Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. október 2026 13:54 Anne Carson var undrandi þegar henni barst símhringing frá sænsku Nóbelsnefndinni. Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum í morgun. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022 og hefur síðan þá búið hluta ársins hérlendis á heimili sínu á Ægisíðu. Carson sagði að það væri henni ráðgáta hvers vegna verðlaunin hefðu fallið henni í skaut.
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum voru tilkynnt klukkan 11 í morgun og bættist Anne Carson í hóp Íslendinga sem hlotið hafa bókmenntaverðlaunin ásamt Halldóri Laxness. Fréttamaður Ríkisútvarpsins tók viðtal við Anne fyrir utan heimili hennar skömmu eftir að hún fékk fréttirnar og áður en hún kom sér úr símasambandi. „Ég held að þau séu öll klikkuð,“ sagði Carson þegar fréttamaður Rúv spurði hana út í það hvernig henni liði með verðlaunin. Þegar Ingrid Carlberg, formaður Nóbelsnefndarinnar, greindi frá valinu í morgun sagðist hún hafa hringt í Carson sem var hissa á valinu og var að hlusta á vindinn þegar fregnirnar bárust. „Þú getur ekki annað en hlustað á vindinn hér. Við lifum á vindinum,“ sagði Carson við Rúv. „Næstum allir sem við hittum eru ljóðskjáld“ Carson sagði verðlaunin ekki hafa áhrif á það hvernig verkunum hennar væri tekið. „Ég skil ekki hvernig fólk heyrir hluti eða les hluti, ég vona bara að þeim líki við þá og kannski gera þau það. Kannski gerðu þau það í þetta skiptið en þetta er mér svolítil ráðgáta,“ sagði Carson. Hún sagði útgefanda sinn vona að þetta hafi áhrif á lesendahóp hennar. „Ég fæ límmiða framan á bækurnar mínar,“ sagði Carson og bætti við: „Límmiðar hjálpa“. Carson sagði samtal sitt við íslensku ljóðasenuna hafa haft áhrif á verk sín. „Þau eru öll frábært fólk,“ sagði hún um senuna. „Næstum allir sem við hittum eru ljóðskáld, eða svo segja þau. Já, þetta er mjög öflugt samfélag.“ Ljóðið gagnlegra því það sé stutt Carson var spurð út í Nóbelsverðlaunahafann Halldór Laxness, sagðist hafa lesið verk hans og bætti við að Brekkukotsannáll væri hennar eftirlætis verk eftir höfundinn. Hún gæti ekki sagt til um það hvort hún væri innblásin af verkum hans og þyrfti að hugsa betur um það. „Ég finn fyrir innblæstri í raunverulegu tungumáli. Ég er ekki að lesa hann í upprunalega tungumálinu sem hann skrifaði á, svo það er önnur upplifun. Innblásturinn verður að fara í gegnum þýddar setningar svo það er öðruvísi fyrir mig,“ sagði Carson. Laxness með Nóbelsverðlaunin ásamt íslenskum stúdínum. Hún læsi ekki mikla íslensku og værihæglæs á tungumálið. Þó nokkur ár eru liðin síðan Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fóru til höfundar sem skrifar fyrst og fremst ljóð. Hún gæti ekki sagt til um hlutverk ljóðlistar í heiminum. „Ég held að það [ljóðið] sé líklega gagnlegra en prósi akkúrat núna vegna þess að það er styttra og allir eru að flýta sér. Þannig ég held að það sé gott vegna þess að það er stutt, fyrir utan Hómer,“ sagði Carson. Í umsögn Nóbelnefndarinnar sagði að Carson hlyti verðlaunin fyrir „djarft og hugvitssamt höfundarverk sitt, sem væri í glettnu samtali við klassísku hefðina og hefði skapað ný form fyrir samtímabókmenntir.“ Þekktustu verk Carson eru bókmenntafræðiritið Eros the Bittersweet (1986), skáldsagan Autobiography of Red (1998) og ljóðasafnið Men in the Off Hours (2000). Tvö verka hennar hafa komið út á íslensku, skáldsagan Albertine-æfingarnar og sonnettusafnið Vör: Naumt skömmtuð sonnetta.
Menning Kanada Nóbelsverðlaun Bókmenntir Mest lesið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Sjá meira