Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Andri Broddason skrifar 6. október 2026 18:15 Það má segja að Merino hafi bjargað Spánverjum í leik kvöldsins. Francesco Scaccianoce/Getty Images Króatía tók á móti Spáni í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar. Króatía komst óvænt yfir í byrjun en Mikel Merino náði að skora tvö mörk og tryggja sigur fyrir Spán. Króatar mættu í leikinn með fullt sjálfstraust þrátt fyrir að hafa tapað stórt fyrir Englandi í síðasta leik. Ivan Perisic náði að koma heimamönnum í forystu strax á sautjándu mínútu gegn heimsmeisturum Spánar. Eftir að hafa lent undir héldu Spánverjar vel í boltann en áttu í erfiðleikum með að skapa sér færi og var þolinmæðin fyrir sóknarleiknum ekki mikil. Í seinni hálfleik kom Mikel Merino inn á völlinn en samt átti liðið erfitt með að skapa sér færi. Merino náði þó að nýta það litla sem gafst og kom Spáni í forystuna og eftir að hafa jafnað metin kom meira sjálfstraust í gestina frá Spáni. Þegar aðeins tíu mínútur voru eftir fékk markaskorarinn Peresic að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt og þurfti Króatía að spila manni færri það sem eftir var leiks. Spánverjar nýttu sér þetta og þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma náði Merino að bjarga sigri fyrir Spán. Liðið er því á toppi 3. riðils með fullt hús stiga eftir aðeins fjóra leiki. Þjóðadeild karla í fótbolta