Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2026 08:32 Rúmenar leita leiða til að koma í veg fyrir svona öskur á börn og dómara í leikjum yngri flokka. Getty/Jordan Mansfield Foreldrar sem fara yfir strikið með hegðun sinni og köllum á fótboltaleikjum yngri flokka í Rúmeníu geta nú átt á hættu að svarta spjaldið fari á loft. Þá er leik einfaldlega hætt og gamanið á enda fyrir alla.
Rúmenska knattspyrnusambandið er það fyrsta í heiminum til þess að kynna svarta spjaldið til leiks, í baráttu sinni fyrir því að ungir iðkendur fái að njóta þess að spila fótbolta án of mikilla afskipta foreldra og annarra áhorfenda. Svarta spjaldið er raunar bara nýjasta skrefið í þeirri baráttu. Svarta spjaldið verður notað í öllum aldursflokkum frá 7-16 ára og hefur þegar verið tekið í notkun. Rúmenska sambandið segir að ekki sé hægt að líða það að börn séu fórnarlömb metnaðar, pressu og pirrings fullorðinna áhorfenda. Nýju reglurnar um svarta spjaldið skiptast í þrjú skref: 1. skref – Viðvörun: Dómarinn stöðvar leikinn tímabundið og biður þjálfarana að tala beint við sína eigin stuðningsmenn eða foreldra svo að ólætin stöðvist þegar í stað. Þar sem kallkerfi er til staðar verða tilkynningar einnig sendar til áhorfenda. 2. skref – Tímabundin 10 mínútna stöðvun leiks: Ef hegðunin heldur áfram frestar dómarinn leiknum í 10 mínútur og sendir liðin í búningsklefana. Á þessum tíma munu þjálfarar aftur reyna að draga úr hegðun áhorfenda. 3. skref – Svarta spjaldinu veifað og leikur flautaður af: Ef móðgandi hegðun heldur áfram eftir að leikur hefst að nýju flautar dómarinn til leiksloka. Leikurinn er endanlega flautaður af og ekki er hægt að hefja hann að nýju. Hegðun sem valdið getur svarta spjaldinu getur beinst að öllum þátttakendum leiksins, hvort sem er leikmönnum, dómurum, þjálfurum eða öðrum áhofendum. Með þessu segist sambandið vera að berjast gegn sársaukafyllstu „brotunum“ í yngri flokka fótbolta, sem séu pressa og leiðindi frá foreldrum og öðrum áhorfendum. Öll knattspyrnufélög í Rúmeníu hafa fengið sérstak plaköt og borða með upplýsingum um það hvernig foreldrar skuli haga sér á leikjum. Áður hefur hvert lið, í öllum aldursflokkum, þurft að tilnefna foreldri sem ljúka skal námskeiði í barnavernd og hefur eftirlit með hegðun foreldra. Á síðustu leiktíð fór rúmenska sambandið líka af stað með „Þagnardaginn“ í U13 og U14-deildunum. Þá fá liðin að spila án þess að nokkur megi kalla inn á völlinn, hvorki þjálfarar né foreldrar, í þeirri von að krakkarnir læri að taka sínar ákvarðanir sjálf og njóti þess að spila fótbolta án þess að eiga sífellt von á aðfinnslum þeirra fullorðnu.
Fótbolti Krakkar Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira