Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2026 17:01 Erling Haaland og Martin Ödegaard verða báðir hvíldir í úrslitaleik riðilsins í kvöld. Getty/Jussi Eskola Norski landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken hefur tekið stóra ákvörðun fyrir leik liðsins á móti Frakklandi í kvöld. Þetta er úrslitaleikur um sigur í riðlinum en hann ætlar að spara sínar tvær stærstu stjörnur og í raun hvíla næstum því allt byrjunarliðið.
Norskir fjölmiðlar höfðu grafið þetta upp í dag og norska ríkisútvarpið slær því upp að þetta gæti endað illa fyrir norska landsliðið í kvöld. Norðmenn hafa unnið tvo fyrstu leiki sína á heimsmeistaramótinu og skorað í þeim sjö mörk. Liðið er öruggt með sæti í 32 liða úrslitunum en tap þýðir leik á móti Fílabeinsströndinni í 32 liða úrslitum og leik á móti sigurvegaranum úr leik Brasilíu og Japans í sextán liða úrslitunum. Solbakken stillti upp sama byrjunarliði í sigrunum á Írak og Senegal. Norska ríkisútvarpið fékk heimildir um það að hvorki fyrirliðinn Martin Ödegaard né varafyrirliðinn Erling Braut Haaland byrji leikinn gegn Frakklandi. NRK hafði líka fengið upplýsingar um að Solbakken hefði skipt næstum öllum út og að Fredrik Aursnes væri sá eini sem eftir væri úr leiknum gegn Senegal. „Það er alveg rétt hjá Solbakken að gera svona margar breytingar. En á sama tíma verður þetta gríðarlega stórt verkefni fyrir lið sem hefur aldrei spilað saman að vera kastað út í HM gegn sjálfum Frökkum,“ sagði Kristoffer Løkberg, fótboltasérfræðingur NRK. „Þetta gæti orðið harkalegt, en á sama tíma eru í liðinu einstaklingar sem ég hlakka til að sjá, sérstaklega Bobb og Schjelderup, þeir eru í góðu formi og geta sent inn umsókn þegar alvaran verður meiri,“ sagði Lökberg enn fremur. Því er samstarfsmaður hans og sérfræðingur NRK, Carl-Erik Torp, ekki sammála. „Það er algjörlega galið ef þetta reynist rétt,“ segir hann í upphafi. „Þetta gæti orðið ljótt. Ég hefði haldið að fleiri myndu fá að spila sig saman, að Ödegaard myndi til dæmis spila fyrri hálfleikinn. Nú sjá allir að þessi leikur er algjört aukaatriði,“ sagði Torp. Í franska stórblaðinu L'Équipe hafa þeir svarað spurningum lesenda fyrir leikinn. Þar svarar hinn reyndi blaðamaður Hugo Delom fréttum af væntanlegri liðsuppstillingu Noregs á þennan hátt. „Norðmennirnir voru ekki að blekkja. Þeir ætla virkilega að stilla upp B-liðinu sínu! Ég er í hreinskilni sagt hissa,“ skrifar hann.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira