Leik lokið: Breiða­blik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð

Kolbeinn Kristinsson skrifar
Vinstri bakvörðurinn Helgi Guðjónsson fór á kostum í kvöld og skoraði tvö lagleg mörk.
Vinstri bakvörðurinn Helgi Guðjónsson fór á kostum í kvöld og skoraði tvö lagleg mörk. vísir/Diego

Íslandsmeistarar Víkings styrktu stöðu sína á toppi Bestu deildar karla í kvöld með frábærum 4-1 sigri gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Víkingar hafa nú unnið tólf deildarleiki í röð eftir jafnteflið við Blika í 1. umferð.

Víkingar eru nú með níu stiga forskot á næsta lið, KR, sem þó á leik til góða. Leikurinn fór fram í kvöld vegna þess að Víkingur og Breiðablik mætast svo að nýju á sunnudaginn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins, þegar 12. umferð Bestu deildarinnar heldur áfram.

Vinstri bakvörðurinn Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark Víkings í kvöld á 8. mínútu og einnig fjórða markið, á 75. mínútu, eftir að Aron Elís Þrándarson skoraði á 63. mínútu og Gylfi Þór Sigurðsson úr víti skömmu síðar.

Hinn 15 ára Arnar Bjarki Gunnleifsson náði að klóra í bakkann fyrir Breiðablik með marki annan leikinn í röð en það dugði skammt.

Uppgjörið og viðtöl koma hér inn innan skamms...

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira