Munda fallbyssurnar við landamærin Samúel Karl Ólason skrifar 27. október 2026 23:13 Sjónarhornið frá einni eftirlitsstöð í Suður-Kóreu á dögunum. Norðurkóreskir hermenn við æfingar á stórskotaliðsvopn sem búið er að koma fyrir við landamæri ríkjanna. EPA/YONHAP Norðurkóreskir hermenn hafa komið fyrir fallbyssum við landamærin milli Norður- og Suður-Kóreu. Stórskotaliðsvopnin eru bersýnileg yfir landamærin og er beint til suðurs. Spennan á landamærunum hefur aukist töluvert á undanförnum vikum og með þessu eru ráðamenn í Norður-Kóreu sagðir vilja senda skilaboð til ráðamanna í Seoul.
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Norður-Kóreumenn hafi komið fyrir gífurlegum fjölda stórskotaliðsvopna við hlutlausa svæðið svokallaða. Þær eru þó iðulega faldar eða í byrgjum og ekki bersýnilegar undir berum himni. Spennan milli Norður- og Suður-Kóreu hefur aukist töluvert á undanförnum árum. Árið 2024 lýsti Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, því yfir að Suður-Kórea væri „eilífðaróvinur“ Norður-Kóreu og lokaði á opinber samskipti ríkjanna á milli. Síðan þá er áætlað að Norður-Kóreumenn hafi komið um 960 þúsund jarðsprengjum fyrir við landamæri ríkjanna. Norður-Kóreumenn hafa reist gaddavír á landamærunum og hafa lagt þar hundruð þúsunda jarðsprengja á undanförnum árum.EPA/YONHAP Kim hefur einnig látið byggja fleiri varðstöðvar og koma fyrir gaddavír og öðrum tálmum við landamærin. Spennan tók þar að auki mikinn kipp í síðasta mánuði þegar þrír suðurkóreskir hermenn særðust vegna jarðsprengju, sem norðurkóreskir hermenn eru sakaðir um að hafa komið fyrir sunnanmegin við landamærin. Síðan þá hafa ráðamenn beggja ríkja heitið því að auka viðbúnaðinn á landamærunum og hótað viðbrögðum við aðgerðum hvor annars. Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur krafist afsökunarbeiðni frá Kim í gegnum öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Í svari Norður-Kóreu við þeirri kröfu segir að ásakanirnar séu innantómur skáldskapur. Pyongyang sendi bréf til öryggisráðsins á sunnudaginn, samkvæmt frétt Yonhap-fréttaveitunnar, en þar segir að yfirvöld í Seoul hafi falsað sprenginguna með því markmiði að hægja á eða stöðva uppbyggingu varnarmannvirkja norðan við hlutlausa svæðið. Norður-Kóreumenn hafa einnig kvartað yfir því að suðurkóreskir hermenn hafi skotið viðvörunarskotum að hermönnum í norðri. Kim Yo Jong, valdamikil systir Kims Jong Un, hefur gengið hvað harðast fram gegn Suður-Kóreu að undanförnu, enda hefur hún yfirstjórn á samskiptum Norður-Kóreu við Suður-Kóreu. Auk þess að auka viðbúnaðinn á landamærunum hefur hún sagt að til standi að setja upp stóra hátalara við landamærin og básúna áróður yfir þau. Þetta á víst að gera alls staðar við landamæri ríkjanna, sem eru um 250 kílómetra löng. Nú hefur stórskotaliðsvopnum einnig verið komið fyrir þar. Þrjár fallbyssur sýnilegar Myndir hafa verið teknar af að minnsta kosti þremur slíkum vopnum sem skjóta 122mm sprengikúlum. Öllum er miðað til suðurs og hafa hermenn Norður-Kóreu einnig verið myndaðir við æfingar á þessi vopn. Greinendur sem ræddu við blaðamann Reuters segja að vopnin séu af gerðinni M-1981 122mm en það eru fallbyssur sem ekið er undir eigin afli og hafa þessi tilteknu vopn verið í notkun í Norður-Kóreu frá áttunda áratug síðustu aldar. Þau eru talin geta skotið sprengikúlum allt að 24 kílómetra og gætu þar af leiðandi verið notuð gegn bæ sem er tiltölulega skammt frá landamærunum. Nýrri stórskotaliðsvopn Norður-Kóreu hafa sum hver mun meiri drægni. Sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu sagði í samtali við Sky News að með þessu væru ráðamenn í Pyongyang að senda skilaboð. Þeir ætli að halda áfram víggirðingu landamæranna og framfylgja stefnu sinni við hlutlausa svæðið sama hvað Suður-Kóreumenn vilja hafa um það að segja. Aukinn uppbygging Herafli Norður-Kóreu hefur gengist töluverða nútímavæðingu og uppbyggingu á undanförnum árum. Kim hefur veitt Rússum umfangsmikla aðstoð vegna innrásar Vladimírs Pútín í Úkraínu og hefur hann í staðinn fengið peninga, aðgang að hergagnatækni Rússa og vettvang til að prófa vopn sín, svo eitthvað sé nefnt. Kim er farinn að framleiða sína eigin dróna í Norður-Kóreu og er eins konar vopnakapphlaup farið af stað á Kóreuskaga. Í Suður-Kóreu óttast ráðamenn að Norður-Kóreumenn gætu notað tiltölulega ódýra sjálfsprengidróna í massavís til að brjóta á bak aftur dýrar hátæknivarnir Suður-Kóreu og Bandaríkjanna, ekki ósvipað því sem hefur verið að eiga sér stað í Mið-Austurlöndum á undanförnum mánuðum. Suður-Kóreumenn reiða sig á veru bandarískra hermanna í Suður-Kóreu og á fælingarmátt kjarnorkuvopna Bandaríkjanna. Tiltrúin á þessa aðstoð og það að Bandaríkjamenn væru tilbúnir til að beita kjarnorkuvopnum sínum til að verja Suður-Kóreu og þannig taka áhættu á að kjarnorkuvopnum yrði beitt gegn Bandaríkjunum er ekki sú sama og hún var. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið harðorður í garð Suður-Kóreu og skammað ráðamenn þar meðal annars fyrir að vilja ekki aðstoða Bandaríkin gegn Íran. Þá hefur hann á sama tíma talað fallega um Kim Jong Un og staðhæft að hann sé vinur sinn. Samhliða þessari þróun og hernaðaruppbyggingu í Norður-Kóreu hafa Suður-Kóreumenn reynt að byggja upp eigin herafla og þróa ný vopn. Hergagnaiðnaður Suður-Kóreu þykir stór og ríkið framleiðir mikið magn vopna og hergagna á ári hverju. Að undanförnu hafa Suður-Kóreumenn lagt áherslu á að bæta hefðbundin vopn sín til að sporna gegn ógninni frá nágrönnum sínum.
Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira