Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hryðjuverkaleiðtogi drepinn Hermenn í Alsír drápu Nabil Sahraoui, einn eftirlýstasta hryðjuverkamann Norður-Afríku, á fimmtudagskvöldið. Hann var yfirmaður Salafist-hópsins sem var í tengslum við al-Kaída, samtök Osama bin Laden, samkvæmt talsmönnum hersins. 20.6.2004 00:01
Hrun loðnustofns kostar milljarða "Það er engin skýring á því af hverju loðnustofninn ætti að vera hruninn og persónulega hef ég ekki trú á því," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. 20.6.2004 00:01
Clinton gagnrýnir Bush Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir það hafa verið mistök hjá stjórn George Bush að ráðast til innrásar í Írak án samþykkis og samvinnu Sameinuðu þjóðanna. 20.6.2004 00:01
Clinton gagnrýnir Bush Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir það hafa verið mistök hjá stjórn George Bush að ráðast til innrásar í Írak án samþykkis og samvinnu Sameinuðu þjóðanna. 20.6.2004 00:01
Borgarstjóri landaði laxi Þórólfur Árnason borgarstjóri landaði fyrsta laxinum úr Elliðaánum í gærmorgun, en borgarstjóri opnaði árnar að venju. Er þetta fyrsti lax Þórólfs úr Elliðaám og annar laxinn sem hann landar um ævina. 20.6.2004 00:01
Fallbyssa fiskuð upp úr El Grillo Köfurum tókst að ná upp fallbyssu úr El Grillo olíuskipinu sem Þjóðverjar sökktu í Seyðisfirði í seinni heimstyrjöldinni. Hún hafði því legið á 50 metra dýpi í sextíu ár. Þetta er þriðja byssan sem næst upp af skipinu en sumar þeirra þykja fágætar. Við sýnum myndir af byssunni í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 19.6.2004 00:01
Forseti neitar stríði við Alþingi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafnar því alfarið að með því að neita að skrifa undir fjölmiðlalögin hafi hann farið í stríð við Alþingi. Stjórnarskráin hefjist á því að segja að forsetinn og þingið fari saman með löggjafarvaldið. 19.6.2004 00:01
Lögreglumál í nótt Slökkvilið og lögreglu voru kölluð að gamla pósthúsinu við Digranesveg í Kópavogi á öðrum tímanum í nótt en tilkynnt hafði verið um að þar væri mikill eldur. Þegar að var komið kom í ljós að skipaflugeldi hafði verið skotið undir þakskegg þar sem hann sat fastur og rauk mikið úr. Slökkt var í honum og voru skemmdir minniháttar. 19.6.2004 00:01
Fyrsta stjórnarskráin samþykkt Skálað var í kampavíni í Brussel í gærkvöld þegar leiðtogar Evrópusambandsríkja náðu samkomulagi um fyrstu stjórnarskrá sambandsins. Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands sem fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, sagði þennan áfanga sögulegan fyrir Evrópu og alla íbúa álfunnar. 19.6.2004 00:01
Leiðtogi al-Kaída látinn Ríkissjónvarpið í Sádí-Arabíu sýndi í morgun myndir af fjórum látnum mönnum sem sagðir voru Abdulaziz al-Muqrin, einn af leiðtogum al-Kaída samtakanna, og þrír liðsmenn hans. 19.6.2004 00:01
Íranar auka ekki úranframleiðslu Íranar ætla ekki að auka úranframleiðslu í landinu til að uppfylla ákvæði álykunar Sameinuðu þjóðanna. Óttast hafði verið að Íranar hyggðust auka úranframleiðslu og undirbúa framleiðslu kjarnorkuvopna en yfirvöld í Íran neita því staðfastlega. Yfirmaður kjarnorkumála í Íran fullyrðir að Íranar framleiði ekki úran án vitundar Sameinuðu þjóðanna. 19.6.2004 00:01
Hvalur verkaður í Sandgerði Sjö metra langur hvalur veiddist í gær 10 sjómílur undan Stafnesi og var hann í kjölfarið verkaður af starfsmönnum Hafrannsóknarstofnunarinnar á gólfi fiskvinnsluhúss í Sandgerði. 19.6.2004 00:01
Að minnsta kosti 20 látnir Að minnsta kosti tuttugu Írakar létust og fjórir særðust í sprengingu í borginni Falluja í morgun. Vitni segja að fólkið hafi verið statt í húsi sem bandarísk herþyrla hafi gert árás á með þessum afleiðingum. Engin viðbrögð fengust hjá hernámsliðinu þegar eftir þeim var leitað skömmu eftir atburðinn. 19.6.2004 00:01
Aldrei fleiri útskrifast frá HÍ Aldrei fyrr í sögu Háskóla Íslands hafa svo margir kandídatar brautskráðst sem í dag. Þeir eru 830 að þessu sinni, þar af eru 604 úr grunnnámi, 135 úr framhaldsnámi, þrír luku doktorsprófi og 91 viðbótarnámi til starfsréttinda. Skólaárið 2003-2004 hafa samtals 1.324 lokið námi við Háskóla Íslands. 19.6.2004 00:01
Kvennahlaupið ræst klukkan 14 Kvennahlaupið fer fram í dag, fimmtánda árið í röð, og verða fjölmennustu hlaupin í Garðabæ, Mosfellsbæ og Akureyri. Búist er við að 15-20.000 konur taki þátt í hlaupinu. Þátttökugjald er 1000 krónur og fá allar sem taka þátt bol og verðlaunapening. 19.6.2004 00:01
Leiðtogar ESB ná samkomulagi Leiðtogar Evrópusambandsríkja náðu í gærkvöld samkomulagi um fyrstu stjórnarskrá sambandsins. Ekki tókst að útnefna næsta forseta framkvæmdastjórnarinnar, sem taka á við af Romano Prodi. 19.6.2004 00:01
Framkvæmdastjóri NATO býður aðstoð Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins er reiðubúinn að aðstoða Íslendinga og Bandaríkjamenn við endurskoðun á hlutverki bandaríska hersins á Íslandi. Hann segir þó að málið sé fyrst og fremst í höndum þjóðanna tveggja. 19.6.2004 00:01
Schröeder segir frekar af sér Gerhard Schröeder, kanslari Þýskalands, segist frekar segja af sér en að breyta stefnu sinni í efnahagsmálum. 19.6.2004 00:01
Ástþór afhendir Ólafi áskorun Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, hitti Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í húsi Ríkisútvarpsins eftir hádegi og afhenti honum bréf með áskorun um að mæta sér í kappræðum. Bréf Ástþórs er stílað á Hans hátign herra forseta Ólaf Ragnar Grímsson. 19.6.2004 00:01
Pattstaða innan ESB Pattstaða er innan Evrópusambandsins um það hver eigi að taka við af Romano Prodi sem forseti framkvæmdastjórnar sambandsins. Nú fyrir stundu tilkynnti Chris Patten, utanríkisstjóri Evrópusambandsins, að hann hefði dregið sig í hlé í baráttunni um embættið. 19.6.2004 00:01
Stór hluti Grafarvogs rafmagnslaus Stór hluti af Grafarvoginum er rafmagnslaus. Verið er að leita að biluninni í háspennukerfi. 19.6.2004 00:01
Ítalir gegn umskurði kvenna Ítalska stjórnin gefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, 1,8 milljón evrur til að koma í veg fyrir að kynfæri ungra stúlkna verði afskræmd. Það svarar til 156,5 milljóna króna. Á hverju ári þurfa um 2 milljónir stúlkna að þola slíkar aðgerðir og áætlað er að um 100 milljónir kvenna og stúlkna um allan heim þjáist vegna þeirra. 19.6.2004 00:01
Jarðskjálftar á Norðurlandi Jarðskjálftahrina hefur átt sér stað úti fyrir Norðurlandi síðustu daga. Síðan á mánudag hefur hefur Veðurstofan staðsett þar 181 skjálfta, langflesta úti fyrir mynni Eyjafjarðar. 19.6.2004 00:01
Meistarar í strætisvagnaakstri Íslenskir strætisvagnabílstjórar unnu norrænu ökuleikniskeppnina þriðja árið í röð. Keppnin fór fram í Ósló í dag. Norðmenn urðu í öðru sæti, Finnar í þriðja, Svíar í fjórða - og Danir lágu í því. 19.6.2004 00:01
18 þúsund konur í Kvennahlaupinu Um átján þúsund konur á öllum aldri tóku þátt í afmælishlaupi Kvennahlaupsins í dag á 90 stöðum hérlendis og 15 stöðum erlendis. Samkvæmt fréttatilkynningu er þetta um 12,5% íslenskra kvenna. Elsti þátttakandinn, Guðrún Stefánsdóttir, átti 89 ára afmæli í dag. Kvennahlaupið er 15 ára og segir ÍSÍ að framkvæmdin hafi tekist vel. 19.6.2004 00:01
Grípa verður í taumana sem fyrst "Þetta staðfestir það sem vitað hefur verið lengi og margar aðrar kannanir hafa sýnt svipaða niðurstöðu," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, vegna nýrrar skýrslu Efnahags- og viðskiptastofnunar Evrópu, OECD. 19.6.2004 00:01
Tryggingasvik <font face="Helv"> Kona sem keypti sjúkdómatryggingu fær ekki bætur þar sem hún veitti ekki fullnægjandi upplýsingar á umsóknareyðublaði. </font> 19.6.2004 00:01
Fæstir vilja þjóðstjórn Rúmlega helmingur þingmanna Likudbandalagsins er andvígur því að mynda þjóðarstjórn með Verkamannaflokknum 19.6.2004 00:01
Bótakrafa Litháa á hendur ríkinu Litháinn, sem Hæstiréttur dæmdi í gær að hefði verið ranglega vísað úr landi, hefur í raun verið í nokkurs konar átthagafjötrum síðan. Ekki er ósennilegt að hann eigi bótakröfurétt á hendur íslenska ríkinu. 19.6.2004 00:01
Enn verið að telja Fimm vikum eftir forsetakosningar á Filippseyjum liggja úrslitin ekki fyrir. 19.6.2004 00:01
Dæmdur fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur staðfesti tíu mánaða fangelsisdóm yfir manni sem dæmdur var í héraðsdómi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum. 19.6.2004 00:01
Erilsamt hjá lögreglu Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Akureyri frá því um miðja vikuna. 19.6.2004 00:01
Íranir sæta gagnrýni Alþjóða kjarnorkumálastofnunin skammaði Írana fyrir að veita sér ekki nægilega góðar upplýsingar um kjarnorkuáætlun sína 19.6.2004 00:01
Brotthvarfi verður flýtt Brottflutningi landtökumanna frá ísraelskum landnemabyggðum á Gazasvæðinu verður flýtt frá því sem til stóð að sögn ísraelska dagblaðsins Maariv. 19.6.2004 00:01
Fjögur systkini slösuðust Fjögur systkini slösuðust eftir að bifreið sem eitt þeirra ók valt á Snæfellsnesvegi skammt vestan við Hítará. 19.6.2004 00:01
Forsetaembættið ekki pólitískara Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að hann ætli ekki að gera forsetaembættið pólitískara en áður. Hann segist ekki hafa hannað þá atburðarás sem færði fjölmiðlafrumvarpið í hendur forseta Íslands. Hann segir tal um vanhæfi sitt vegna Norðurljósa ævintýralega vitleysu. 19.6.2004 00:01
Óljóst með niðurskurð sjúkrahúss "Það hafa engar ákvarðanir verið teknar að svo stöddu enda öll vinna enn í gangi," segir Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. 19.6.2004 00:01
Frambjóðendur ógna ekki forsetanum "Það sem verður að líkindum mest spennandi að fylgjast með í þessum kosningum er hversu margir skila auðu," segir Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, vegna komandi forsetakosninga sem fram fara á laugardaginn kemur. 19.6.2004 00:01
Bandaríkjamenn verði um kyrrt Colin Powell, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í útvarpsviðtali við Radio America á föstudag að hryðjuverkamenn hefðu unnið sigur ef bandarískir þegnar sem starfa í Sádi-Arabíu myndu yfirgefa landið. 19.6.2004 00:01
Voru með fíkniefni Tveir menn um fertugt voru handteknir á Selfossi eftir að hafa verið stöðvaðir við venjubundið eftirlit um klukkan tvö í fyrrinótt. 19.6.2004 00:01
Í gæsluvarðhaldi vegna innbrota Tuttugu ára maður var úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmta júlí að kröfu lögreglunnar á Selfossi vegna fjölda innbrota á Suðurlandi. 19.6.2004 00:01
Ástþór óánægður með Ólaf Ragnar Baráttan fyrir komandi forsetakosningar fékk annan og þyngri undirtón þegar forsetaframbjóðendurnir sátu í fyrsta sinn allir saman fyrir svörum í Ríkisútvarpinu í dag. 19.6.2004 00:01
Fyrsta stjórnarskrá ESB Leiðtogar Evrópusambandsríkja náðu í gærkvöld samkomulagi um fyrstu stjórnarskrá sambandsins. Ekki tókst að tilnefna næsta forseta framkvæmdastjórnarinnar, sem á að taka við af Romano Prodi, en nú síðdegis sagðist Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, reiðubúinn að taka starfið að sér, yrði til hans leitað. 19.6.2004 00:01
Byssu úr El Grillo landað Köfurum hefur tekist að ná fágætri þriggja tonna byssu af El Grillo sem legið hefur á botni Seyðisfjarðar í sex áratugi. 19.6.2004 00:01
Leiðtogi al-Kaída látinn Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja að leiðtogi al-Kaída samtakanna í landinu sé einn fjögurra manna sem voru drepnir í skotbardaga í nótt. 19.6.2004 00:01