Upp­gjörið: FH - ÍBV 1-1 | Eyja­menn gefast aldrei upp

Kolbeinn Kristinsson skrifar
Úlfur Ágúst í baráttu um boltann við Lúkas Loga Heimisson fyrr á tímabilinu.
Úlfur Ágúst í baráttu um boltann við Lúkas Loga Heimisson fyrr á tímabilinu. vísir/guðmundur

FH og ÍBV skildu jöfn, 1-1, í 12. umferð Bestu deildar karla á Kaplakrikavelli í dag.

Úlfur Ágúst Björnsson kom FH yfir snemma leiks með góðum skalla eftir hornspyrnu Kjartans Kára, en Omar Sowe jafnaði metin fyrir ÍBV strax í upphafi síðari hálfleiks eftir heldur klaufalegt atvik hjá vörn FH.

FH beit frá sér og Úlfur braut ísinn

Heimamenn byrjuðu leikinn af ágætum krafti og náðu forystunni strax á 11. mínútu. Kjartan Kári tók þá hornspyrnu frá vinstri og setti boltann beint á kollinn á Úlfi Ágústi Björnssyni sem stangaði knöttinn í netið og kom Fimleikafélaginu í 1-0.

FH-ingar héldu áfram að ógna og voru hársbreidd frá því að tvöfalda forystuna á 28. mínútu. Kjartan Kári fékk þá boltann úti vinstra megin, færði sig inn á hægri fótinn og lét vaða, en markvörður ÍBV var vel á tánum og varði skotið í stöngina.

Þar skall hurð nærri hælum fyrir Eyjamenn, sem héldu þó út og fóru aðeins einu marki undir til búningsherbergja.

Omar kom inn og breytti leiknum samstundis

ÍBV kom af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og það tók gestina aðeins örfá augnablik að jafna metin. Omar Sowe, nýkominn inn á völlinn sem varamaður, pressaði sendingu inn fyrir vörn FH. Jökull markvörður heimamanna kom út á móti og sparkaði boltanum hálfpartinn í Omar og þaðan í netið, blanda af klaufaskap og óheppni.

Hvílík byrjun á síðari hálfleiknum hjá Eyjamönnum sem voru skyndilega komnir inn í leikinn að nýju.

Gestirnir héldu áfram að sækja á og á 52. mínútu var Vicente Valor nálægt því að koma ÍBV yfir. Hann átti þá skot í stöngina eftir sterkan kafla Eyjamanna, sem voru óheppnir að nýta ekki meðbyrinn betur.

Fleiri mörk litu þó ekki dagsins ljós og niðurstaðan varð 1-1 jafntefli í Kaplakrika. Leikur þar sem bæði lið fengu sín færi til að taka öll stigin, en þurftu að lokum að sætta sig við eitt stig hvort.

Atvik leiksins. Nautsterk innkoma hjá Omar Sowe og jöfnunarmarkið hans eftir tæpa mínútu í síðari hálfleik er atvik leiksins að mínum dómi.

Stjörnur og skúrkar. Úlfur Ágúst var flottur með mark og Kjartan Kári var alltaf skeinuhættur með sínar spyrnur og átti sömuleiðis eina stoðsendingu í dag. 

Hjá ÍBV fær Omar Sowe klárlega útnefningu fyrir sína innkomu og jöfnunarmarkið strax í upphafi síðari hálfleiks. Varnarmenn FH réðu lítið við hann satt best að segja. Þá var Vicente Valor sömuleiðis drjúgur á miðsvæðinu.

Dómarinn. Fín afgreiðsla í dag hjá Helga Mikael og hans teymi. Baráttuleikur sem fékk heilt yfir að fljóta ágætlega og stóru ákvarðanirnar voru eftir bókinni. Einkunn átta sléttir.

Stemning og umgjörð. Það var hin prýðilegasta stemning í Kaplakrika. Það mátti vissulega og í raun nokkuð auðveldlega finna laus sæti í stúkunni, en harðasti kjarninn var sannarlega mættur, þ.e. þeir sem láta hvorki deildarstöðu né sunnudagsró stoppa sig. Veðrið var milt, umhverfið skartaði sínu fegursta og umgjörðin í Hafnarfirði var öll eins og best verður á kosið. Þar á öflugur fjölmiðlafulltrúi heimamanna ekki síst skilið sérstakt hrós fyrir fumlaus og fagleg vinnubrögð.

Ísak Óli Ólafsson í leik með FH. Vísir/Bára Dröfn

Ísak Óli: „Við eigum bara að vinna þennan leik“

Ísak Óli Ólafsson, fyrirliði FH, var svekktur jafntefli liðsins í dag.

FH leiddi 1-0 í hálfleik en fékk á sig jöfnunarmark strax í upphafi síðari hálfleiks. Ísak Óli sagði niðurstöðuna vera mikil vonbrigði.

„Já, gífurlegt svekkelsi í dag. Mér fannst við bara flottir í dag. Auðvitað voru einhverjir kaflar þar sem við hefðum getað gert betur, en varnarlega fannst mér þeir ekki skapa neitt í dag. Við eigum bara að vinna þennan leik,“ sagði Ísak Óli eftir leik.

Jöfnunarmark ÍBV kom eftir aðeins um 40-50 sekúndur í síðari hálfleik, þegar gestirnir settu boltann fram völlinn og Omar Sowe nýtti sér vandræðagang í vörn FH.

„Þeir setja bara fram og það er einhver glórulaus hugmynd í okkur og einhvern veginn endar þetta í markinu. Ég þarf að sjá þetta aftur og skoða hvað ég hefði getað gert betur, en þetta var glórulaust,“ sagði Ísak.

Hann sagði markið ekki hafa slegið FH-liðið alveg út af laginu, þrátt fyrir að það hafi breytt leiknum.

„Þetta var náttúrulega baráttuleikur og eitthvað svona getur gerst. Mér fannst við ekki hengja haus eftir það,“ sagði fyrirliðinn.

FH hefur nú leikið þrjá leiki í röð án taps en stigasöfnunin hefur engu að síður verið dræm. Ísak segir liðið þurfa að halda áfram að byggja ofan á frammistöðuna.

„Við þurfum bara að halda áfram. Það er ekkert sem við getum gert við því að vera að svekkja okkur endalaust. Stigasöfnunin hefur verið dræm í sumar, en það hafa verið góðar frammistöður inn á milli og við erum bara að byggja ofan á þær,“ sagði Ísak.

Næsta verkefni FH er heimaleikur gegn Stjörnunni og fyrirliðinn segir Hafnfirðinga ætla sér sigur þar.

„Við erum enn þá í þessu. Þetta var annar heimaleikurinn í röð og það eru þrír í viðbót. Garðbæingar mæta hingað næst og það verður hörkuleikur sem við ætlum að vinna,“ sagði Ísak Óli að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira