Norska landsliðið flúði hótelið sitt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 19:24 Erling Braut Haaland og félagar hans í norska landsliðinu eru búnir að finna sér betra hótel í Miami. Getty/ Buda Mendes Norðmenn ákváðu að flytja af hótelinu sem þeim hafði verið úthlutað fyrir komandi leik sinn á heimsmeistaramótinu í Miami. „
Við höfum skipt um hótel. Það voru atriði þar sem við gistum fyrst sem við hefðum gjarnan viljað hafa öðruvísi. Við ákváðum að lokum að grípa til aðgerða, því nú erum við komin í sjöttu viku og eigum að vera hér í heila viku,“ sagði Truls Dæhli, liðstjóri Noregs á HM, við norska ríkisútvarpið. Leikmenn norska liðsins tóku sig saman og báðu um að skipta um hótel en mikið var um truflanir á þeirra fyrra hóteli. Lyfta var meðal annars biluð og framkvæmdir í næsta nágrenni. „Leikurinn sem við eigum að spila núna er stærsti leikur sem við höfum nokkurn tíma spilað. Nú höfum við náð að forðast leiða og pirring og við vildum ekki hætta á að fá neitt slíkt á þessu tímabili. Þess vegna gerðum við breytingu,“ staðfesti Dæhli við NRK. Norge byter hotell i Florida.https://t.co/uSVB25IBy3 pic.twitter.com/naNZ3tFImS— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) July 8, 2026 Þeir gripu til aðgerða eftir aðeins eina nótt en TV 2 í Noregi greindi fyrst frá málinu. Í útsláttarkeppninni er það FIFA sem ber ábyrgð á að útvega hótel fyrir þátttökuþjóðirnar. Dæhli hrósaði Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, fyrir samstarfsvilja í þessu máli. „Það er mikilvægt að benda á að við fengum FIFA með okkur í lið, sem var algjörlega nauðsynlegt. Þannig er það enn þannig að FIFA borgar fyrir fimmtíu herbergi, alla öryggisgæslu, allar samgöngur, eins og þeir gera á öðrum FIFA-hótelum. Þeir hafa verið frábærlega hjálpsamir,“ sagði Dæhli. Hann segir að norska sambandið borgi mismuninn fyrir hótelskiptin, þar sem þeir skipta yfir á dýrara hótel. „En við teljum að það sé góð ástæða til að gera það,“ sagði Dæhli. ⚽️ 🇳🇴 Lot of journos waiting for Norway media availability in Ft Lauderdale. @MiamiHerald @HeraldSports #WorldCup #Norway pic.twitter.com/A4VAsh07qM— Michelle Kaufman (@kaufsports) July 8, 2026 Dæhli segir að hann viti ekki á stundinni hvaða upphæð NFF þurfi að greiða en hvað var það sem var ekki nógu gott á hinu hótelinu? „Ég vil ekki fara út í smáatriði varðandi það. Við vildum breytingar, það var ekki mögulegt þar sem við gistum, þá urðum við að leita annað,“ segir hann. Sjálfur flutningurinn hafi átt sér stað á þriðjudagskvöld. „Þetta var gríðarleg sjálfboðavinna en við höfum marga sterka einstaklinga í stuðningsteyminu. Við vorum komin út og inn á tveimur og hálfum tíma. Ég veit ekki fjölda farangurseininga en þetta er vel gert,“ sagði Dæhli og norska liðið er ánægt með nýja hótelið. „Við erum mjög ánægð, núna búum við á fínum stað, við sjáum hafið og höfum það fínt. Við erum ekki búin að borða morgunmat, en þetta virkar vel,“ sagði Dæhli. Norðmenn mæta Englendingum í átta liða úrslitum HM á laugardaginn kemur en leikurinn hefst klukkan 21.00 að íslenskum tíma. Norway players unanimously vote to change World Cup hotel due to unsatisfactory conditions https://t.co/qBVRyHvBXA— talkSPORT (@talkSPORT) July 8, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fleiri fréttir „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Sjá meira