Erlent

Týndi hlekkurinn fundinn?

Fornleifafræðingar hafa fundið 13 milljón ára gamla beinagrind prímata sem talinn er síðasti sameiginlegi forfaðir bæði manna og mannapa. Mannapar, svo sem górillur og sjimpansar, eru taldir hafa skilið sig frá öðrum og minni öpum á þessum tíma og því er þetta hugsanlega hinn svokallaði „týndi hlekkur“. Beinagrindin fannst við uppgröft nálægt Barselóna á Spáni. Prímatinn var sennilega karlkyns, át ávexti og var örlítið smærri en nútíma sjimpansi. Vísindamenn kenna þessa nýju tegund við Katalóníu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×