Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik Árni Gísli Magnússon skrifar 12. júlí 2026 21:05 Hallgrímur Mar Steingrímsson og Danijel Djuric létu til sín taka í kvöld. vísir/Guðmundur KA vann dramatískan 3-2 sigur á ÍA á Greifavellinum á Akureyri í þrettándu umferð Bestu deildar karla. Skagamann leiddu 2-0 eftir rúman klukkutíma en þá hófst endurkoma norðanmanna sem var fullkomnuð í blálok leiksins. Óvenju mikið hvassviðri var á Akureyri í dag sem hafði töluverð áhrif á spilamennsku liðanna. Lítið var um opin færi í fyrri hálfleik en nokkur hálffæri komu á báða bága fyrsta hálftímann eða svo. Skagamenn brutu ísinn með skallamarki á 38. Mínútu. Rúnar Már Sigurjónsson tók hornspyrnu frá hægri og Gísli Eyjólfsson var óvaldaður á nærstönginni og skallaði boltann laglega í fjærhornið. Skagamenn með eins marks forystu í hálfleik. Í síðari hálfleik var aðeins farið að lægja og fótboltinn sem boðið var upp á gæðameiri fyrir vikið. Ómar Björn Stefánsson og Gísli Eyjólfsson fengu báðir fín færi í upphafi hálfleiksins sem nýttust ekki og þá slapp Sveinn Margeir Hauksson einn í gegn stuttu síðar en Jón Sölvi Símonarson í marki Skagamanna sá við honum. Á 59. mínútu fengu Skagamenn vítaspyrnu. Gísli Eyjólfsson átti skalla framhjá en Steinþór Már Auðunsson í marki KA kom út til að reyna kýla boltann en endaði með lúkurnar í höfði Gísla og vítaspyrna réttilega dæmd.Rúnar Már Sigurjónsson tók spyrnuna og skoraði. Skagamenn komnir með tveggja marka forystu. Leikurinn var nýfarinn af stað aftur þegar KA menn svöruðu. Upp úr engu átti Sveinn Margeir bylmingsskot af löngu færi og boltinn söng í netinu. Sveinn Margeir var svo aftur á ferðinni á 73. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Daniel Dejan Djuric og staðan jöfn, 2-2. Bæði lið leituðu að sigurmarki sem skilaði árangri fyrir heimamenn, því að á sjöttu mínútu uppbótartíma fengu KA menn dæmda vítaspyrnu eftir að Daniel Dejan Djuric féll í teignum eftir átök við Jón Gísla Eyland. Á punktinn steig hinn sparkvissi Hallgrímur Mar en Jón Sölvi varði spyrnuna en Hallgrímur Mar var vel vakandi og náði frákastinu og skilaði boltanum í netið og tryggði KA mönnum dýrmæt þrjú stig. Atvik leiksins Vítaspyrnan í lokin. Jón Gísli og Djuric eru að kljást í teignum á meðan þeir bíða eftir að boltinn berist í teiginn og Djuric fellur við og vítaspyrna dæmd. Jón Sölvi ver spyrnuna en Hallgrímur skorar úr frákastinu og KA fær þrjú stig eftir að hafa tapað sex leikjum í röð. Stjörnur og skúrkar Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvö mörk og var það fyrra sérstaklega glæsilegt.Danijel Dejan Djuric leggur upp mark og sækir víti í lokin og var ferskari í dag en í flestum leikjum KA hingað til. Jón Sölvi Símonarson átti hörku leik í marki ÍA þrátt fyrir að fá á sig þrjú mörk. Ver vítið í lokin en er óheppinn að Hallgrímur nær frákastinu og skorar.Gísli Eyjólfsson var góður í dag og í raun óheppinn að skora bara eitt mark. Jón Gísli Eyland endar sem skúrkurinn þar sem hann fær dæmt á sig víti í lokin en svo eru auðvitað skiptar skoðanir með vítadóminn. Dómarinn Mér fannst Gunnar Freyr oft á tíðum vera flauta að óþörfu á einhver smávægileg brot hér og þar sem veldur því einfaldlega að menn vilja fá brot á nánast allt í leiknum. Fyrri vítaspyrnudómurinn er tvímælalaust réttur – Steinþór einfaldlega kýlir mann í staðinn fyrir bolta. Seinni vítaspyrnudómurinn er eflaust umdeildari en Jón Gísli er klaufalegur að halda svona utan um Djuric sem fellur við. Lárus Orri Sigurðsson sagði í viðtali eftir leik að Djuric hafi einfaldlega dýft sér en dæmi hver fyrir sig. Stemning og umgjörð Nokkuð vel mætt á Greifavöllinn og smá stuðningshópur frá Skagamönnum líka sem var gaman að sjá. Hallgrímur: „Gaman að sjá Grímsa karlinn klára þetta í lokin“ „Mér líður augljóslega bara mjög vel, bara æðislegt“, sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir dramatískan endurkomusigur gegn ÍA á Greifavellinum í kvöld. „Fótbolti getur verið ótrúlegur, í síðustu umferð stöndum við okkur vel og töpum á síðustu mínútu og núna stóðum við okkur líka vel. Ég var mjög ánægður með okkur í fyrri hálfleik og bara mjög sáttur að landa þessu og líka bara karakterinn að koma til baka, við lendum 2-0 undir eftir tvö mörk sem eru svona maður er ekkert voða hrifinn að fá svona mörk á sig ef við erum bara heiðarlegir og klúðra færu og svona. Skaginn gerði vel, fórum aðeins ofar og þá fannst mér þeir finna smá svæði en 2-1 við trúum á þetta, 2-2 það erum við sem sækjum sigurinn í staðinn fyrir að fara halda þessu og æðislegt að sjá þá klára þetta í lokin.“ Hallgrími fannst það ekki gefa rétta mynd af leiknum að ÍA væri 2-0 yfir eftir tæpan klukkutíma leik. „Mér fannst það ósanngjörn staða, ég held að ÍA fái frekar fleiri færi eftir mörkin. Mörkin koma þannig einhvern veginn, ég sá það nú ekki alveg, en á einhvern ótrúlegan hátt fá þeir horn þegar við erum að gefa til baka á markmann og mark upp úr því og seinna náttúrulega bara hefði Stubbur (Steinþór Már Auðunsson) viljað gera betur en hann veður út og hann nær að skalla og fáum á okkur víti og þá vorum við nýbúnir að klúðra dauðafæri einn á móti markmanni þannig þetta svona lyktaði af liði sem einhvern veginn hlutir ganga á móti en þú velur hvernig þú tekur því og við ákváðum að halda áfram og sýna karakter eins og við höfum gert. Virkilega sætt á móti erfiðu Skagaliði, þeir skipta líka inn á hérna í lokin bara hörku leikmönnum, Viktor Jónsson frammi og þetta gat farið á báða vegu en við vildum keyra á þetta og sem betur fer tókst það í dag.“ Loksins sigur Fyrir leikinn í dag hafði KA tapað sex leikjum í röð og ætti sigurinn því að næra liðið vel fyrir komandi átök. „Já það er klárt mál. Það er ekki flókið, við erum búnir að fá of fá stig finnst okkur og þó við höfum unnið í dag og erum ánægðir þá vöknum við á morgun og hugsum um næsta leik. Við þurfum að bæta okkur, mér fannst frammistaðan í dag flott. Mér fannst frammistaðan í síðasta leik frábær en það er ekkert launungamál að við þurfum að gera betur. Við þurfum allir að hafa fókus á réttum stöðum. Unnum í dag, æðislegt, þrjú stig á töfluna en við þurfum að halda áfram að bæta okkur af því við viljum ekki vera þarna neðarlega.“ Sveinn Margeir Haukson skoraði tvö góð mörk í dag en hann var aðeins kominn með eitt mark hingað til í sumar. „Annað var skot fyrir utan teig og hitt skallamark og komst í annað færi þannig það er bara frábært. Við þurfum að fá fleiri sem skora mörk og hann setti tvö í dag og svo er gaman að sjá Grímsa (Hallgrím Mar Steingrímsson) karlinn klára þetta í lokin.“ Djuric vaxandi Danijel Dejan Djuric hefur átt erfitt uppdráttar hjá KA en lagði upp mark í dag ásamt því að sækja vítaspyrnuna undir lok leiks sem sigurmarkið kom upp úr. „Það er bara þannig. Hann er búinn að vera vaxa, hefur tekið aðeins lengri tíma en við vonuðumst til, en það snýst um að halda haus og halda áfram að vinna vel og hann er ekki bara með stoðsendingu heldur fær hann víti í lokin. Hann klárar hlaupið á 90. mínútu alveg inn í teig og fær víti þannig að bara frábært fyrir hann og gott fyrir KA.“ KA mætir íBV úti í Eyjum í næstu umferð og fór Hallgrímur fögrum orðum um Eyjaliðið. „Gaman. Mér fannst mjög gaman að spila við þá hérna heima. Þá voru þeir ekki búnir að fá mikið af stigum en þegar ég horfi á leikina fannst mér þeir mjög flottir. Mér fannst þeir flottir í spilinu og þeir eru með boltann en við hérna á heimavelli og þegar þá var komið og ekki búnir að fá stig þá var bara eitt lið búið að vera með boltann meira en þeir. Þannig mér finnst þeir hafa verið mjög flottir í sumar á boltann. Vantar kannski eitthvað bit fram á við hjá þeim, það er komið, fengu fyrirliðann inn og farnir að skora þannig það verður bara hörku skemmtilegur leikur og þeir spila flottan fótbolta og við ætlum að fara þarna. Mér finnst alltaf gaman að fara til Eyja og við ætlum að fara þarna fullir sjálfstrausts eftir síðustu tvær frammistöður og reyna ná okkur í nokkur stig.“ KA ÍA Besta deild karla