Upp­gjörið: ÍA - Kefla­vík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni

Hjörvar Ólafsson skrifar
Breiðablik - ÍA  Bestadeild karla 2026
Breiðablik - ÍA Bestadeild karla 2026 vísir/Guðmundur

ÍA og Keflavík skildu jöfn,4-4, þegar liðin leiddu saman hesta sína í Akraneshöllina í lokaumferð Bestu-deildar karla í fótbolta í dag. 

Markús Páll Ellertsson, sem valinn var efnilegasti leikmaður deildarinnar, kom Skagamönnum yfir eftir um það bil tíu mínútna leik. Gísli Laxdal Unnarsson lagði þá boltann út á Markús Pál sem skoraði með hnitmiðuðu skoti. 

Markús Páll skoraði þarna sitt 15. mark í deildinni á þessari leiktíð en hann endaði sem næst markahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Aron Sigurðarsyni. 

Alpha Conteh jafnaði svo metin fyrir Keflavík skömmu síðar með stórglæsilegu marki. Gísli Laxdal Unnarsson endurheimti síðan forystuna fyrir Skagamenn um miðbik fyrri hálfleiks. 

Viktor Jónsson renndi þá boltanum á Gísla Laxdal sem kláraði færið með snotru skoti. Styrmir Jóhann Ellertsson breytti stöðunni í 3-1 nokkrum mínútum síðar. 

Styrmir Jóhann vann þá boltann af Alpha Conteh og vippaði boltanum laglega yfir Ásgeir Orra Magnússon í marki Keflavíkur. 

Eiður Orri Ragnarsson minnkaði muninn fyrir Keflavík stuttu fyrir lok fyrri hálfleiks með skallamarki sínu eftir fyrirgjöf frá Axel Ingja Jóhannessyni. 

Alpha Conteh jafnaði metin fyrir gestina frá Keflavík í upphafi seinni hálfleiks. Eiður Orri fann Alpha á vítateigshorninu og kantmaðurinn knái skoraði með skoti sem söng í samskeytunum fjær. 

Keflavík komst yfir, 4-3, með flottu skallamarki Axels Inga en hann stangaði boltann í netið eftir sendingu frá Baldri Loga Brynjarssyni. 

Gísli Eyjólfsson sá til þess að Skagamenn nældu í stig þegar hann jafnaði metin eftir undirbúning Markúsar Páls stundarfjórðungi fyrir leikslok. 

Niðurstaðan 4-4 jafntelfi í bráðfjörugum leik. Skagamenn hafna þar af leiðandi í fjórða sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2007. Keflavík hafði þegar náð sínum besta árangri frá árinu 2010.

Lárus Orri var að stýra sínum síðasta leik hjá ÍA í bili hið minnsta. ÍA

Lárus Orri: „Engin krafa frá stjórn um sæti í Evrópukeppni“

„Við vorum mun betri í fyrri hálfleik og hefðum átt að vera meira en einu marki yfir í hálfleik. Við mættum svo sofandi inn í seinni hálfleikinn og þeir ná forystunni. Það var gott að ná að jafna og ná allavega jafntefli úr því sem komið var,“ sagði Lárus Orri Sigurðarson, þjálfari ÍA, að leik loknum. 

„Við erum að ná besta árangri ÍA í 19 ár og það er býsna góður árangur. Við fjárfestum í þremur öflugum leikmönnum fyrir tímabil en verðum að sama skapi fyrir áföllum á tímabilinu og náum að vinna okkur í gegnum það. Tölfræðin sýnir að liðið er á réttri leið og jákvæð teikn á lofti hjá félaginu,“ sagði Lárus Orri. 

Tilkynnt var eftir leik að Lárusi Orra hafi verið sagt upp störfum hjá Skagamönnum eftir um það bil eitt og hálft ár í starfi. 

„Það var engin krafa um það frá stjórn á neinum tímapunkti að fara með liðið í Evrópukeppni. Ef það hefði verið uppi á teningnum þá hefði ég farið fram á það við stjórnina að liðið yrði styrkt,“ sagði hann um þau skilaboð sem hann hefði fengið frá stjórn félagsins. 

„Við erum til að mynda með Rúnar Má, sem var leiðtogi okkar þegar við snérum taflinu við á síðasta tímabili, meiddan meirihluta þessa tímabils. Fleiri lykilleikmenn voru að glíma við meiðsli. Samt sem áður endum við með besta árangur í tæpa tvo áratugi,“ sagði Lárus um stöðu mála. 

Haraldur Freyr: Viljum stabílísera liðið í efstu deild

„Leikurinn bar þess keim að þetta væri síðasti leikur tímabilsins og ekki mikið í húfi annað en þrjú stig og stolt. Við spiluðum heilt yfir bara vel og skorum fjögur góð mörk,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir leik. 

„Við erum vissulega súrir með að ná ekki að fara með sigur af hólmi eftir að hafa komist í 4-3 en göngum hins vegar þokkalega sáttir frá borði. Við erum að skilja við tímabil þar sem við endum í topp sex eftir að flestir spáðu öllu falli fyrir sumarið,“ sagði Haraldur Freyr þar að auki. 

Rætt og ritað hefur verið um framtíð Stefáns Alexaner Ljubicic sem raðaði inn mörkum fyrir Keflavík í sumar. Haraldur Freyr segir óvíst hvað verði um Stefán Alexander í framhaldinu. 

„Þegar það varð ljóst að við myndum lenda í efri helmingnum fórum við að búa okkur undir næsta tímabil og það er vinna hafin bakvið tjöldin í leikmannamálum. Það er óvíst hvað verður um Stefán og svo erum við með leikmenn í sigtinu sem ég get ekki sagt hvar stendur á þessum tímapunkti,“ sagði Haraldur. 

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur var sáttur með sína menn. Vísir/Viktor Freyr

Atvik leiksins

Úr mörgu að velja eftir þennan átta marka leik en Alpha Conteh gladdi augað mest með tveimur stórglæsilegum mörkum sínum. Annars fengu þeir sem lögðu leið sína í Akraneshöllina og borguðu sig inn mikið fyrir peninginn. 

Stjörnur og skúrkar

Axel Ingi skoraði eitt mark og lagði upp annað og átti góðan leik í hægri bakvarðarstöðunni. Alpha Conteh skoraði tvö glæsileg mörk. Eiður Orri spilaði svo vel í sínum síðasta leik fyrir Keflavík en hann átti lagði upp eitt mark og skoraði annað. 

Markús Páll braut ísinn fyrir Skagaliðið og átti eina stoðsendingu. Styrmir Jóhann átti góðan leik inni á miðsvæðinu og kórónaði flotta frammistöðu með marki sínu. 

Gísli Laxdal skilaði góðu dagsverki með marki og stoðsendingu áður en hann fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks. Gísli Eyjólfsson tryggði svo Skagliðinu stig með góðu marki sínu. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Gunnar Freyr Róbertsson, Kristofer Bergmann, Þráinn Jón Elmarsson og Elías Ingi Árnason dæmdu leikinn heilt yfir prýðilega og fá sjö í einkunn fyrir störf sín.

Stemming og umgjörð

Napurt en lygnt í Akraneshöllinni í dag. Þeir sem mættu í nepjuna fengu átta mörk í verðlaun fyrir þá seiglu að láta kuldann ekki stöðva sig í að mæta á leikinn. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira