Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Eiður Þór Árnason skrifar 24. maí 2026 18:25 Cristian Mungiu, leikstjóri Fjord, tók við verðlaununum frá leikkonunni Tildu Swinton á lokakvöldi Cannes í gær. EPA/SEBASTIEN NOGIER Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður í leikstjórn Cristian Mungiu hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gær. Þá fékk Minotaur eftir Andreï Zviaguintsev Grand Prix-verðlaunin. Þetta er í 79. skipti sem hátíðin fer fram.
Fjörður eða Fjord eins og hún nefnist á frummálinu er um norsk-rúmensku Gheorghiu-fjölskylduna sem sest að í þorpi í einangruðum norskum firði þar sem hún kynnist og tengist nágrönnum sínum þrátt fyrir ólíkan uppvöxt og bakgrunn. Þegar unglingurinn Elia Gheorghiu mætir í skólann með marbletti á líkamanum spyr fólk sig hvort það tengist þeirri hefðbundnu menntun og íhaldssömu trúargildum sem börnin fengu frá foreldrum sínum. Barnaverndaryfirvöld blanda sér í málið og endar það fyrir dómstólum. Leikstjórinn Cristian Mungiu ásamt aðalleikurunum Renate Reinsve og Sebastian Stan.Epa//SEBASTIEN NOGIER Rúmensk-bandaríski leikarinn Sebastian Stan og norska leikkonan Renate Reinsve fara með aðalhlutverkin í myndinni og leika foreldra Elia. Stan er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í The Apprentice og Marvel-kvikmyndabálknum en Reinsve lék til að mynda í myndinni Affeksjonsverdi eða Sentimental Value í leikstjórn Joachim Trier. Gagnrýninn á Rússland Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rúmenski leikstjórinn Cristian Mungiu fær Gullpálmann á þessari virtu kvikmyndahátíð í Cannes en hann hlaut hann einnig fyrir myndina 4 luni, 3 saptamâni si 2 zile árið 2007 sem þýðist sem 4 mánuðir, þrjár vikur og tveir dagar. Andrei Zviaguintsev, leikstjóri Minotaur, við frumsýningu myndarinnar á Cannes.EPA/TERESA SUAREZ Minotaur sem hlaut Grand Prix-verðlaunin að þessu sinni gerist í Rússlandi og fylgist með auðugri fjölskyldu þegar allsherjarinnrás Rússa inn í Úkraínu hefst árið 2022. Fjallar kvikmyndin um farsælan stjórnanda fyrirtækis sem finnur fyrir vaxandi viðskiptaþrýstingi og auknum óstöðugleika á heimssviðinu. Leiðir þetta til þess að vandlega skipulegt líf hans fer að einkennast af ofbeldi. Rússneski leikstjórinn Andreï Zviaguintsev hefur verið gagnrýninn á stjórnvöld í Kreml og þegar hann tók við verðlaununum í gær kallaði hann eftir því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti myndi stöðva „slátrunina“ í Úkraínu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kvikmyndahátíðin í Cannes Menning Noregur Rúmenía Frakkland Bíó og sjónvarp Mest lesið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira