Fleiri fréttir

Teknir á 164 kílómetra hraða

Tveir ungir ökumenn voru mældir á 164 kílómetra hraða á Laugarvatnsveginum í gær og svifti Selfosslögreglan þá ökuréttindum á staðnum. Þeir voru í kappakstri og voru stöðvaðir rétt neðan við Laugarvatn. Þeirra bíður nú sektir upp á tugi þúsunda króna.

Hindra óæskilega hópamyndun

Reykjavíkurborg hefur skipulagt vaktir í hverfum borgarinnar þessa vikuna til að ná sambandi við unglinga og koma í veg fyrir óæskilega hópamyndun í kennaraverkfallinu. Þetta kemur í kjölfar ákvörðunar forvarnarnefndar Reykjavíkurborgar sem hefur veitt 750 þúsund krónur til að vinna gegn neikvæðum afleiðingum kennaraverkfalls á ungt fólk.

Tveir síbrotamenn dæmdir

Tveir síbrotamenn voru í morgun dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness til fangelsisvistar og er hvorugur dómurinn skilorðsbundinn.

Enginn mælanlegur munur

Enginn mælanlegur munur er á fylgi George Bush og Johns Kerrys samkvæmt nýjustu könnunum. Frambjóðendurnir endasendast nú landshluta á milli í von um að heilla óákveðna kjósendur.

Ekki óskað gæsluvarðhalds

Lögreglan ætlar ekki að óska eftir því að mennirnir þrír sem réðust inn á ritstjórn DV í vikunni og tóku fréttastjóra hálstaki verði settir í gæsluvarðhald. Rannsókn málsins lýkur í dag.

Ekki verið rætt um lög

Forsætisráðherra hefur kallað til sín deilendur í kennaradeilunni á mánudaginn. Hann segir að viðræðuslitin í gær séu mikil vonbrigði. Ekki hafi þó verið rætt um að setja lög á verkfallið.

Lán upp á 13,2 milljarða uppgreidd

Landsmenn hafa greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði fyrir 13,2 milljarða síðan bankarnir kynntu ný húsnæðislán sín. Þetta samsvarar þriggja mánaða útlánum sjóðsins.

Þjóðarblómið tilkynnt í dag

Það verður holtasóley, blóðberg eða gleym-mér-ei sem verður þjóðarblóm Íslendinga. Úrslitin verða tilkynnt í dag klukkan hálf fjögur. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Legoland-garðarnir seldir?

Einn af aðaleigendum Lego er hættur sem framkvæmdastjóri leikfangafyrirtækisins eftir að áætlanir um að rétta af rekstur þess mistókust. Meira tapi er spáð í árslok en raunin varð í fyrra og kemur til greina að selja Legoland-skemmtigarðana.

Áhyggjur vegna skattalækkana

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skattabreytingar að því er fram kemur í ályktun fundar stjórnar félagsins í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar dregur í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana.

Stefán dæmdur í 3 ára fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stefán Loga Sívarsson, annan „Skeljagrandabróðurinn“, í þriggja ára fangelsi fyrir mjög alvarlega líkamsárás sem hefði getað leitt til dauða. Milta mannsins rifnaði svo hann hlaut innvortis blæðingu.

Rússar samþykkja Kyoto-bókunina

Neðri deild rússneska þingsins samþykkti í dag Kyoto-bókunina um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda. Bókunin á enn eftir að fara gegnum efri deild þingsins en það leiðir til þess að hún tekur gildi um allan heim þar sem 55% þeirra þjóða sem menga mest hafa þá samþykkt hana.

Verkfall í Bretlandi fyrirhugað

Samtök verslunar og þjónustu í Bretlandi, stærsta verkalýðsfélags landsins, hefur samþykkt að fara í verkfall þann 5. nóvember næstkomandi til að mótmæla fjöldauppsögnum í stéttinni. Fyrirhugað er að segja um 100 þúsund starfsmönnum samtakanna upp á næstunni.

Holtasóley þjóðarblóm Íslendinga

Holtasóley er þjóðarblóm Íslendinga. Frá þessu var greint við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag að viðstöddum forseta Íslands og landbúnaðarráðherra.

Skemmdarvarganna enn leitað

Lögreglunni í Keflavík hafa borist vísbendingar vegna spellvirkja sem unnin voru á kirkjugarðinum í Keflavík í gær. Um tuttugu legsteinum var velt um koll og krossar rifnir upp, auk þess sem grafskrift, lugtir og fleira var eyðilagt.

Ódýrara að fara til tannlæknis

Það ætti að verða ódýrara að fara til tannlæknis frá og með 1. nóvember því heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að hækka upphæðir í gjaldskrá fyrir tannlækningar um 4%.

Vel að sér um alþjóðastofnanir

Íslendingar virðast ágætlega að sér um alþjóðastofnanir samkvæmt könnun sem fram fór í rúmlega 60 löndum í sumar. Í könnuninni var meðal annars spurt hvort fólk hafi heyrt um ýmsar alþjóðastofnanir.

Uppsagnir flugfreyja afturkallaðar

Iceland Express hefur dregið uppsagnir allra flugfreyja hjá félaginu til baka eftir að samningar tókust. Samningar áttu að renna út við lok mánaðarins. Um fjörutíu flugfreyjur vinna hjá félaginu.

Ingibjörg Sólrún tekur frumkvæðið

Varaformaður Samfylkingarinnar hefur í þessari viku tekið pólitískt frumkvæði og snúið aftur í stjórnmálinn við stjórnvöl framtíðarhópsins. Sá hópur hannar nú stefnuna sem samþykkt verður á sama landsfundi og kýs á milli Ingibjargar og Össurar

Stjórnleysi í útgáfu leyfa

Einungis 40 prósent starfandi fiskeldisstöðva eru með rekstrarleyfi og af 83 starfandi stöðvum virðast aðeins 70 vera með starfsleyfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi. 

Sex milljarða tekjur árið 2007

Óraunhæft er að spá stýrihóps um aukið verðmæti sjávarfangs nái fram að ganga Samkvæmt spánni var gert ráð fyrir að útflutningsverðmæti fiskeldis yrðu komin upp í 36 milljarða króna árið 2012. Í fyrra nam útflutningsverðmætið 1,5 milljarði króna.

Ekkert vandamál

Það er ekki stefnt að því að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra.

Kópavogur braut eigin reglur

Kópavogsbær úthlutaði tveggja mánaða gömlu fyrirtæki byggingarétti fyrir fjölbýlishús. Fyrirtækið var selt hæstbjóðanda. Eigendur högnuðust um tugmilljónir og eru verktakar ósáttir með vinnubrögð bæjarins.

Harður árekstur á Vesturlandsvegi

Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan fimm. Lögregla og sjúkralið eru nýkomin á vettvang og ekki nánari fregnir að hafa.

Ákærður fyrir manndrápstilraun

Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem hjó til annars með öxi á veitingastað í Hafnarfirði fyrir skömmu, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp, hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi og fíkniefnabrot.

Húsleit og handtökur

Þrír menn voru handteknir eftir húsleit á Ólafsfirði í gær. Tveir mannanna eru grunaðir um innbrot í leikskóla bæjarins en þeim þriðja var sleppt fljótlega eftir handtökuna.

Bandaríkjamenn eiga samúð mína

"Bandaríkjamenn eiga alla mína samúð að hafa kosið yfir sig þennan Bush," segir Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, er hún er spurð um afstöðu sína til bandaríkjaforseta og forsetakosninganna sem framundan eru í Bandaríkjunum.

Dæmdur í þriggja ára fangelsi

Stefán Logi Sívarsson var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem hann framdi í apríl. Ríkissaksóknari fór fram á að Stefán yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi.

Samkeppnisstofnun gagnrýnd

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir að útreikningar Samkeppnisstofnunar á hagnaði olíufélaganna þriggja vegna meins samráðs hafi ekki við rök að styðjast. Forstöðumaður segist undrandi á skorti á rökstuðningi Samkeppnisstofnunar. Útreikningar hafa áhrif á hugsanlegar sektir. </font /></b />

Verð sjávarafurða hækkar

Verð sjávarafurða var hærra í september en í ágúst síðastliðnum samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofan birti í morgun. Verð sjávarfurða reiknað í íslenskum krónum hækkaði um tæpt eitt prósent á tímabilinu, þrátt fyrir sterkari krónu í september í ár en á sama tíma í fyrra. Frá þessu greinir í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans.

Byssumaður sagður hættulaus

Nítján ára piltur sem strauk úr fangelsi í vikunni og sagður var hættulaus hefur verið ákærður fyrir rán í Hringbrautarapótek sem hann framdi vopnaður skammbyssu. Hann er líka ákærður fyrir að hafa lagt haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Pilturinn er í gæsluvarðhaldi og kom hann í héraðsdóm í óvenju mikilli gæslu.

Næg bílastæði

Nýtt kirkjuhús Íslensku Kristskirkjunnar að Fossaleyni í Grafarvogi verður vígt á morgun, sunnudag.

Fréttamenn til hliðar

Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að stjórnarmenn í Félagi fréttamanna skuli ekki fjalla um kennaradeiluna í fréttum. Þessi ákvörðun er tekin eftir að stjórn Félags fréttamanna ákvað að veita verkfallssjóði Kennarasambands Íslands 220 þúsund króna styrk.

Ofbeldi handrukkara orðum aukið

Lögreglan og bráðamóttakan segja að meint ofbeldi handrukkara í íslenskum samtíma sé orðum aukið. Dæmi séu um hótanir og ógnanir en sem betur fer lítið um efndir. Sögusögnum sé komið á kreik og viðhaldið til að skapa ótta. </font /></b />

15 prósenta launahækkun hafnað

Sáttatillaga ríkissáttasemjara í kennaradeilunni hefði falið í sér um 25 prósenta útgjaldaauka fyrir sveitarfélögin eða ríflega 15 prósenta launahækkun fyrir velflesta kennara. Samninganefnd sveitarfélaganna samþykkti fyrir sitt leyti þessa sáttatillögu en kennarar höfnuðu henni.

Rannsókn á húsbroti lokið

Rannsókn á húsbroti þriggja manna á ritstjórn DV er lokið. Í dag voru teknar skýrslur af vitnum sem voru hátt í tuttugu talsins. Fréttastjóri blaðsins hefur lagt fram kæru um líkamsárás en hann var tekinn kverkataki þegar þremeningarnir ruddust inn á blaðið og vildu ræða við ritstjóra. Málið verður sent ríkissaksóknara á mánudag.

Kom henni ekki undir læknishendur

Ríkissaksóknari hefur ákært þrítugan karlmann fyrir brot gegn lífi og líkama þegar hann lét fyrir farast að koma liðlega tvítugri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega vegna fíkniefnaneyslu. Þetta gerðist í ágúst á síðasta ári í húsi við Lindargötu í Reykjavík og lést konan af völdum banvænnar kókaín- og e-töflueitrunar.

78 ára í framboði

Skúli Einarsson verður að líkindum næsti formaður Matsveinafélags Íslands. Hann er kominn fast að áttræðu og lofar að láta ferska vinda blása um félagið verði hann kjörinn. Skúli var matsveinn á skipum í rúm fimmtíu ár og hefur komið í flestar hafnir. Hann var þó alltaf einnar konu maður. </font /></b />

Skólagjöld leyfð í ríkisháskólum?

Ríkisstjórnin skoðar að leggja fram frumvarp sem heimilar skólagjöld í framhaldsnámi í íslenskum ríkisháskólum. Endanleg ákvörðun liggur þó ekki fyrir. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir aðeins tímaspursmál hvenær skólagjöld haldi innreið sína í ríkisháskólana. Þeir geti ekki keppt við einkaskóla að óbreyttu. 

Eggjandi apótek

Breski lyfjaverslanarisinn Boots hefur ákveðið að bregðast við minnkandi hagnaði með því að selja kynlífsleikföng í verslunum sínum sem eru yfir 1.400 talsins.

Naglarnir óþarfir

Margir ökumenn brugðust skjótt við í kuldakastinu sem gerði í vikunni og létu setja vetrardekk undir bíla sína. Lögum samkvæmt má ekki aka á negldum dekkjum fyrr en eftir 1. nóvember en lögreglan segist ekki munu bregðast við naglaglamri þótt hálka í höfuðborginni sé á bak og burt.

Formið mikilvægt fyrir sæðisstuðul

Karlmenn sem eru of feitir eða of grannir eiga erfiðara með að geta börn en karlmenn í góðu formi. Þetta er niðurstaða danskrar rannsóknar sem tók til 1.558 ungra karlmanna í Álaborg í Danmörku og Amsterdam í Hollandi.

EasyJet flýgur ekki til Íslands

Flugleiðir keyptu síðdegis 8,4 prósenta hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Flugleiðamenn eiga ekki von á að easyJet hefji flug hingað til lands þrátt fyrir þetta.

Sjá næstu 50 fréttir