Innlent

2 1/2 ár fyrir líkamsárás

Tveir menn voru dæmdir til langrar fangelsisvistar fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjvíkur í dag. Annþór Kristján Karlsson var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi og Ólafur Valtýr Rögnvaldsson í tveggja ára fangelsi. Þeim var gefið að sök að hafa ráðist með kylfum og öðrum bareflum á Birgi Rúnar Benediktsson í íbúð sem hann leigði á Skólavörðustíg. Árásin var sögð að upplagi eiganda íbúðarinnar sem vildi Birgi Rúnar brott úr íbúðinni. Í niðurstöðum dómsins segir meðal annars að árásin á Birgi hafi verið hrottafengin og miskunnarlaus og valdið honum umtalsverðu líkamstjóni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að bæði Annþór og Ólafur Valtýr eiga að baki sakaferil með ofbeldisafbrotum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×