Erlent

Krefjast enn að for­setinn verði dæmdur til dauða

Samúel Karl Ólason skrifar
Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu.
Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu. AP/Ahn Young-joon

Saksóknarar í Suður-Kóreu hafa aftur farið fram á dauðarefsingu á hendur Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseta. Hann var fyrr á árinu dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir tilraun til valdaráns í desember 2024.

Þeim dómi áfrýjaði forsetinn fyrrverandi en saksóknarar áfrýjuðu honum einnig og vildu að Yoon yrði dæmdur til dauða en ekki í lífstíðarfangelsi. Sú áfrýjun hefur ekki verið tekin fyrir enn en saksóknarar hafa nú aftur krafist dauðadóms.

„Yfirmaður hersins, sem hafði svarið þess eið að virða stjórnarskrána, sendi hermenn út á götur með byssurnar beindar að fólkinu,“ hefur Yonhap-fréttaveitan eftir saksóknurum.

„Þetta var ófyrirgefanlegur glæpur sem lagði stjórnskipulega skipan landsins í rúst og var tilraun til að snúa klukkunni 40 ár aftur í tímann í Lýðveldinu Kóreu.“

Saksóknararnir sögðu einu réttlætanlegu refsinguna við þessum brotum vera dauðadóm.

Yoon ætlaði að nota herlög til að losa sig við pólitíska andstæðinga sína og taka sér aukin völd í landinu. Hann og bandamenn hans í hernum reyndu einnig að auka spennuna milli Suður- og Norður-Kóreu til að réttlæta beitingu herlaga og undirbjuggu áætlun sína í meira en ár.

Forsetinn setti á herlög í desember 2024. Það ástand varði þó einungis í nokkrar klukkustundir og í kjölfarið hrökklaðist hann frá völdum og var handtekinn.

Rannsókn leiddi í ljós að Yoon og bandamenn hans í hernum hefðu lagt á ráðin um herlög frá því fyrir október 2023 og þeir hefðu komið fleiri bandamönnum sínum fyrir í háttsettum stöðum innan hersins.

Yoon og Kim Yong Hyun, varnarmálaráðherra sem var honum hliðhollur, auk Yeo In Hyung, yfirmanns leyniþjónustu hers Suður-Kóreu, eru sagðir hafa framkvæmt nokkrar hernaðaraðgerðir sem ætlað var að kalla á viðbrögð frá Norður-Kóreu. Þar á meðal voru drónaflugferðir yfir Norður-Kóreu.

Síðasta aftaka fór fram í Suður-Kóreu árið 1997.


Tengdar fréttir

Munda fallbyssurnar við landamærin

Norðurkóreskir hermenn hafa komið fyrir fallbyssum við landamærin milli Norður- og Suður-Kóreu. Stórskotaliðsvopnin eru bersýnileg yfir landamærin og er beint til suðurs. Spennan á landamærunum hefur aukist töluvert á undanförnum vikum og með þessu eru ráðamenn í Norður-Kóreu sagðir vilja senda skilaboð til ráðamanna í Seoul.

Vopnakapphlaup á Kóreuskaga

Aukið samstarf Rússlands, Kína, Íran og Norður-Kóreu hefur reynst ríkjunum vel en kannski sérstaklega Norður-Kóreu. Her ríkisins hefur fengið fjölda nýrra vopna á undanförnum árum og hafa forsvarsmenn hans lært af reynslu Rússa í Úkraínu. Ákveðið vopnakapphlaup á sér nú stað á Kóreuskaga þar sem spennan þykir mjög mikil þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×