Menning

Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár

Freyja Þórisdóttir skrifar
Fjallkonan er þjóðartákngervingur Íslands en kona í gervi fjallkonunnar kom fyrst fram á Íslendingadeginum í Winnipeg í Kanada 1924. Árlega stíga fjallkonur um land allt á stokk á 17. júní.
Fjallkonan er þjóðartákngervingur Íslands en kona í gervi fjallkonunnar kom fyrst fram á Íslendingadeginum í Winnipeg í Kanada 1924. Árlega stíga fjallkonur um land allt á stokk á 17. júní. Samsett mynd

Fjallkonurnar í ár, á áttatíu og tveggja ára afmæli Lýðveldisins, voru hver annarri glæsilegri en frá lýðveldisstofnun hefur það verið hefð að kona í hlutverki fjallkonunnar flytji ávarp fyrir hátíðargesti á þjóðhátíðardaginn.

Fjallkonan er tákn Íslands en hún var fyrst nefnd í kvæði Bjarna Thorarensen, Eldgamla Ísafold, sem var ort á fyrsta áratug 19. aldar. Hugmyndin um konu sem tákn Íslands kom þó fram fyrr, í kvæði Eggerts Ólafssonar, Ofsjónir, frá árinu 1752.

Vísir hefur tekið saman fjölda fjallkvenna sem fluttu ávarp á 17. júní í ár frá hinum ýmsu sveitarfélögum og bæjum landsins. Stuðst var við vefsíður sveitarfélaga og samfélagsmiðlafærslur.

Blár kyrtill er vinsælasti þjóbúningurinn meðal fjallkvennanna árið 2026 þó einnig megi sjá skautbúninga, svarta og hvíta kyrtla og upphluti.

„Við þurfum að ræða málin“

Leikkonan og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir var fjallkonan í Reykjavík ár. Hún var í glæsilegum skautbúningi, sem er árið um kring í vörslu Árbæjarsafns, og við hann er stokkbelti með víniðarmunstri úr silfri og brjóstnæla í stíl. 

„Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin.“ Svona hófst ávarp eftir Braga Valdimar Skúlason sem Elín Hall flutti á Austurvelli. Vísir/Lýður

Hún flutti ávarp eftir Braga Valdimar Skúlason sem hófst með orðunum: „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin.“

Spítalinn heiðraður á stórafmælinu

Gunnhildur Sigurðardóttir var fjallkona Hafnarfjarðar 2026. Hún flutti Vígsluljóð á Ráðhússviðinu en á vef Hafnafjarðarbæjar segir að í ár hafi verið heiðruð merk saga St. Jósefsspítala sem fagni hundrað ára afmæli sínu þann 5. september. 

Gunnhildur flutti 100 ára ljóð eftir Stefán frá Hvítadal sem var flutt við vígslu St. Jósefsspítala 5. september árið 1926.Annríki þjóðbúningar og skart

„Í heila öld hefur St. Jó staðið vörð um líf, líðan og von. Í veggjum hans búa minningar kynslóða og í sögu hans speglast saga Hafnarfjarðar,“ segir á vefnum. Gunnhildur þekkti vel til á spítalanum þar sem hún starfaði sem hjúkrunarforstjóri í fjörutíu ár.

Útskrifaðist sama dag og hún flutti ávarpið

Anna María Antonsdóttir útskrifaðist úr Mennaskólanum á Akureyri þann 17. júní og stefnir suður í nám í haust. Anna María, flutti ávarp fjallkonunnar í Lystigarðinum á þjóðhátíðardaginn, en hún var einnig Akureyringur vikunnar sem nú leið.

Fjallkonan Anna María Antonsdóttir, nýstúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, ásamt bæjarstjóranum Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.Vísir/Viktor

Anna María Antonsdóttir hefur nám við Leikhússkóla Þjóðleikhússins í haust og stefnir síðar á nám við Listaháskóla Íslands.

Hefð að heimsækja safnið að lokinni dagskrá

Fjallkona Suðurnesjabæjar 2026 var Una Rós Gísladóttir. Skapast hefur sú hefð að fjallkonan hverju sinni heimsæki byggðasafnið eftir að hátíðardagskrá lýkur en hátíðardagskráin á 17. júní var haldin í Garði að þessu sinni.

Una heimsótti byggðasafnið á Garðskaga að lokinni hátíðardagskránni en þar er meðal annars hægt að fara inn í og skoða Garðskagavita frá 1944, oft kallaðann Lýðveldisvitann.Facebook/Byggðasafnið á Garðskaga

Hún las ljóðið ,,Landið flokkar ekki fólk" eftir Bubba Morthens, úr ljóðabókinni Velkomin, á hátíðinni en árið 2019 flutti Aldís Amah Hamilton sama ljóð þegar hún var fjallkona Reykjavíkur.

Stórglæsileg í bláum kyrtli

Fjallkona Snæfellsbæjar þetta árið var Margrét Vilhjálmsdóttir.

Fjallkona Snæfellsbæjar árið 2026 var Margrét Vilhjálmsdóttir.Facebook/Snæfellsbær

 Yfir hana ringdi hátíðarkveðjum á Facebook-síðu Snæfellsbæjar en þar voru allir sammála um hve stórglæsileg þessi unga fjallkona væri.

Flutti „Afmælisbrag“

Kvenfélagskonan Sigrún Björg Elíasdóttir, varaformaður Kvenfélagsins á Álftanesi,  var fjallkona Garðabæjar í ár en hún klæddist glæsilegum kyrtli og skarti sem er í eigu félagsins.

Á vordegi fögrum tuttugu og sex

var félagið okkar stofnað.

Við fámenni mikið en síðar það vex

og samstaðan hefur ei rofnað.

Þökk sé þeim konum sem þetta vor

komu og vísuðu veginn.

Þær vissu að framsýni, festa og þor

er félaga máttur og megin.

Fjallkona Garðabæjar í ár var kvenfélagskonan Sigrún Björg Elíasdóttir, varaformaður Kvenfélagsins á Álftanesi.

Svona er fyrsta erindi ljóðsins "Afmælisbragur" eftir Júlíönu Björnsdóttur, fyrrum formann félagsins, sem samið var í tilefni af 70 ára afmæli félagsins árið 1996.

Sagnfræðingur flutti frumsamið ljóð

Hin nýútskrifaða Jenný María Jóhannsdóttir greinir frá því í Facebook-færslu að hún hafi hlotið þann heiður að vera fjallkona Mosfellsbæjar árið 2026. 

Jenný María Jóhannsdóttir flutti frumsamda ljóðið „Óður til íslenskrar söguskoðunar,“ en í því minnist hún á Jónas frá HRiflu, Kritjönu Millu og íslenska fiskinn.Mosfellsbær

Hún lauk nýverið við bakkalárgráðu í sagnfræði og á hátíðarathöfninni flutti hún frumsamið ljóð sem ber heitið „Óður til íslenskrar söguskoðunar“.

Fjallkona á ný fimmtíu árum síðar

Fjallkona Akraness í ár er Laufey Skúladóttir en hún flutti ljóðið Drög að heimkomu eftir Orra Harðarson, bæjarlistamann Akraness árið 2025 sem féll frá síðasta sumar langt fyrir aldur fram. 

Laufey flutti með fjölskyldu sinni til Akraness frá Ólafsvík árið 1966.Akranes/Blik studio

Laufey var líka fjallkona Akraness fyrir 50 árum, þann 17. júní 1976 en hún skartaði þá bláum kyrtli.

„Ísland er meira en landið sem við búum í“

Fjallkona Vestmannaeyja árið 2026 var Björk Elíasdóttir. Hún flutti ávarp þar sem hún ræddi meðal annars mikilvægi samfélagsins, fjölbreytileikann og samstöðu Vestmannaeyinga „á tímum hraðra breytinga“.

Björk Elíasdóttir, Fjallkona Vestmannaeyja árið 2026.Vestmannaeyjar.is/Bjarni Þór

Þá sagði hún að þjóðhátíðardaginn mætti nýta til þess að fagna því samfélagi sem sé skapað á hverjum degi og sagði Ísland vera meira en landið sem við búum í og bætti við „að það sé fólkið sem sýnir umhyggju, hjálpar náunganum og hefur kjark til að láta rödd sína heyrast“.

Hún flutti einnig ljóðið „Landið flokkar ekki fólk“ eftir Bubba Morthens rétt eins og fjallkona Suðurnesjabæjar.

„Sú skemmtilegasta“

 Rebekka Kristinsdóttir var fjallkonan á Selfossi. Hún flutti ljóðið „Ég skal mála allan heiminn, elsku mamma“ eftir Britt Marie Toje-Edström í þýðingu Hinriks Bjarnasonar. 

Rebekka henti upp friðarmerkinu alþjóðlega þegar ljósmyndari birtist á svæðinu.Facebook/Rebekka Kristinsdóttir

Hún birti mynd frá deginum á Facebook-síðu sína þar sem hún skrifar í myndatextanum „eflaust ekki klassískasta Fjallkonumyndin en ég lofa sú skemmtilegasta“ en Rebekka er eigandi og hársnyrtimeistari rakarastofunnar Lobbýsins.

Dúxinn sem er líka þjálfari og nú einnig fjallkona

Ólafía Ragnheiður Þórðardóttir var fjallkonan á Hvolsvelli en hún dúxaði Fjölbrautarskóla Suðurlands fyrr í vor af íþróttalínu. 

Ólafía er fædd árið 2007 og útskrifaðist í vor en hún fékk styrk til frekara náms frá Hollvarðasamtökum FSu.Sunnlenska.is/Sigurmundur Jónsson

Þessi unga kröftuga fjallkona vinnur sem þjálfari hjá 6. og 7. flokki kvenna hjá KFR.

Fjallkonan ásamt fríðu föruneyti

Fjallkonan í Hrunamannahreppi 2026 var hin glæsilega Margrét Helga Steindórsdóttir. 

Margrét Helga ásamt glæsilega fylgdarliði sínu, öll klædd í sitt allra fínasta púss.Sunnlenska.is/Kristjana Sigmundsdóttir

Ungmennin sem fylgdu henni og má sjá á myndinni hér að ofan eru þau Filip Ingvi Stefánsson, Árný Jökla Hákonardóttir, Birna Eyfjörð Ævarsdóttir og Aron Gunnar Bjarnason. 

Var heiðruð með afreksbikar

Védís Ösp Einarsdóttir var fjallkona á Heimalandi undir Eyjafjöllum. Hún flutti ljóðið „Undir Eyjafjöllum“ eftir Halldór Jón Guðmundsson. 

Védís flutti ljóðið „Undir Eyjafjöllum“ sem þykir verulega viðeigandi þar sem hún var fjallkona á Heimalandi undir Eyjafjöllum.sunnlenska.is//Berglind Hákonardóttir

Þá var hún einnig heiðruð með afreksbikar sveitarinnar en hún er unglingalandsliðskona í knattspyrnu og er á leið á EM U19. Glæsileg mæting var á hátíðina á Heimalandi, leikið og sungið og síðan voru kaffiveitingar. 

Prúðbúnar í tilefni dagsins

Drífa Nikulásdóttir var fjallkonan á Hellu en henni til halds og trausts voru fánaberarnir Eldey Yrsa Sveinbjörnsdóttir og Hrafney Dís Marinósdóttir, báðar prúðbúnar í tilefni dagsins.

Þær Drífa, Eldey og Hrafney voru ekkert smá prúðbúnar í tilefni þjóðhátíðardagsins.ry.is

Á vef Rangárþings ytra segir að hátíðarhöldin á Hellu hafi heppnast einstaklega vel, þrátt fyrir að veðrið hafi á köflum sýnt sínar blautari hliðar.

Hefur sungið á íslensku í áraraðir

Maria Bear stjórnarmeðlimur Betel Home Foundation var valin fjallkona Manitoba þetta árið. Þar á bæ fóru hátíðarhöld fram í Winnipeg en Maria Bear, lagði blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar og í kjölfarið fór fram dagskrá í miðstöðinni.

Maria Bear hefur alla ævi verið stoltur Íslendingur og hefur hún sungið með Selkirk Bruin kórnum á íslensku og ensku í mörg, mörg ár.Facebook/Icelandic Festival of Manitoba

Borgarstjóri Winnipeg, Scott Gillingham, flutti ávarp, sem og aðalræðismaður. Tónlist var leikin og íslenskar pylsur með öllu voru á boðstólnum hjá þessum hóp Vestur-Íslendinga.

Í upphlut af langömmu sinni og nöfnu

Jórunn María Bachmann Þorsteinsdóttir var fjallkona á Seltjarnarnesi í ár en hún flutti frumsamið ljóð sem nefnist „Á Nestinu er best að búa“. Klæddist hún gullfallegum upphlut af langömmu sinni og nöfnu.

Ekki allt fullkomið er,

enda væri þá ekkert til að tala um hér

Yfir útsýninu er þó ekki hægt að kvarta

fegurðin snertir sérhvert hjarta

Það vita allir sem aftur snúa

að á Nesinu er best að búa

Fjallkona Seltjarnarness 2026 var Jórunn María Bachmann Þorsteinsdóttir en hún var í upphlut af langömmu sinni.aðsend

Í ljóðinu grínast Jórunn með skort á leikskólaplássi og titlum en í lok þess gerir hún Nesinu sínu hátt undir höfði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.