Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Gunnar Berg Stefánsson skrifar 21. júní 2026 21:07 Breiðablik - Þór Besta Deild Karla Vor 2026 vísir/Diego Breiðablik unnu sterkan 3-1 sigur á KA á Kópavogsvelli í kvöld í frekar jöfnun leik. Liðin skiptust á höggum áður en Breiðablik reyndust beittari á lokakafla leiksins. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn þar sem bæði lið áttu sína kafla og færi. Arnar Bjarki Gunnleifsson var nálægt því að koma Blikum yfir strax á þriðju mínútu með glæsilegri bakfallsspyrnu sem fór naumlega, framhjá á meðan Oliver Heiðarsson fékk ágætt tækifæri hinum megin. Markalaust var í hálfleik en fjörið hófst fyrir alvöru eftir hlé. Á 58. mínútu nýtti Ágúst Orri Þorsteinsson mistök Markúsar Mána Péturssonar í vörn KA sem var of ákafur og missti af Ágústi sem slapp einn í gegn og renndi boltanum í netið milli fóta Steinþórs Más Auðunssonar. Gestirnir svöruðu hins vegar vel og jöfnuðu aðeins fimm mínútum síðar þegar Danijel Dejan Djuric fann Birgi Baldvinsson með góðri sendingu og framherjinn potaði boltanum í netið af stuttu færi. Danijel Djuric fann þar sína fyrstu stoðsendingu í Bestu deildinni fyrir KA. Leikurinn var í járnum þar til á 74. mínútu þegar Óli Valur Ómarsson tók málin í sínar hendur. Hann skar inn af kantinum eftir laglegan undirbúning og smellti boltanum í fjærhornið með glæsilegu skoti. KA fékk svo gullið tækifæri til að jafna metin á 82. mínútu þegar Birgir Baldvinsson slapp í gegn, en skot hans hafnaði í hliðarnetinu. Sú mínúta reyndist dýrkeypt því aðeins þremur mínútum síðar skoraði Arnar Bjarki Gunnleifsson sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk Breiðabliks og gulltryggði heimamönnum stigin þrjú. Blikar höfðu því betur 3-1 og náðu í afar mikilvægan sigur eftir sveiflukenndan kafla í deildinni. Fyrir KA heldur erfitt gengi hins vegar áfram þrátt fyrir að liðið hafi aftur sýnt ágæta takta á köflum. Atvik leiksins Færið sem Birgir Baldvinsson fékk í stöðunni 2-1. Bakvörðurinn sem var hættulegasti leikmaður KA í kvöld slapp í gegn en skot hans endaði í hliðarnetinu úr að vísu ágætlega þröngu færi. Þremur mínútum síðar skoraði Breiðablik þriðja markið og gerði út um leikinn. Stjörnur og Skúrkar Óli Valur Ómarsson skoraði stórglæsilegt mark til að koma heimamönnum yfir þegar leikurinn var hnífjafn. Einnig var hinn ungi Arnar Bjarki Gunnleifsson flottur. Hann fékk erfitt verkefni að byrja þennan mikilvæga leik og launaði það með sínu fyrsta marki fyrir Breiðablik þar sem boltinn barst óvænt til hans í teig gestanna þar sem hann setur knöttinn fram hjá Steinþóri og skorar þriðja mark heimamanna. Umgjörðin Frábært veður í Kópavogi og góðar aðstæður. Um var að ræða mikilvægan leik fyrir bæði lið og var vel mætt í stúkuna. Það var ákveðin hópur stuðningsmanna Breiðabliks sem lét vel í sér heyra mest allan leikinn Besta deild karla Breiðablik KA
Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn