Vance þreifar fyrir sér í Sviss Agnar Már Másson skrifar 21. júní 2026 08:16 Vonast er eftir einhverjum þreifingum á fundi milli Bandaríkjanna og Írana í Sviss, en J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna lenti þar í morgun. AP Bandaríski varaforsetinn J.D. Vance lenti í Sviss í morgun en þar eiga friðarviðræður milli Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Obbürgen seinna í dag, þrátt fyrir að íranski herinn hafi tilkynnt í gær að Hormússundi yrði lokað að nýju. Bandaríkjamenn segja að enn virðist opið fyrir skipaumferð um sundið.
Íranir vilja meina að ástæðan fyrir lokun sundsins sé sú að Bandaríkjamenn hafi brotið vopnahléssamkomulag, þar sem þeir vísa til þess að Ísraelsmenn hafi ekki látið af árásum í sunnanverðu Líbanon. Bandaríkjaher hefur aftur á móti sagt að skipaumferð flæði enn um sundið og því sé ekki að sjá að því sé lokað. Hormússund er ein mikilvægasta olíuflutningaleið heims og hefur lokun þess haft hækkandi áhrif á heimsmarkaðsverð olíu. Lögreglumenn fyrir utan Burgenstock-hótelið í Obbürgen í Sviss, skammt frá Lucerne.AP Þessir verða á fundinum Íranska sendinefndin lenti í gær en þar eru í fararbroddi þeir Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti íranska þingsins, og Abbas Aragchi, utanríkisráðherra Íran. Þá munu pakistanskir milligöngumenn, þar á meðal forsætisráðherrann Shebaz Sharif og yfirherforinginn Asim Munir, sitja fundinn. Íranski utanríkisráðherran Abbas Araghchi er mættur til Obbürgen.AP Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, hélt til Sviss í nótt til þess að eiga í viðræðum við Írani. Auk þess er Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, þegar kominn til Sviss. Líbanon veikur hlekkur Bandaríkjamenn og Íranir höfðu þegar komist að sextíu daga rammasamkomulagi sem átti að greiða leið fyrir friðarviðræður í von um að binda enda á stríðið. Í því samkomulagi fólst meðal annars krafa Bandaríkjamanna um opnun Hormússunds og krafa Írana um að átökum myndi linna á öllum vígum í Mið-Austurlöndum, þar á meðal átökum í Líbanon. Átök Ísraelshers og Hezbollah í Líbanon hafa reynst veikur hlekkur í þessu samkomulagi en Ísraelsher hefur ekki viljað yfirgefa landið. Samkvæmt umfjöllun ríkismiðils Líbanon í gær féllu hið minnsta ellefu manns fallið í árásum af hálfu Ísraelshers umhverfis Nabatieh í Líbanon. Ísraelsher sagðist hafa ráðist á tugi skotmarka sem herinn sagði tengjast Hezbollah í kjölfar þess að vígahópurinn hefði skotið ríflega fimmtíu eldflaugum að ísraelskum hermönnum í Líbanon.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Ísrael Líbanon Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira