„Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2026 08:03 Breiðablik hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu þremur leikjum. vísir/guðmundur Albert Ingason varð fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu Breiðabliks í tapinu fyrir Þór í Bestu deild karla. Hann hefur ekki hrifist af Blikum í sumar og segir biðina eftir bikarúrslitaleiknum enga afsökun fyrir slakri spilamennsku.
Breiðablik beið lægri hlut fyrir nýliðum Þórs á Akureyri í fyrradag, 1-0. Blikar eru í 4. sæti Bestu deildarinnar, sjö stigum á eftir KR-ingum, sem eru í 3. sætinu, og sjö stigum á undan Keflvíkingum, sem sitja í 5. sæti. Breiðablik mætir Aftureldingu í bikarúrslitaleiknum 11. september. Baldur Sigurðsson segir erfitt fyrir Blika að finna hvatningu fyrir leikina um þessar mundir en Albert gaf lítið fyrir það. „Finnst þér þetta bara nýbyrjað að gerast? Fyrir utan fyrsta leikinn á móti Víkingi þar sem þeir vörðust vel og allt það finnst mér þetta hafa verið mjög flatt hjá þeim allt tímabilið, löngu áður en þeir komust í þennan bikarúrslitaleik. Þetta er búið að vera mikið upp og niður,“ sagði Albert í Stúkunni í gær. Klippa: Stúkan - umræða um Breiðablik „Þeir voru búnir að fá tíu stig í síðustu fjórum leikjum á undan þessum en ekkert af þessu var sannfærandi. Þetta voru allt leikir sem gátu dottið báðum megin og meira að segja smá rán á móti Keflavík. Þessi úrslit voru alltaf á leiðinni, bara miðað við spilamennsku.“ Fengið lítið á markaðnum Albert segir að Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, hafi ef til vill ekki fengið að styrkja Blikaliðið nóg. „Ég vil gefa Óla það, hann er ekki búinn að fá mikið á markaðnum. Hann fær Ívar Örn [Árnason] fyrir tímabilið. Jónatan [Guðni Arnarsson] er svona framtíðarleikmaður. Svo núna er Hlynur [Freyr Karlsson] kominn inn. Maður sér að það vantar smá upp á leikform þar. Ég gef honum líka það að það eru búin að vera meiðsli. Aron [Bjarnason], Kristófer [Ingi Kristinsson], Höskuldur [Gunnlaugsson] og núna meiðist Viktor Karl [Einarsson],“ sagði Albert. „Hins vegar er engin Evrópa á þessu tímabili og leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur. Það er það sem maður sér mest í þessu liði. Við töluðum um leikinn á móti Keflavík, þar sem var 0-0 og þeir voru að gefa boltann til baka undir lokin.“ Væru í fallbaráttu ef ekki væri fyrir Anton Albert segir að eldri leikmenn Breiðabliks séu farnir að láta á sjá. Það eigi þó blessunarlega ekki við um markvörðinn Anton Ara Einarsson því án hans væri staðan slæm. „Máttarstólpar í liðinu. Kristinn Jónsson, hann er 36 ára. Maður sér að það er farið að hægjast vel á honum. Höskuldur er meiddur, Kiddi Steindórs er 36 ára og kominn með lítið hlutverk. Viktor Karl, ég veit að hann meiðist í þessum leik, hann er 29 ára en hann er farinn að spila eins og hann sé 39 ára. Aron Bjarna hefur verið meiddur en verið flottur sem og Kristófer,“ sagði Albert. „En ef við erum að tala um þessa stóru, stóru leikmenn, ef Anton Ari, sem er klárlega einn af máttarstólpunum í þessu liði, væri ekki búinn að spila eins og hann er búinn að spila í sumar væri Breiðablik bara í fallbaráttu. Það er ekkert annað. Þessi úrslit koma mér ekkert á óvart. Það er fullt af svona leikjum hefði getað dottið hinum megin, sérstaklega af þessum tíu stigum sem þeir hafa sótt síðustu fjórum leikjum. Þetta er bara rosalega flatt.“ Þá er ekkert að þessu tímabili Baldur bar blak af Blikunum og sagði að ekki væri hægt að kvarta mikið ef liðið héldi 4. sætinu og yrði bikarmeistari. Honum finnst Breiðablik ekki vera með leikmannahóp til að berjast um Íslandsmeistaratitilinn. „Þeir eru ekki með lið og hóp til að veita Víkingi, Fram og KR samkeppni og það er alveg rétt sem þú segir að góðu leikmennirnir þeirra, máttarstólparnir, eru að eldast,“ sagði Baldur. „En það er hægt að ná meiru út úr þessu Breiðabliksliði, ég hef alveg trú á því. Og það er það sem Ólafur Ingi þarf að gera núna fram að þessum bikarúrslitaleik. En þeir hafa líka verið mjög óheppnir með meiðsli, ef ég fer inn á það, þá hafa verið margir meiddir. Þannig að 4. sæti og bikarúrslit, ef þeir klára það, þá er ekkert að þessu tímabili,“ sagði Baldur. Umræðuna um Breiðablik má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Breiðablik Stúkan Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Dagskráin í dag: Geta bætt upp fyrir leikinn á Laugardalsvelli Sport Fleiri fréttir Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Sjá meira