Fleiri fréttir

Tekjuaukning 300.000 á klukkustund

Kuldakastið eykur tekjur Orkuveitu Reykjavíkur um 300 þúsund krónur á hverri klukkustund. Fara þarf hundrað ár aftur í tímann til að finna dæmi um meiri frosthörkur í Reykjavík í nóvembermánuði.

Bílstjórar í verkfall

Hætta er á að samgöngur í Finnlandi verði í lamasessi í næstu viku. Frá því í síðustu viku hafa 1.300 rútubílstjórar sem keyra sunnan við Helsinki verið í verkfalli. Nú hafa vörubílstjórar, lestarstjórar og starfsmenn flugvalla sagst ætla í samúðarverkfall í næstu viku.

Framkvæmdir vegna álvers

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar áætlar að veita 887 milljónum til fjárfestinga á næsta ári. Mest verður varið til vatnsveitu, 205 milljónum; framkvæmda við Grunnskóla Reyðarfjarðar, 160 milljónum og til hafnarframkvæmda, 144 milljónum. Auk þess verður leikskólinn í Reyðarfirði stækkaður.

Ályktað gegn hryðjuverkum

Á ráðstefnu ríkja Mið- og Suður-Ameríku, auk Spánar og Portúgal, náðist sátt um að styðja ályktun gegn hryðjuverkum, sem lögð var fram af Kúbverjum. Í henni eru stjórnvöld í Panama ámæld fyrir að veita fjórum Kúbverjum sakaruppgjöf fyrir tilraun til að ráða Fidel Castro, forseta Kúbu, af dögum árið 2000.

Ár fyrir að stela bát

Maður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að hafa í apríl stolið 18 feta Sea Rover rörabáti og Suzuki-utanborðsmótor að verðmæti samtals um 3.770.000 krónur.

Hættir hjá Landhelgisgæslunni

Hafsteinn Hafsteinsson lætur af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslu Íslands 1. janúar eftir rúmlega ellefu ára starf. Samkvæmt tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti var fallist á ósk Hafsteins um tilflutning í starfi. Hafsteinn hefur störf sem skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu.

Annan ekki treyst

Reiknað er með að starfsfólk Sameinuðu þjóðanna muni kjósa um vantraustsyfirlýsingu gegn Kofi Annan, framkvæmdastjóra stofnunarinnar samkvæmt heimildum innan verkalýðsfélags starfsfólksins. Ástæðan er röð hneyksla sem stofnunin hefur verið tengd síðan hann tók við starfi framkvæmdastjóra.

Latur fluttur

Unnið er að stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn um þessar mundir. Vegna framkvæmdanna þurfti að flytja 60 tonna þungt bjarg sem ber hið skemmtilega nafn Latur.

Annþór gengur enn laus

Handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson gengur enn laus, þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í gær fyrir að berja mann á sjúkrabeði með kylfu. Hann gerði það að ósk leigusala mannsins.

Ekki tímabært að ræða verkfall

Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segir ekki tímabært að ræða það hvort leikskólakennarar nýti sér verkfallsrétt til að ná fram kröfu um sömu laun og aðrir kennarar. Hún er hæfilega vongóð um að sveitarfélögin gangi að kröfum þeirra.

Hafa ekki efni á samningunum

Sveitarfélög á landsbyggðinni hafa fæst efni á kennarasamningunum. Hækkun fasteignaskatta og þjónustgjalda ásamt niðurskurði í rekstri og framkvæmdum er meðal þess sem rætt er um. Aðrir treysta á að sveitarfélögin nái að semja við ríkið um auknar tekjur.

Studdist við óstaðfesta heimild

Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, notaðist við óstaðfesta heimild þegar hann sagðist hafa gögn undir höndum sem gæfu til kynna að Íranar ætluðu sér að þróa eldflaugar sem gætu borið kjarnorkusprengjur til skotmarka í öðrum löndum. Þetta hefur Washington Post eftir ónafngreindum embættismanni innan bandaríska stjórnkerfisins.

Neita samstarfi um herþjálfun

Þrátt fyrir að öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafi samþykkt að bandalagið tæki að sér þjálfun íraskra herforingja, í Írak, neituðu í það minnsta sex aðildarríkjanna, Belgía, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Spánn og Þýskaland, að senda hermenn til Írak til að þjálfa herforingja. Þau bönnuðu hermönnum sínum í stjórnstöðvum Nató einnig að taka nokkurn þátt í aðgerðinni..

Berlusconi hótar afsögn

Ef samstarfsflokkar Forza Italia, flokks Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu, samþykkja ekki skattalækkanatillögur hans er Berlusconi vís til að segja af sér. Þetta kom fram í viðtölum hans við fréttamenn í gær.

Vill friðargæslu til Sómalíu

Nýkjörinn forseti Sómalíu óskaði eftir því við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að friðargæslulið yrði sent til lands síns. Abdullahi Yusuf Amed forseti sagði þörf á öflugu friðargæsluliði ef koma ætti á friði og stöðugleika í Sómalíu, sem hefur einkennst af stjórnleysi í meira en áratug.

Refaveiðibannið fyrir dómstóla

Þrátt fyrir að breska þingið hafi samþykkt að banna refaveiðar með hundum er baráttunni ekki lokið. Andstæðingar bannsins höfðuðu mál og vonast til að dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að bannið fái ekki staðist.

Hefja sölu á hluta úr Yukos

Rússnesk yfirvöld hafa tekið ákvörðun um nauðungarsölu á hlut Yukos í stærstu framleiðsludeild fyrirtækisins, Yuganskneftegaz. Söluverðið rennur í ríkissjóð upp í greiðslu skatta sem skattayfirvöld segja fyrirtækið og forsvarsmenn þeirra hafa svikist um að borga.

Mannréttindi einskis virt

Stríðandi fylkingar sýna mannúðarsjónarmiðum enga virðingu í Írak sagði aðgerðastjóri Rauða krossins þegar hann fordæmdi hvort tveggja vígamenn og bandaríska og íraska herinn fyrir framgönguna í bardögum.</font /></b />

Eldur blossaði upp í fjárhúsi

Tugir fjár drápust þegar eldur kom upp í hlöðu við bæinn Hrútatungu í botni Hrútafjarðar í gærkvöldi. Fjárhús var í enda hlöðunnar og þar var um hundrað fjár þegar eldurinn kom upp, heimamönnum tókst að bjarga einhverju af fénu en nokkur fjöldi kinda fórst í eldinum.

Endir bundinn á ógnaröldina

Stríðandi fylkingar í Súdan undirrituðu í morgun heit um að binda enda á ógnaröldina í landinu fyrir árslok. Sameinuðu þjóðirnar heita í staðinn Súdönum friðargæslu og neyðaraðstoð. Hjálparsamtök segja hjálpina koma of seint.

Jeppi lenti ofan í Rauðavatni

Ísinn á Rauðavatni gaf sig undan þunga jeppa sem ekið var út á vatnið í dag. Ökumaðurinn og farþegi hans björguðust giftusamlega. Töluverð umferð hefur verið um Rauðavatn að undanförnu en ungu mennirnir tveir voru hins vegar svo óheppnir að aka tiltölulega léttri jeppabifreið sinni ofan í vök.

Do They Know It´s ...? endurtekið

Tuttugu ára jólalag, „Do They Know It´s Christmas“, hefur verið endurvakið með söngstjörnum nútímans. Upprunalega útgáfan er með mest seldu plötum allra tíma. Tilgangurinn er að hvetja til meiri aðstoðar við fátæk Afríkuríki. U2-stjarnan Bono er sá eini sem syngur í báðum útgáfum.

Rúmlega 30% kostnaðarauki

Sveitarstjórnarmenn segja að kostnaðarauki vegna nýrra samninga við kennara nemi líklega rúmlega þrjátíu prósentum fyrir sveitarfélögin.

Tugir manna særðust eða létust

Tugir manna, þar á meðal börn, særðust eða biðu bana í átökum í Írak í gær. Skotbardagar brutust út á milli hers bandarískra og írakskra hermanna og uppreisnamanna í borginni Fallujah í Írak í morgun Talsmenn Bandaríkjahers segja að aðeins sé um að ræða fáa uppreisnarmenn sem eftir eru í borginni.

Stendur ekki við fyrirheit

Olíufélagið Essó virðist ekki ætla að standa við fyrirheit um að bensínverð verði framvegis breytilegt oft í mánuði, eða í takt við breytingar á innkaupsverði. Þessi nýbreytni var boðuð í tilkynningu félagsins um leið og það bað neytendur afsökunar á samráði olíufélaganna um eldsneytisverð.

3 handteknir fyrir innbrot

Reykjavíkurlögreglan handtók þrjá innbrotsþjófa eftir að þeir höfðu reynt að brjótast inn í íbúðarhús í Safamýri í nótt. Þegar lögregla kom á vettvang lögðu þjófarnir á flótta, en komust ekki í bíl sinn. Lögreglumenn hlupu þá uppi og handtóku, og gistu þjófarnir fangageymslur í nótt.

Loðna norðvestur af landinu

Loðna hefur fundist djúpt norðvestur af landinu, en þar hefur hafrannsóknaskip verið við leit ásamt sex loðnuskipum, sem leitað hafa skipulega. Þau hafa öll fengið afla og í dag landar Huginn VE til dæmis 400 tonnum af frystri loðnu á Akureyri.

Hundar fá nýja eigendur

Fjöldi hunda sem bjargað var úr sláturhúsi á Filipseyjum hefur nú fengið nýja eigendur. Lögregla og meðlimir dýraverndunarsamtaka réðust inn í sláturhúsið í fyrradag og björguðu 45 hundum. Hundarnir voru illa farnir en þeim hafði verið troðið inn í lítil stálbúr og múlaðir með reipi. Hundakjöt þykir mikið lostdæti og selst dýru verði á Fillipseyjum.

Árangurslaus fjárnám 61 milljarður

Árangurslaus fjárnám hjá fyrirtækjum og einstaklingum frá árinu 2001 til 15. október á þessu ári, námu rúmlega 61 milljarði króna. Þetta kemur fram á heimasíðu Jóhönnu Sigurðardóttur, alþingismanns. Heildarfjöldi árangurslausra fjárnáma á tímabilinu var 17 þúsund 336, þar af 72% hjá körlum.

Mega beita valdi

Heimild fangavarða til að beita fanga valdi, verður lögfest, ef nýtt frumvarp um fullnustu refsinga verður samþykkt í óbreyttri mynd. Í sjöundu grein frumvarpsins segir að valdbeiting geti falist í líkamlegum tökum eða beitingu viðeigandi varnartækja.

Ekki búið að opna skíðasvæðin

Dálítið snjóaði á Akureyri í nótt, en þó ekki nóg til að hægt verði að opna skíðasvæðið í Hliðarfjalli. Talsverður snjór var líka kominn í Bláfjöll, en hann hefur að hluta til fokið burt í skafrenningi.

Öryggi fer versnandi

Öryggisástandið í Darfur-héraði í Súdan fer versnandi, að mati sérfræðinga bresku hjálparsamtakanna Oxfam. Glæpagengi fara þar um og ræna bílalestir hjálparsamtaka, sem hafa í kjölfarið neyðst til að flytja gögn einungis með þyrlum til fimm bæja.

Skotið á egypska lögreglumenn

Ísraelskar hersveitir skutu á egypska lögreglumenn á landamærum Egyptalands og Gasa-strandarinnar í morgun og drápu þá. Talsmenn hersins segja hermennina hafa talið að lögreglumennirnir væru palestínskir hryðjuverkamenn að koma fyrir sprengjum.

Langt komnir með þróun kjarnavopna

Íranar eru langt komnir með þróun flugskeyta sem geta borið kjarnaodda. Þessu heldur Colin Powell fram. Sérfræðingar segja líkur á að athygli Bandaríkjastjórnar beinist í vaxandi mæli að Íran.

Neysluvísitalan hækkar

Samræmd neysluvísitala fyrir EES löndin hækkaði um 0,3% í október frá fyrri mánuði, en um 0,5% á Íslandi. Verðbólga síðastliðna tólf mánuði á EES svæðinu var, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar, 2,2 prósent að meðaltali í EES ríkjunum, 2,4 prósent í þeim ríkjum, sem nota Evruna og tæp þrjú prósent á Íslandi.

Ætla að sækja um listamannalaun

Nýstofnaður leikhópur sambands ungra sjálfsstæðismanna hefur sótt um listamannalaun fyrir næsta ár. Styrkinn segjast sjálfsstæðismennirnir ungu ætla að nýta til í þann gjörning að skila listamannalaununum aftur til skattgreiðenda. Með þessu vilja þeir minna á að menning verður ekki til hjá hinu opinbera heldur hjá einstaklingunum.

Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir

Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir, að mati meirihluta þeirra sem tóku þátt í alþjóðlegri könnun sem birt var í morgun. 63 prósent aðspurðra í könnun World Economic Forum telja að stjórnmálamenn séu óheiðarlegir. Fimmtíu þúsund manns voru spurð um allan heim. 43 prósent telja að kaupsýslumenn séu almennt óheiðarlegir.

Hundruð þúsunda í hættu

Líf nokkur hundruð þúsunda íbúa Darfur-héraðs í Súdan er í hættu, að mati hjálparstofnana. Þeir segja ástandið í héraðinu hafa versnað undanfarna tvo mánuði, þrátt fyrir fyrirheit stjórnvalda í Khartoum. Öryggisástandið í Darfur-héraði í Súdan fer versnandi, að mati sérfræðinga bresku hjálparsamtakanna Oxfam.

Krónan mjög sterk

Íslenska krónan stendur um þessar mundir afar sterk gagnvart erlendri mynt, sér í lagi dollara. Þetta hefur margvísleg áhrif á íslenskt efnahagslíf, innfluttar vörur ættu að lækka í verði en á sama tíma má búast við að arðsemi fyrirtækja í útflutningi minnki.

Ný stjórn væntanlega samþykkt

Kosið verður um nýja framkvæmdastjórn Evrópusambandsins innan skamms. Jose Manuel Barosso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, neyddist sem kunnugt er til þess að gera breytingar á tillögu sinni að framkvæmdastjórn, einkum vegna Ítalans Rocco Buttiglione,

50 störf tapast

Fimmtíu störf munu tapast um næstu mánaðamót í Mývatnssveit vegna lokunar Kísiliðjunnar, og allt að þrjátíu önnur eru talin í hættu. Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur lýsir eftir viðbrögðum stjórnvalda og segir furðu sæta að ekki skuli hafa verið brugðist við þessu nú þegar.

Mun reyna á forsendur annarra

Sveitarstjórnarmenn segja að kostnaðarauki vegna nýrra samninga við kennara nemi hátt í þrjátíu prósent fyrir sveitarfélögin og formaður Starfsgreinasambandsins segir að þeir muni reyna á samningsforsendur allra á hinum almenna vinnumarkaði, frá A til Ö.

Öðruvísi heili

Heili þeirra sem neyta kókaíns er öðruvísi en heilinn í öðru fólki. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar lækna í Boston í Bandaríkjunum. Í rannsókninni, þar sem borin var saman gerð og starfsemi heila í þeirra sem neyta kókaíns og samanburðarhóps, kom í ljós að svokölluð heilamandla, var mun minni í kókaínneytendunum.

Mest aukning í Bretlandi

Notkun þunglyndislyfja meðal barna og unglinga hefur aukist meira í Bretlandi en nokkru öðru landi, samkvæmt nýrri rannsókn. Á árunum 2000 til 2002 jókst notkun þunglyndislyfja og annara lyfja sem hafa áhrif á boðefnabúskap heilans um heil 68% á Bretlandseyjum.

Beinni tennur með brjóstamjólk

Börn sem fá brjóstamjólk hafa beinni tennur en börn sem fá mjólk úr pela snemma á lífsleiðinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar lækna við háskólann í Mílanó á Ítalíu. Þannig er að börnin sem fá mjólkina úr brjósti móður, eru ólíklegri til þess að sjúga á sér þumalputtan og vera langi með snuð, sem hvoru tveggja getur orðið til þess að skekkja tennur barnsins.

Sjá næstu 50 fréttir