De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 22:46 Luis de la Fuente ræðir við sína leikmenn í einu drykkjarhléinu í undanúrslitaleiknum á móti Frökkum. Getty/Carl Recine Luis de la Fuente, þjálfari Spánar, sagði að lið sitt „teldi sig vera ósigrandi“ eftir að hafa komist í úrslitaleik heimsmeistaramótsins með 2-0 sigri á Frakklandi.
Vítaspyrna frá Mikel Oyarzabal í fyrri hálfleik og annað mark frá Pedro Porro eftir hlé tryggðu Spáni verðskuldaðan sigur í undanúrslitaleiknum. Eftir leikinn sendi De la Fuente viðvörun til mótherja sinna í úrslitaleiknum, Argentínu, og fullyrti að leikmenn hans myndu mæta fullir sjálfstrausts til leiks í New York á sunnudag eftir yfirburðasýningu gegn liðinu sem talið var sigurstranglegast fyrir mótið. „Við teljum okkur ósigrandi,“ sagði De la Fuente á blaðamannafundi eftir leikinn. „Frakkar mættu besta liði heims. Við höfum þetta forskot. Þessir leikmenn eiga allt skilið því dag eftir dag sýna þeir skuldbindingu sína, örlæti, samstöðu og hæfileika,“ sagði De la Fuente. "We were facing one of the best teams in the world, but today they were facing THE BEST TEAM in the world."@MikeGrella10, Nigel Reo-Coker, @T_Deeney and @marcelobalboa17 react to Luis de la Fuente's post-victory comments 🇪🇸 pic.twitter.com/hrPmPv6PIW— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) July 14, 2026 „Það er dásamlegt að horfa á þá spila. Í dag var þetta sjónarspil. Það sem virðist erfitt lætur þetta lið líta út fyrir að vera auðvelt,“ sagði De la Fuente. Þetta var 37. leikur Spánverja í röð án þess að tapa og liðið jafnaði þar með met evrópskrar þjóðar í landsleikjum karla sem er í eigu Ítala frá 2018-21. Heimsmeistaramót Spánar hófst á fremur slakan hátt með óvæntu markalausu jafntefli gegn Grænhöfðaeyjum í opnunarleik riðlakeppninnar. En í útsláttarkeppninni hafa þeir sigrað Portúgal, Belgíu og Frakkland og aðeins fengið á sig eitt mark, og De la Fuente sagði að lið sitt hefði fundið sitt besta form á hárréttum tíma. „Við vissum að við þyrftum að bæta okkur smátt og smátt. Við hefðum gjarnan viljað vinna fyrsta leikinn en þetta er ferli. Það var planað að við myndum ná okkar besta formi á lykilaugnablikum. Við erum í frábæru formi og hvað varðar fótboltastig okkar höfum við náð hátindi,“ sagði De la Fuente. Sigurinn á þriðjudag var þriðja sumarið í röð sem Spánn sigrar Frakkland í undanúrslitaleik á stórmóti. Lamine Yamal skoraði í 2-1 sigri í undanúrslitum Evrópumótsins 2024, aðeins dögum fyrir 17 ára afmæli sitt, og spænska landsliðið vann Frakka líka 5-4 í Þjóðadeildinni á síðasta ári. Spain manager Luis de la Fuente has now managed more games across the FIFA World Cup and UEFA European Championship without ever losing than any other manager, winning 13 times and drawing once 🇪🇸👏 pic.twitter.com/nqW1TUadFp— Match of the Day (@BBCMOTD) July 14, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Sjá meira