Umdeildur meðal starfsfólksins 20. nóvember 2004 00:01
Þrátt fyrir að Kofi Annan hafi að mörgu leyti átt farsælan feril sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna undanfarin átta ár hafa hvað eftir annað skotið upp kollinum óþægileg mál í tengslum við yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna, sem vakið hafa hneykslun og reiði í garð framkvæmdastjórans. Nú á föstudaginn munaði litlu að stéttarfélag starfsfólks Sameinuðu þjóðanna samþykkti vantraustsyfirlýsingu á Annan, sem engin fordæmi eru fyrir í sögu Sameinuðu þjóðanna. Hann slapp þó með skrekkinn, því starfsfólkið lét sér nægja að gagnrýna yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna án þess að beina spjótunum sérstaklega að framkvæmdastjóranum. Í ályktun stéttarfélagsins, sem hefur innan sinna vébanda um það bil 5.000 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, segir að yfirstjórnendur hafi "glatað trausti starfsmanna" með því að hafa hvað eftir annað sýknað ýmsa yfirmenn samtakanna af alvarlegum ásökunum. Gagnrýni starfsmanna hefur hvað eftir annað beinst að Annan sjálfum, þrátt fyrir að ályktuninni sé ekki beint gegn honum. Engin dæmi eru tilgreind í ályktuninni, en hún var samþykkt aðeins fáeinum dögum eftir að Annan sagðist bera fullt traust til Dileeps Nair, yfirmanns endurskoðunardeildar Sameinuðu þjóðanna, sem hafði verið ásakaður fyrir að áreita starfsfólk sitt og hygla vinum sínum. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa einnig gagnrýnt Annan fyrir að taka ekki á ásökunum á hendur Ruud Lubbers, yfirmanni flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um að hafa áreitt konu í starfsliði sínu. Sömuleiðis hefur Annan verið gagnrýndur fyrir að hafa neitað að fallast á uppsögn Louise Frechette aðstoðarframkvæmdastjóra, vegna árásar á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad, þar sem 22 manns fórust. Ásakanir um svik og spillingu í tengslum við eftirlit Sameinuðu þjóðanna með olíusölu til stjórnar Saddams Hussein í Írak, sem og gagnrýni á friðargæslu Sameinuðu þjóðanna í Rúanda, sem gerði lítið til að koma í veg fyrir fjöldamorðin þar, hefur einnig orðið til þess að draga úr trausti margra á Annan. "Það er hugsanlegt að hann viti ekki beinlínis hvað hefur verið að gerast," sagði einn starfsmanna Sameinuðu þjóðanna. "En það er engin afsökun."
Erlent Fréttir Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Sjá meira