La Gradiva hlaut Gullna lundann Agnar Már Másson skrifar 3. október 2026 18:47 Franska kvikmyndin La Gradiva fjallar um menntaskólanema sem skoða rústirnar í Popmpeii. En á ferðalagi þeirra fá tilfinningar þeirra að ráða för og úr verða óvæntir atburðir. Aðsend La Gradiva eftir Marine Atlan hlaut Gullna lundann, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni RIFF, en hann var afhentur í Háskólabíó í kvöld. Alls voru sex verðlaun veitt.
Stiklu úr La Gradiva má sjá hér að neðan. Í fréttatilkynningu frá hátíðinni er greint frá verðlaunahöfum hátíðarinnar en alls voru veitt sex verðlaun á hátíðinni. Stuttmyndin Left Behind eftir gríska leikstjórann Yannis Karpouzis hlaut í kvöld Gullna eggið, en þau verðlaun eru veitt fyrir stuttmyndir eftir upprennandi leikstjóra. Í umsögn dómnefndar segir að inn í frásögnina fléttist djúpar, einlægar, fortíðarþrungnar og stundum sársaukafullar tilfinningar sem spretti beint frá kvikmyndagerðarmanninum sjálfum. Myndin fjallar um ungan grískan aðgerðasinna sem ákveður að gera kvikmynd þar sem hún segir kærasta sínum að hún vilji hætta með honum. Kvikmyndin Til hamingju, fáviti eftir Orra Guðmundsson hlaut viðurkenningu fyrir bestu íslensku nemendastuttmyndina á hátíðinni. Myndin fylgir endurfundum tveggja gamalla vina og óvæntum afleiðingum þeirra. Dómnefnd taldi myndina vega saman húmor og dökkan, óróavekjandi undirtón og nota – að því er virðist – einfalda grunnfléttu til að kanna vináttu, öfund, karlmennsku, velgengni og heppni. Kvikmyndin Sundruð eftir Fan Sissoko hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina en um er að ræða teiknimynd sem fjallar um óvenjulega sundferð Neemu, ungrar konu af erlendum uppruna. „Með fallegri teiknimyndagerð kannar myndin reynsluna af því að koma inn í nýjan menningarheim og fóta sig í óskráðum félagslegum reglum sem allir aðrir virðast taka sem sjálfsögðum hlut. Um leið snertir hún á því, með fíngerðum og lágstemmdum hætti, hvernig fólk er gert framandi og því skipað utan hópsins,“ skrifar dómnefndin. Taxi Moto eftir Gael Kamilindi hlaut svo sérstaka viðurkenningu dómnefndar í flokki alþjóðlegra stuttmynda. „Falleg mynd um leikstjóra sem leitast við að vekja vitund um hvað það þýðir að vera svartur samkynhneigður karlmaður. Sú hugvitssama leið að skapa kvikmynd innan kvikmyndar gefur honum færi á að koma mikilvægum sjónarmiðum á framfæri um afar viðkvæmt og pólitískt viðfangsefni,“ skrifar dómnefndin. Nothing Happens After Your Absence eftir Ibrahim Omar hlaut verðlaun fyrir bestu alþjóðlegu stuttmyndina. „Ibrahim Omar veitir okkur innsýn í kvikmyndamenningu Súdans, lands sem við sjáum sjaldan kvikmyndir frá. Aðdáunarvert er hvernig honum tekst að gera pólitíska mynd um ástandið í heimalandi sínu án þess að verða ritskoðun að bráð,“ skrifar dómnefndin. Dómnefnd unga fólksins veitti síðan Club Kid eftir Jordan Firstman verðlaun. „Hún fékk okkur til að hlæja og gráta og sýndi okkur enn á ný að það sem hrífur áhorfendur umfram allt er góð saga,“ skrifar dómnefndin. Í flokknum önnur framtíð hlaut Do You Love Me eftir Lönu Daher sérstaka viðurkenningu, en If Luck Will Come eftir Camille Bildsøe var valin besta myndin í þeim flokki. „[If Luck Will Come] varpar ljósi á veruleika sem hefur að miklu leyti horfið úr alþjóðlegri umræðu: lífið í Afganistan eftir að talibanar tóku þar aftur völd. Með djúpri mannúð fangar hún seiglu barna sem tekst með einhverjum hætti að halda áfram að vera börn, jafnvel þótt heimurinn í kringum þau verði sífellt óvægnari og gefi þeim litla von um framtíðina.“ Í flokki Gullna lundans hlaut Chronovisor eftir Jack Auen og Kevin Walker sérstaka viðurkenningu. „Spennumynd? Morðgáta? Vísindaskáldskapur? Mynd sem stendur í virðulegri hefð greinamynda en tekst ef til vill að skapa nýja kvikmyndagrein? Undirgrein kennda við Gustav Holst, tónskáldið sem samdi hina seiðmögnuðu Plánetutónlist? Mynd sem drekkir okkur í tungumáli, orðum, ótal stafrófum og að lokum í abstraksjón. Spennandi og pirrandi í senn; mynd sem stenst engar af þeim væntingum sem áhorfendur kunna að gera sér. Hún er tekin á dökka, grófkornótta 16 mm filmu sem ljær henni drungalegt og dularfullt yfirbragð og nær til tilfinninganna með kaldhæðni og leikgleði. Mynd sem sannarlega ber með sér nýja sýn,“ skrifar dómnefndin. Að lokum var komið að Gullna lundanum, aðalverðlaunum hátíðarinnar, en þau verðlaun hlaut La Gradiva eftir Marine Atlan. „Fyrir einstakt tilfinninganæmi og hæfileikann til að fanga ósagða strauma milli fólks heiðrar dómnefndin verk sem rýnir af næmni í æsku og vitundarvakningu og dregur upp marglaga persónumyndir af fjölbreyttum hópi,“ skrifar dómnefndin. „Djúpt mannleg saga sem snertir við kvikunni og fléttar grófkornóttar ljósmyndir úr fortíðinni listilega inn í frásögnina og veitir okkur þannig innsýn í átakaþrungna sögu. Leikstjórinn hafnar ódýrri tilfinningasemi. Þess í stað sýnir hún hinu sterka, rafmagnaða tilfinninganæmi ungra persóna sinna virðingu þar sem þær takast á við þrá, berskjöldun og dauðleika með ævaforna borg að bakgrunni. Þannig skapar hún fíngerð tengsl milli fortíðar og nútíðar, hins hverfula og hins eilífa.“
Bíó og sjónvarp RIFF Kvikmyndahús Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira