Fótbolti

De Bruyne gerði gæfu­muninn gegn Mikael Agli og fé­lögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mikael Egill Ellertsson í baráttunni við André-Frank Zambo Anguissa í leiknum í kvöld.
Mikael Egill Ellertsson í baráttunni við André-Frank Zambo Anguissa í leiknum í kvöld. getty/Giuseppe Maffia

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn þegar Genoa laut í lægra haldi fyrir Napoli, 0-2, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrrverandi fyrirliði Manchester City breytti gangi mála eftir að hann kom inn á.

Staðan var markalaus þegar Kevin De Bruyne kom inn á sem varamaður á 67. mínútu.

Stundarfjórðungi síðar braut hann ísinn fyrir gestina. Heimamenn voru æfir og vildu að markið yrði dæmt af þar sem þeir töldu De Bruyne hafa brotið á Johan Vásquez. Eftir myndbandsskoðun var það dæmt gilt.

De Bruyne var aftur á ferðinni á 87. mínútu þegar hann lagði boltann á Antonio Vergara sem skoraði annað mark Napoli.

Gestirnir frá Suður-Ítalíu fögnuðu sigri í fyrsta deildarleiknum undir stjórn Massimilianos Allegri en hann tók við Napoli af Antonio Conte í sumar.

Í upphafsleik ítölsku úrvalsdeildarinnar sigruðu meistarar Inter Monza, 4-1. Hakan Calhanoglu, Piotr Zielenski, Pio Esposito og Yann Bisseck skoruðu mörk Inter.

Þá vann Cagliari 0-1 útisigur á Parma og Udinese og Como skildu jöfn, 1-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×