Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Árni Jóhannsson skrifar 9. júlí 2026 22:10 Emil Atlason skoraði öll þrjú mörk Stjörnumanna í kvöld. Vísir/Diego Stjarnan vann 3-1 sigur á Víkingi frá Götu í Færeyjum í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar í Garðabænum í kvöld.Emil Atlason hefur verið duglegur að skora í Evrópukeppninni og hélt uppteknum hætti í kvöld. Stjarnan skartaði mjög smekklegum búningum í kvöld.Vísir / Diego Stjörnumenn lentu undir í fyrri hálfleik en Emil svaraði með tveimur mörkum, fyrst úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og svo með skalla í þeim síðari. Emil fiskaði síðan víti og skoraði úr því sjálfur. Þrenna í Evrópuleik og því Evrópu-Emil mikið réttnefni.Stjörnumenn voru mun betra liðið og gátu unnið enn stærri sigur í kvöld. Jóhann Árni með skot sem fór í varnarmann.Vísir / Diego Bæði liðin mættu orkumikil til leiks í kvöld og úr varð fínasta skemmtun. Heimamenn náðu að virkja kantmenn sína til að valda usla á meðan gestirnir frá Færeyjum voru þéttir til baka og reyndu að beita skyndisóknum. Bárður á Reynatrøð sem stóð á milli stanganna fyrir Víking átti virkilega góðan leik, kom í veg fyrir að Stjarnan næði forystu og kom síðar í veg fyrir að sigur heimamanna yrði stærri. Bárður á Reynatröð gerði oft vel. Úthlaup hans voru þó oft glæfraleg en þau virkuðu.Vísir / Diego Stjarnan fór illa með nokkur færi og fannst örugglega illa að sér vegið þegar Víkingur náði forystunni á 12. mínútu. Þá tók Aron Benjaminsen hornspyrnu sem var skölluð frá en Aron fékk boltann aftur. Kom hann sér inn fyrir vítateigshornið hægra megin og skrúfaði boltann í samkeytin fjær. Óverjandi og stuðningsmenn Víkings ærðust úr gleði. Aron Benjaminsen fremstur í mynd eftir stórkostlegt mark þeirra.Vísir / Diego Stjarnan reyndu eins og þeir gátu til að jafna metin fljótt en náðu ekki að halda orkunni uppi eins og fyrstu mínútur leiksins. Þeir voru betra liðið en gestirnir vörðust með miklum dug. Vörnin brást þó á 42. mínútu. Örvar Eggertsson að sækja vítið í fyrri hálfleik.Vísir / Diego Örvar Eggertsson komst þá í gegnum línuna, einn á móti markverði og potaði hann boltanum fram hjá Bárði og tók höggið sem fylgdi þegar markvörðuinn felldi hann. Klárt víti og Emil Atlason gerði sig kláran í að taka vítið. Hann smurði boltanum niðri í vinstra hornið og það skipti engu máli þó að Bárður færi í rétt horn. Hann er ekki nógu langur til að ná í boltann. Emil Atlason að smyrja honum í fyrra vítinu sínu.Vísir / Diego Staðan var því jöfn í hálfleik en Stjörnumenn líklega fegnir að hafa náð í það minnsta einu marki inn. Mikið jafnræði var með liðunum fyrstu augnablikin í seinni hálfleik. Ekki var jafnmikil orka í liðunum og fátt gerðist. Stjarnan tók svo völdin í leiknum og fóru að þjarma Víking í Götu. Birnir Snær Ingason var sérstaklega aðgangsharður en Bárður á Reynatrøð sá við honum ítrekað og ef ekki hann þá var það markramminn sem kom í veg fyrir að Birnir næði að skora. Emil Atlason hinsvegar náði að setja fleiri mörk sem tryggðu Stjörnunni góða stöðu fyrir seinni leikinn. Birnir Snær Ingason hefði vel getað skorað í dag en þetta skot fór í slána.Vísir / Diego Á 66. mínútu gaf Benedikt Warén frábæra sendingu inn á vítateig gestanna og þar sveif Emil hæst. Bárðu ætlaði að vaða út í boltann, hikaði og tapaði því einvígi. Emil skallaði boltann yfir markmanninn og kom Stjörnunni yfir. Emil að skora annað mark sitt.Vísir / Diego Þegar 12 mínútur lifðu af leiknum gulltryggði Emil svo sigur í þessum fyrri leik. Hann fékk boltann við vítateigslínuna og spólaði af stað og framhjá varnarmanni Víkings. Brugðið var fæti fyrir framherjann og vítaspyrna dæmd. Emil fór sjálfur á punktinn og afgreiddi spyrnuna með sama hætti og sama niðurstaða fékkst. Emil á leiðinni að smyrja honum inn í seinna vítinu sínu.Vísir / Diego Stjarnan hefði vel getað bætt við mörkum en eru sáttir við að taka tveggja marka forskot til Færeyja og ættu að hafa næg gæði til að klára einvígið. Víkingur í Götu virkaði þungt í seinni hálfleik og réðu lítið við kraftmikinn sóknarleik Stjörnunnar í dag. Atvik leiksins Annað mark Stjörnunnar var mikilvægt og létti líklega þungu fargi af Garðbæingum. Stjörnumenn fóru illa með mörg færi og Emil Atlason gerði seinustu mínúturnar ögn léttari fyrir sína menn. Stjörnur og skúrkar Örvar Eggertsson og Birnir Snær Ingason voru virkilega sterkir á köntunum fyrir heimamenn í dag. Emil Atlason er að sjálfsögðu maður leiksins og Benedikt Warén gerði vel í að koma sínum mönnum í góðar stöður. Varnarleikurinn hélt líka vel og gestirnir skoruðu úr eiginlega eina færi sínu í dag. Stjörnur dagsins.Vísir / Diego Ef Stjarnan hefði tapað eða gert jafntefli í dag hefði verið hægt að draga þessa menn sem ég nefndi í skúrkadálkinn. Þeir sleppa við það í dag. Bárður á Reynatrøð reyndist þeim oft og tíðum erfiður og besti leikmaður Víkings í dag. Umgjörð og stemmning 710 áhorfendur í dag, þar af 70 frá Færeyjum og létu allir vel í sér heyra. Skemmtilegt var að sjá Gunnar Vatnhamar og Niko Hansen, leikmenn Víkings frá Reykjavík, styðja Víking í Götu. Gunnar var að horfa á bróður sinn Sölva takast á við Stjörnuna. Stuðningsmenn Víkings í gír.Vísir / Diego Það er komin mikil Evrópureynsla í Garðabæinn og umgjörðin til fyrirmyndar. Stuðningsmenn Stjörnunnar kunna á Evrópuleikina.Vísir / Diego Dómarinn Mohammad Usman Aslam frá Noregi sá um dómgæsluna í dag. Hann gerði vel en bæði vítin sem Stjarnan fékk voru rétt en mögulega hefði hann átt að gefa gestunum líka eitt víti þegar Jakup Johansen var dreginn niður í vítateig Stjörnunnar. Mohammed var samt í góðri stöðu og handviss um að ekkert hafi verið að þessu. Mohammad Usman Aslam að leggja línurnar.Vísir / Diego Viðtöl: Jón Þór: Með ólíkindum að hafa ekki skorað fleiri í dag Jón Þór Hauksson gat verið ánægður eftir leik.Vísir / Diego Þjálfari Stjörnunnar, Jón Þór Hauksson, var ánægður með leikinn í dag en hefði viljað fleiri mörk. Hann var spurður að því hvort þessi frammistaða og úrslit hafi ekki verið vel ásættanleg. „Jú, frábær sigur. Mér fannst Stjörnuliðið frábært hérna í dag, við lentum í smá basli í byrjun og það var áfall að lenda undir í leiknum og við vorum í smá brasi með skyndisóknirnar þeirra. Við ræddum það í hálfleik en svo tókum við öll völd á leiknum eftir það og það er með ólíkindum að við höfum ekki skorað fleiri mörk í þessum leik.“ Hvað klikkaði þá, hvað hefði Stjarnan getað gert betur? „Markmaðurinn þeirra var frábær og Birnir með frábært skot í slána. Í þessum færum þá vantaði bara herslumuninn. Það er með ólíkindum að við skildum ekki skora fleiri og vinna stærri sigur. Spilamennska Stjörnuliðsins var frábær í kvöld fannst mér.“ Eru einhver áhyggjuefni fyrir seinni leikinn? „Það er bara þetta. Þetta er hörkulið og þetta er hörkuleikur og þeir eru með gæði í sínu liði. Við þurfum að taka aðeins betri stjórn á ákveðnum þáttum leiksins. Þannig að það er annar hörkuleikur út í Færeyjum í næstu viku og við þurfum að mæta klárir í það.“ Sambandsdeild Evrópu Stjarnan