Kane endaði deildina með þrennu gegn Ísaki og félögum Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. maí 2026 15:50 Harry Kane er markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar. Alexander Hassenstein/Getty Images Bayern Munchen fagnaði 5-1 sigri gegn Köln í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar.
Kveðjustundir voru haldnar á Allianz leikvangnum í þessum leik. Leon Goretzka var að spila sinn síðasta leik fyrir Bayern Munhen og Raphael Guerreiro er sömuleiðis á förum. Þá var dómarinn Deniz Aytekin að dæma sinn 254. og síðasta leik í þýsku deildinni. Hann fékk persónulega háa fimmu frá öllum leikmönnum fyrir sína frammistöðu eftir leik. Everyone is on their feet to bid farewell to Goretzka 🥺 pic.twitter.com/iExfuCoriV— FC Bayern (@FCBayernEN) May 16, 2026 Flugeldasýning var síðan haldin þegar að leiknum sjálfum kom. Bæjarar skoruðu fimm mörk og bættu þar með við markamet þýsku úrvalsdeildarinnar en alls urðu mörkin 122 í 34 leikjum á þessu tímabili. Þeir fengu eitt mark á sig á móti áður en meistaraskjöldurinn var afhentur við mikla viðhöfn. Harry Kane skoraði þrennu og stóð uppi sem markakóngur með 36 deildarmörk. Manuel Neuer er nýbúinn að framlengja um eitt ár við Bayern og tók við meistaraskildinum eftir leik. Alexander Hassenstein/Getty Images Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn af varamannabekknum á 69. mínútu leiks en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn. Tímabilinu er ekki lokið hjá Bayern Munchen og tvennan er í boði því um næstu helgi mætir liðið Stuttgart í úrslitaleik þýska bikarsins.
Þýski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Sjá meira