Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. september 2026 18:00 Um 4.000 manns sáu Þróttara vinna sig upp í Bestu deildina í dag. vísir/Anton Þróttur Reykjavík mun leika í Bestu deild karla í fótbolta, í fyrsta sinn síðan 2016, eftir 1-0 sigur á Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli í dag. Það var ljóst við mætingu í Laugardalinn hvað væri undir í dag. Góðum 45 mínútum fyrir leik var fólk byrjað að streyma í stúkuna og ljóst að mörg voru að gera sér glaðan dag. Ekki skemmdi veðrið fyrir en miðað við að það sé komið á síðari hluta septembermánaðar var veðrið upp á tíu komma fimm. Aron Snær Ingason fagnar sigurmarki Þróttar sem sendi liðið upp í Bestu deildina.vísir/Anton Hvað leikinn varðar þá voru hér að mætast tveir heldur ólíkir leikstílar. Annars vegar Þróttur með sitt flæðandi spil á meðan Fylkir vill spila örlítið skipulagðari leik og ekki til í að lyfta jafn mörgum mönnum hátt á völlinn. Leikurinn hófst á þá vegu að Þróttur var meira með boltann og var líklegra til afreka. Þrátt fyrir að engin alvöru dauðafæri hafi litið dagsins ljós þá voru Þróttar að mörgu leyti óheppnir að vera ekki með forystu í hálfleik. Í tvígang hafði boltinn flogið í gegnum markteig Fylkis án þess að Þróttari væri þar. Þá höfðu þeir ekki nýtt góðar stöður til að skapa sér almennielg færi. Besta færið fékk jötuninn Njörður Þórhallsson eftir skalla frá bróður sínum, Hlyn, á fjærstöng í kjölfar hornspyrnu Kára Kristjánssonar. Njörður þurfti hins vegar að teygja sig í boltann og skjóta í fyrsta. Niðurstaðan að boltinn flaug himinhátt yfir markið. Njörður lét að sama skapi til sín taka í eigin vítateig og skallaði - eða hreinsaði - ótal margar fyrirgjafir Fylkis í fyrri hálfleik. Staðan var hins vegar markalaus þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Fyrirliðinn Baldur Hannes Stefánsson hefur verið lykilmaður hjá Þrótti.vísir/Anton Árbæingar mættu beittari út til síðari hálfleiks og ljóst að Heimir Guðjónsson hafði látið sína menn heyra það. Þá gerði hann tvær breytingar á sínu liði sem bættu leik liðsins til muna, allavega í upphafi síðari hálfleiks. Eftir það náðu Þróttarar aftur tökum á leiknum. Aron Snær Ingason átti skot í stöngina eftir frábæran sprett frá miðju og Örn Bragi Hinriksson átti gott skot úr teignum sem Ólafur Kristófer Helgason varði meistaralega. Markvarsla sem myndi sóma sér vel í Bestu deildinni. Aron Snær braut svo loks ísinn umtalaða á 78. mínútu leiksins. Þróttur lék frábærlega sín á milli fyrir utan teig Fylkis og boltanum var svo stungið í gegnum vörn Árbæinga. Þar var varamaðurinn Tryggvi Snær Geirsson allt í einu mættur í frábært færi, Ólafur Kristófer kom á móti honum svo Tryggvi Snær gerði það eina rétta í stöðunni. Hann renndi botlanum fyrir markið þar sem Aron Snær svo gott sem tæklaði hann inn við mikinn fögnuð Þróttara í stúkunni. Staðan orðin 1-0 og reyndust það lokatölur á Laugardalsvelli. Þróttur mun því leika í Bestu deild karla (og kvenna) á næstu leiktíð. Til hamingju Þróttarar. Sigurvin Ólafsson hefur gert frábæra hluti í Laugardalnum og er nú kominn með Þrótt upp í efstu deild.vísir/Anton Atvik leiksins Það verður að vera sigurmark leiksins. Einfalt og gott. Stjörnur og skúrkar Aron Snær er augljós stjarna dagsins. Frábær leikmaður sem á heima í efstu deild. Þá voru margir sem léku virkilega vel í liði Þróttar. Sérstakt hrós fær Njörður í vörn Þróttar fyrir að stöðva hverja fyrirgjöf Fylkis á fætu rannarri meðan hann var inn á vellinum. Skúrkurinn er svo sóknarleikur Fylkis í heild sinni. Þetta var ekki upp á marga fiska. Umgjörð og stemmning Það var ljóst að það voru hundrað milljónir undir. KSÍ fær hrós fyrir góða umgjörð sem og stuðningshópar beggja liða þó öll lög um bókasöfn og jarðarfarir verða að fara hætta. Dómarinn Fín dómgæsla að mörgu leyti en eflaust má finna eitthvað að ef skoðað er í þaula. Fylkir vildi vissulega fá vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins og þá er umræða um hvort mark Þróttar hafi verið rangstaða en það sást ekki úr blaðamannastúkunni. Íslenski boltinn Lengjudeild karla Besta deild karla Fylkir Þróttur Reykjavík