Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kindur brunnu inni í eldsvoða Fjörutíu og ein sauðkind brann inni í eldsvoða í úthúsi á bænum Hrútatungu í botni Hrútafjarðar í fyrrakvöld. Eldurinn kom upp í hlöðu sem er sambyggð fjárhúsunum. Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu, náði að hleypa fénu út úr fjárhúsunum en kindunum sem voru í hlöðunni varð ekki bjargað. 20.11.2004 00:01
Kjarabætur leiða til verðbólgu Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar leiða til meiri ójafnaðar því skattarnir lækka mest hjá þeim sem hæstar tekjurnar hafa. Þetta segja þeir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. 20.11.2004 00:01
Vilja hætta samræmdum prófum Menntakerfið er allt of miðstýrt og því verður að draga úr vægi aðalnámskrár og hætta að leggja samræmd próf fyrir nemendur grunnskólans. Þetta er niðurstaða hóps sem fjallaði um menntamál á Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í gær. 20.11.2004 00:01
Úttekt á aðdraganda verkfalls Gerð verður úttekt á viðræðum kennara og sveitarfélaga sem leiddu til verkfalls kennara í rúmar sjö vikur. Þetta var ákveðið á aukafundi fræðsluráðs Reykjavíkur á föstudag. 20.11.2004 00:01
Umdeildur meðal starfsfólksins Mikil óánægja starfsmanna Sameinuðu þjóðanna með yfirstjórn samtakanna hefur hvað eftir annað beinst að framkvæmdastjóranum Kofi Annan, þótt hann hafi sloppið með skrekkinn á föstudaginn 20.11.2004 00:01
Þrýstir á Norður-Kóreu George W. Bush Bandaríkjaforseti beindi spjótum sínum að Norður-Kóreu í gær þegar tveggja daga leiðtogafundur Asíu- og Kyrrahafsríkja hófst í Chile í gær 20.11.2004 00:01
Skuldum létt af Írak Þjóðverjar skýrðu í gær frá samkomulagi um að létta skuldum af Írökum í því skyni að gera þeim kleift að hefja fyrir alvöru uppbyggingu í landinu án þess að þurfa að sligast undir skuldabyrði. 20.11.2004 00:01
Stoltur af fortíð sinni Hinn nýi yfirmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Durao Barroso, viðurkennir að hafa verið maóisti á yngri árum, og segist vera stoltur af því. 20.11.2004 00:01
Reynir á efnahagskerfið Skattalækkanir og staða efnahagslífsins var megininntak ræðu Halldórs Ásgrímssonar á fundi miðstjórnar Framsóknarflokksins sem fram fór í gær. 20.11.2004 00:01
Steytt á skólamálum Meirihlutasamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á Dalvík er sprungið. Valdimar Bragason, bæjarstjóri og framsóknarmaður, segir að ásteytingarefnið hafi verið deilur um framtíð Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og skólamál almennt. 20.11.2004 00:01
Sameining samþykkt Sameining fjögurra hreppa sunnan Skarðsheiðar var samþykkt í kosningum í gær. Hreppirnir fjórir eru Hvalfjarðarstrandahreppur, Innri-Akraneshreppur, Leirár og Melahreppur og Skilmannahreppur. 20.11.2004 00:01
Safnað fyrir fjölskyldu Feribu Ákveðið hefur verið að efna til samskota handa fjölskyldu litlu stúlkunnar Feribu, sem lést þegar ráðist var á íslensku friðargæsluliðana í Kabúl 23. október. Söfnunin fer fram í Hvítasunnukirkjunni í Keflavík næstkomandi fimmtudagskvöld. Þá verður söngsamkoma haldin þar. 19.11.2004 00:01
Ungi fanginn vill á geðdeild Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á miðvikudaginn Andra Má Gunnarsson, 19 ára dreng, í eins árs fangelsisvist á Litla Hrauni. Dómurinn stimplaði Andra sem síbrotamann. Í viðtali við DV segist Andri eiga heima í heilbrigðiskerfinu en ekki fangelsi. 19.11.2004 00:01
Leikskólakennarar hjá sáttasemjara Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman hjá Ríkissáttasemjara nú klukkan níu og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok. 19.11.2004 00:01
Kosningarnar í uppnámi? Herskár íslamskur hópur ógnar væntanlegum frambjóðendum og kjósendum í fyrirhuguðum kosningum í Írak í janúar. Hópurinn hótar því að hver sá múslimi sem bjóði sig fram í kosningum verði refsað í nafni guðs. 19.11.2004 00:01
Fangelsi fyrir umferðalagabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tuttugu og þriggja ára mann í þriggja mánaða fangelsi í gær fyrir að hafa tíu sinnum á fimm mánuðum gerst brotlegur við umferðarlög. Hann var réttindalaus í öllum tilvikum og nokkrum sinnum ók hann líka of hratt. 19.11.2004 00:01
Norðurlandaráð lagt niður? Finnski þingmaðurinn Tarja Cronberg lagði til á finnska þinginu í gær að Norðurlandaráð verði lagt niður en um þessar mundir er hann formaður velferðarnefndar ráðsins. Annar þingmaður tók undir þetta og segir að stjórnsýsla ráðsins sé orðin allt of umfangsmikil. Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður er formaður ráðsins. 19.11.2004 00:01
Ópíumræktun í blóma Ræktun ópíumvalmúa blómstrar sem aldrei fyrr í Afganistan og hefur aukist um 64 prósent frá því í fyrra. Þetta segir í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Þar kemur jafnframt fram að ræktun ópíumvalmúa er vaxtarbroddurinn í afgönsku efnahagslífi. 19.11.2004 00:01
Jarðskjálfti norður af Flatey Jarðskjálfti upp á 3,2 á Richter varð norður af Flatey á Skjálfanda á fjórða tímanum í nótt. Enn sterkari skjálfti mældist á sömu slóðum í gær og annar álíka. Þeir eru líklegast hluti af skjálftahrinunni sem hófst austur af Grímsey fyrir nokkrum dögum.</font /> 19.11.2004 00:01
Banamein Arafats upplýst? Það ætti jafnvel að liggja fyrir í dag hvert banamein Jassers Arafats, fyrrverandi leiðtoga Palestínumanna, var. Sögusagnir hafa verið á kreiki um dánarorsök Arafats og menn hafa velt fyrir sér hvort eitrað hafi verið fyrir honum. Frændi leiðtogans er væntanlegur til Parísar í dag og munu frönsk yfirvöld láta honum í té sjúkraskýrslu Arafats. 19.11.2004 00:01
Bílþjófar fengu aðstoð lögreglu Athugull vegfarandi sem átti leið fram hjá Seyðishólum í Grímsnesi í nótt sá þar til tveggja manna, sem voru að bjástra við að skipta um dekk á bíl, en fórst það illa úr hendi. Hann lét lögregluna á Selfossi vita sem fór á vettvang og kom þá ýmislegt í ljós. 19.11.2004 00:01
Danskar stúlkur fara ránshendi Penar unglingsstúlkur, stolt foreldra sinna, uppáhald kennara sinna og sakleysið upmálað fara nú sem eldur í sinu um verslanir í Kaupmannahöfn og stela þar öllu steini léttara. Að sögn lögreglunnar er þetta alveg nýr hópur búðaþjófa sem starfsfólk verslana á erfitt með að átta sig á. 19.11.2004 00:01
Þjófur flúði vegna öskurs Það var ekki af ótta við þjófavarnakerfi eða að lögreglan væri rétt að koma sem þjófur lagði í ofboði á flótta af innbrotsstað í íbúðarhúsi í Grafarvogi í nótt, heldur skelfdist hann öskur sem húsfreyjan á bænum rak upp þegar hún varð hans var. Þá var hann kominn inn í forstofu og hafði kveikt þar ljós í rólegheitum þegar ósköpin dundu yfir. 19.11.2004 00:01
Týndi hlekkurinn fundinn? Fornleifafræðingar hafa fundið 13 milljón ára gamla beinagrind prímata sem talinn er síðasti sameiginlegi forfaðir bæði manna og mannapa. Mannapar, svo sem górillur og sjimpansar, eru taldir hafa skilið sig frá öðrum og minni öpum á þessum tíma og því er þetta hugsanlega hinn svokallaði „týndi hlekkur“. 19.11.2004 00:01
Vopnahlé í Súdan Stríðandi fylkingar í Súdan undirrituðu í morgun heit um að ná friðarsamningum fyrir árslok á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í Kenía. Talið er að yfir tvær milljónir Súdana hafi látið lífið vegna borgarastríðsins. 19.11.2004 00:01
Hótar látum ef upp kemst um svindl Frambjóðandi frjálslyndra í forsetakosningunum sem fram eiga að fara í Úkraínu á sunnudaginn hefur hótað að vera með læti ef grunur leikur á svindli í kosningunum. Frambjóðandinn, Viktor Yushchenko sem er fyrrverandi forsætisráðherra landsins, segir að hann muni ganga fylktu liði um götum borgarinnar ef upp kemst að maðkur sé í mysunni. 19.11.2004 00:01
Kaldasti nóvember í heila öld Óvenju kalt er á landinu miðað við árstíma, einkum á Suður- og Vesturlandi. Í Reykjavík hefur ekki orðið svona kalt svo snemma vetrar síðan 1981. Með 15 stiga frosti í nótt var metið jafnað og þarf að fara hundrað ár aftur í tímann til að finna meira frost í Reykjavík í nóvember. 19.11.2004 00:01
Funda aftur á miðvikudag Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman í húsakynnum Ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok. Fundurinn stóð í tvær klukkustundir og ætla samningamenn að hittast aftur á miðvikudag. 19.11.2004 00:01
Forvarnir góðar í Hafnarfirði Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar þakkar það hafnfirsku stórfjölskyldunni að tekist hefur að minnka umtalsvert vímuefnaneyslu og reykingar ungs fólks í bænum. Á hverju ári gerir Rannsókn og greining rannsókn á lífstíl ungs fólks. Helstu niðurstöður í ár eru þær að reykingar hjá unglingum í 10. bekk minnka umtalsvert. 19.11.2004 00:01
Andspyrnan brotin á bak aftur Talsmenn Bandaríkjahers segja að andspyrna í borginni Fallujah í Írak hafi nú verið brotin á bak aftur. Uppreisnarmenn láta þó enn til sín taka og hóta þeim ofbeldi sem taka þátt í boðuðum kosningum í janúar. 19.11.2004 00:01
Norðurlöndin í eina sæng Norðurlöndin ætla í sameiningu að kynna norrænan lífsstíl, fjölbreytt náttúrulíf og vistvæna orku á heimssýningunni EXPO 2005 sem haldin verður í Japan á næsta ári. Ákvörðun um sameiginlega þátttöku miðar að því að halda kostnaði í skefjum en hann er áætlaður um hálfur milljarður íslenskra króna í heild. 19.11.2004 00:01
Stórmeistarar skora á stjórnvöld Íslenskir stórmeistarar hafa sent stjórnvöldum áskorun um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að losa Bobby Fischer úr fangelsi í Japan. Fischer hefur setið í fangelsinu mánuðum saman meðan karpað er um hvort hann verði framseldur til Bandaríkjanna. 19.11.2004 00:01
Dánartíðnin minnki um helming Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með nýrri lyfjameðferð fyrir HIV-smituð börn sem rannsóknir sýna að geti dregið úr dánartíðni þeirra um helming. Meðferðin felst í því að gefa börnunum algengt sýklalyf sem kostar um tíu krónur á dag. Á hverjum degi látast u.þ.b. 1.300 börn af völdum alnæmisveirunnar í heiminum. 19.11.2004 00:01
Nýr forstjóri hjá Tæknivali Sigrún Guðjónsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Tæknivals frá og með deginum í dag. Sigrún var áður framkvæmdastjóri Innn hf. Hún er 33 ára, arkitekt frá Technische Hochschule Karlsruhe í Þýskalandi og upplýsingaarkitekt frá ETH í Sviss. 19.11.2004 00:01
Fölsuðum legókubbum fargað Finnskir tollverðir hafa malað yfir tíu tonn af fölsuðum legókubbum, mélinu smærra, og verður duftið síðan brennt. Eins og allir vita eru hinir einu og sönnu legókubbar framleiddir í Danmörku. Kubbarnir sem finnska tollgæslan lagði hald á voru hins vegar framleiddir í Kína og var verið að flytja þá til Rússlands til sölu þar. </font /></font /> 19.11.2004 00:01
Fordæma aðgerðaleysi ráðherra Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fagna auknum fjárframlögum til Samkeppnisstofnunar en fordæma aðgerðarleysi viðskiptaráðherra gagnvart bönkum og tryggingafélögum. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi hreyfingarinnar í gær. 19.11.2004 00:01
Afnám eignarskatts einstaklinga Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp sem felur í sér 4% lækkun tekjuskatts einstaklinga, afnám eignarskatts á einstaklinga og fyrirtæki og tæplega helmings hækkun barnabóta. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar komi til framkvæmda í áföngum á árunum 2005-2007. 19.11.2004 00:01
77 ára kona fær dauðadóm Hæstiréttur Japans hefur staðfest að sjötíu og sjö ára gömul kona skuli hengd fyrir morðið á eiginmanni sínum og kunningjakonu. Konan var dæmd til dauða fyrir að hafa árið 1987 fengið ættingja til liðs við sig til að drepa eiginmanninn, gegn því að þeir fengju hlut af þrjátíu milljón króna líftryggingu hans. 19.11.2004 00:01
Ósló dýrasta verslunarborg Evrópu Það kveinka sér fleiri undan háu verðlagi en Íslendingar. Norðmenn eru nú í nokkurri geðshræringu yfir nýrri könnum sem sýnir að Ósló er dýrasta verslunarborg í Evrópu. Að strauja kortið á Karl Jóhannsgötu kostar 21 prósenti meira en meðaltalið er í ríkjum Evrópusambandsins. 19.11.2004 00:01
Sonur Thatchers verði framseldur Stjórnvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu eru að leggja lokahönd á beiðni til Suður-Afríku um að framselja Mark Thatcher, son Margrétar Thatchers, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Thatcher er sakaður um að hafa átt þátt í samsæri um að steypa ríkisstjórn Miðbaugs-Gíneu af stóli. 19.11.2004 00:01
Skeljungur lækkar bensínverð Vegna lækkunar á gengi dollars og lækkunar á heimsmarkaðsverði hefur Skeljungur lækkað bensínlítrann um eina krónu. Eftir lækkunina kostar lítrinn víðast hvar 103,4 krónur í sjálfsafgreiðslu. V-Power hefur jafnframt lækkað og er á sama verði og 95 oktana bensín. 19.11.2004 00:01
2 1/2 ár fyrir líkamsárás Tveir menn voru dæmdir til langrar fangelsisvistar fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjvíkur í dag. Annar þeirra var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en hinn í tveggja ára fangelsi. Í niðurstöðum dómsins segir meðal annars að árásin hafi verið hrottafengin og miskunnarlaus og valdið fórnarlambinu umtalsverðu líkamstjóni. 19.11.2004 00:01
Breytt dagsetning samræmdra prófa Dagsetningum samræmdra lokaprófa í 10. bekk næstkomandi vor hefur verið breytt vegna þeirrar röskunar sem orðið hefur á skólahaldi í grunnskólum í haust. Röð prófanna hefur einnig að nokkru leyti verið breytt frá því sem áður var tilkynnt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 19.11.2004 00:01
Danir mótmæla reglum ESB Danir munu berjast hart gegn nýjum reglum Evrópusambandsins um flutning á sláturdýrum. Í nýju reglunum er mönnum gefnar nánast frjálsar hendur um hversu lengi dýrin eru látin hírast á flutningabílum, auk þess sem ekkert er kveðið á um lágmarkspláss. 19.11.2004 00:01
Snjórinn veldur usla í Noregi Íbúar í Norður-Noregi veltast nú um af hlátri yfir brölti landa sinna í suðri. Fyrsti snjórinn féll í Ósló í vikunni og það var eins og við manninn mælt - það fór allt í steik á götum höfuðborgarinnar. 19.11.2004 00:01