Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. október 2026 12:21 Íbúar vilja ekki hafa hermennina á eynni. EPA Bandarískir hermenn sem eru á japönsku eyjunni Okinawa hafa verið settir í útgöngubann eftir að einn þeirra var sakaður um að hafa myrt og rænt konu á eyjunni.
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borginni Naha. Hann er einnig grunaður um að hafa tekið veski og bakpoka Yagi eftir morðið. Ballard neitar sök samkvæmt umfjöllun Reuters. Hún er talin hafa látist af köfnun. Starfsfólk hótelsins fann Yagi meðvitundarlausa í herbergi sínu snemma á laugardagsmorgun eftir að hún hafði ekki skráð sig út af hótelinu. Um tvö hundruð lögreglumenn komu að leit að manninum þar sem mynd náðist af honum úr öryggismyndavél hótelsins. Vegna þessa hafa allir hermennirnir verið settir í mánaðarlangt útgöngubann auk þess sem þeir mega ekki neyta áfengis. Þeim verður skylt að gangast undir sérstaka agaþjálfun. Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, sagði morðið „hrottalegt og svívirðilegt“. Hún sjálf hafi haft samband við fulltrúa Bandaríkjanna og krafist sérstakra ráðstafana til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Í Japan er stærsta herlið Bandaríkjanna utan heimalands þeirra og eru um átján þúsund hermenn á Okinawa-eyjunni. Bandaríkin voru með yfirráð yfir eyjunni frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar til ársins 1972. Fyrir var töluverð óánægja með viðveru bandaríska hersins á eyjunni sem er nærri Taívan og Kína og er þetta nýjasta málið í röð atvika. Auk mála sem varða hávaða og flugslys hefur framferði hermannanna einnig verið gagnrýnt. Árið 1995 nauðguðu þrír hermenn tólf ára gamalli stúlku og leituðu íbúar út á götu til að mótmæla veru þeirra á eynni. Stjórnvöld Japans og Bandaríkjanna telja viðveru hermannanna á eyjunni vera lykilatriði til að fæla Kína frá hugsanlegri árás. Eyjan er í um hundrað kílómetra fjarlægð frá Taívan.
Japan Bandaríkin Hernaður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira