandi yfirmaður í öryggissveitum Palestínumanna, Mohammad Dahlan, sagði í dag að harðlínumenn verði að hætta árásum sínum á Ísrael til þess að skapa ró í kringum kosningarnar um eftirmann Jassers Arafats þann 9. janúar næstkomandi. 19.11.2004 00:01
Ekki sama vöfflur og vöfflur Landsmenn hafa ólíkan hátt á að búa til vöfflur. Óvísindaleg athugun leiðir í ljós að um tuttugu mismunandi vöffluuppskriftir eru á kreiki en vitaskuld allar keimlíkar. 19.11.2004 00:01
Tilhlökkun í hópnum Karlakór Reykjavíkur er á leið til Englands til jólatónleikahalds. Icelandair efnir til sérstakrar ferðar á tónleika kórsins í einni af fjölmörgum dómkirkjum Lundúnaborgar. 19.11.2004 00:01
Kúluskítur og snjóhús Nýsköpunarverðlaun í ferðaþjónustu voru veitt í fyrsta sinn í gær. Verðlaunin fóru til Mývatns og sérstök viðurkenning til Seyðisfjarðar. 19.11.2004 00:01