Erlent

Hótar látum ef upp kemst um svindl

Frambjóðandi frjálslyndra í forsetakosningunum sem fram eiga að fara í Úkraínu á sunnudaginn hefur hótað að vera með læti ef grunur leikur á svindli í kosningunum. Frambjóðandinn, Viktor Yushchenko sem er fyrrverandi forsætisráðherra landsins, segir að hann muni ganga fylktu liði um götum borgarinnar og verja réttindi sín og fylgismanna sinna af hörku ef upp kemst að maðkur sé í mysunni. Kosningarnar á sunnudaginn er seinni umferð atkvæðagreiðslunnar en sú fyrri fór fram í lok október. Þá hafði núverandi forsætisráðherra Úkraínu, Viktor Yanukovich, nauman sigur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×