FH - ÍBV 5-0 | Stór­sigur FH sem lagaði markatöluna

Smári Jökull Jónsson skrifar
FH þarf á sigri að halda til að halda í við Breiðablik á toppi Bestu deildarinnar.
FH þarf á sigri að halda til að halda í við Breiðablik á toppi Bestu deildarinnar. Anton/Vísir

FH vann öruggan 4-0 sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Kaplakrika í Bestu deild kvenna í dag. FH er þó áfram þremur stigum á eftir Breiðabliki í toppbaráttunni en tókst að laga markatölu sína með sigrinum stóra í dag.

Leikurinn hófst af miklum krafti og á fyrstu tveimur mínútunum fengu bæði liðin tækifæri til að skora. Það leið ekki á löngu þar til fyrsta markið kom, það gerði Nia Raisa Christopher á 5. mínútu þegar hún kláraði vel í hornið úr vítateignum.

Aðeins tveimur mínútum seinna var hún síðan aftur á ferðinni. Sandra Voitane tapaði boltanum við endalínuna í eigin teig og Ingibjörg Magnúsdóttir kom boltanum fyrir markið. Þar átti Hrönn Haraldsdóttir misheppnað skot sem Nia náði á fjærstönginni og kom boltanum fram hjá Guðnýju.

Eyjakonur vildu rangstöðu og Nia leit út fyrir að vera rangstæð en þar sem Sandra var enn þá á endalínunni eftir að hafa tapað boltanum þá spilaði hún hana réttstæða.

FH fékk fleiri færi það sem eftir var af fyrri hálfleik og í eitt skipti varði Guðný Geirsdóttir afar vel þegar Hrönn komst í gott færi. Eyjakonur áttu líka hættulegar sóknir en það vantaði herslumuninn til að breyta þeim í alvöru færi.

Avery Vanderven og Mackenzie Smith þurftu síðan báðar að fara af velli fyrir leikhlé eftir að hafa skallað saman í teignum. Báðar fóru þær af velli vafðar um höfuðið en Eyjamenn á bekknum voru ósáttir við að fá ekki vítaspyrnu og vildu meina að Vanderven hefði verið á undan í boltann og Smith síðan tekið hann niður.

Seinni hálfleikurinn hófst líkt og sá fyrri með marki frá FH. Það skoraði Helena Errington úr teignum þar sem hún var ein á auðum sjó og aftur var það Ingibjörg sem átti stoðsendinguna.

Tólf mínútum síðar fullkomnaði Nia Christpher þrennuna þegar hún kláraði afar vel fram hjá Guðnýju eftir sendingu Errington. Alvöru framherjamark.

Úrslitin í leiknum voru auðvitað löngu ljós þarna. Bæði lið gerðu breytingar og Jón Ólafur Daníelsson þjálfari gerði meðal annars fjórfalda breytingu um miðjan hálfleikinn. Hann fékk síðan rautt spjald fyrir mótmæli á bekknum þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir.

Leikurinn virtist ætla að fjara hægt og rólega út eftir þetta en Nia Christopher bætti sínu fjórða marki við á lokasekúndum uppbótartímans. Lokatölur 5-0 og mikilvægur stórsigur FH staðreynd sem þar með tókst að laga markatöluna gagnvart keppinautum sínum í Breiðabliki.

Lengi vel leit reyndar út fyrir að FH myndi lyfta sér á topp deildarinnar með þessum sigri þar sem Blikar lentu 3-0 og 4-1 undir gegn Þrótti í Kópavoginum. Blikar sneru hins vegar dæminu við og unnu að lokum 5-4 sigur í ótrúlegum leik og halda því þriggja stiga forskoti þegar tvær umferðir eru eftir.

Atvik leiksins

Þriðja mark FH í upphafi síðari hálfleiks kláraði leikinn í raun. ÍBV hafði átt sína sénsa í fyrri hálfleiknum og hefðu þær náð að minnka muninn í 2-1 er aldrei að vita hvað hefði gerst.

FH skoraði hins vegar eftir rúmlega mínútu í síðari hálfleiknum og gerði út um vonir Eyjakvenna um að ná einhverju úr leiknum.

Stjörnur og skúrkar

Nia Raisa Christopher er stórstjarna þessa leiks. Hún skoraði fjögur af fimm mörkum FH og er komin með tólf mörk í Bestu deildinni. Þetta var frábær frammistaða og gríðarlega mikilvægt fyrir FH að hún haldist heit í pásunni sem fram undan er áður en síðustu tvær umferðirnar verða spilaðar.

Þá er vert að minnast á frammistöðu Ingibjargar Magnúsdóttur á hægri kantinum. Hún lagði upp tvö mörk, átti þátt í því þriðja og var sífellt ógnandi.

Það er erfitt að taka til einhvern skúrk í dag, FH-liðið spilaði vel og Eyjakonur spiluðu heilt yfir ekki nægilega vel.

Dómarinn

Það er þetta atvik í fyrri hálfleik þegar Avery Vanderven og Mackenzie Smith meiðast. Vanderven er klárlega á undan í boltann þegar hún fær Smith á sig. Þetta var ekkert viljaverk en Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV sagði í viðtali eftir leik að í hans huga hafi verið um vítaspyrnu að ræða. Þá vildi hann einnig fá víti fyrir hendi í teignum fyrr í leiknum.

Við látum sérfræðingana um að meta þetta en frammistaða dómara er vissulega alltaf metin, hvort þeir dæmi rétt í stóru atriðum leikjanna.

Stemmning og umgjörð

Það var ágætis mæting hjá FH í dag og umgjörðin fín sömuleiðis. FH á í harðri baráttu um titilinn og vonandi að Hafnfirðingar fylki sér á bak við liðið fyrir tvær síðustu umferðirnar í deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira