Oddvitaáskorunin: Gleymdi að bera kaupin undir eiginkonuna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. maí 2026 13:30 Plokk með Samfylkingu, VIðreisn og óháðum Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Kristinn Ólafsson er oddviti Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra í Seltjarnarnesbæ. Ég heiti Kristinn Ólafsson og ég skipa oddvitasæti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Ég er 66 ára og er menntaður viðskiptafærðingur frá Viðskipaháskólanum í Osló Kona mín er Laufey Elísabet Gissurardóttir og við eigum þrjú uppkomin börn og sex barnabörn. Við Laufey búum á Melabraut á æskuheimili mínu þannig að tæknilega bý ég enn heima. Ég hefu gegnt ýmsum störfum á lífsleiðinni en fyrst eftir nám starfaði ég á Seltjarnarnesi hjá Nesskip. Eftir það starfaði fór ég í auglýsingabransan og starfaði hjá AUK auglýsingastofu við auglýsinga og ráðgjafastörf. Eftir auglýsingabransan var það markaðsrannsóknarbransinn en ég starfaði hjá Gallup/IMG/Capacent í 13 ár. Ég hef verið virkur í björgunarsveitastarfi í 45 ár og ég starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í sex ár. Síðar starfaði ég sem framkvæmdastjóri hjá augnlæknastöðinni Sjónlag og hjá Skátunum. Ég hef alltaf verið mjög virkur í félagsstarfi og starfað í stjórnum fjölda félaga er hafa tengst mér. Síðast var ég formaður Nesklúbbsins, Golfklúbbs Seltjarnarness. Í frítíma mínum fer ég mikið á fjöll bæði á sumrin og veturna. Á sumrin eru það gönguferðir og skíðin og vélsleðinn á veturnar. Ég á erfitt að vera kjurr, þarf alltaf að vera að gera eitthvað og ekki skemmir fyrir ef það eru einhver ævintýri í spilinu. Ég hef aldrei áður verið virkur í stjórnmálastarfi og þetta er því frum raun mín á þessum vettvangi. Ég er svo heppinn að hafa með mér öflugt og reynslumikið fólk á listanum þannig að ég er alveg óhræddur við verkefnið og hlakka bara til. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Akureyri“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Óli K, bók um föður minn“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Hagræða í innkaupum og samningum. Gera langtíma áætlanir og tryggja að öll stærri verkefni séu boðin út.“ Fjölskyldan á Melabraut Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Ráðast í viðgerðir á þakinu á Mýrarhúsaskóla sem lekur í dag og skapar óásættanlegar aðstæður fyrir starfsfólk og nemendur. XS lofar vatnsheldum skólum!“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Aldrei dauð stund!“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ekki lofa of miklu, þurfum að bæta reksturinn. Betra að lofa litlu, en standa við allt.“ Á Geitlandsjökli með eiginkonuninni Laufeyju Elísabetu Gissurardóttir Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Sérfræðingur í skólamálum. Sem betur fer eru nokkrir slíkir á listanum okkar.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Setja upp gjaldskyldu á bílastæðinu í Gróttu. Þar er vinsæll áfangastaður ferðafólks, sem bærinn getur haft umtalsverðar tekjur af.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Spurði hvernig ég kæmist inn í bílinn minn þegar að rafhlaðan kláraðist á fjarstýringunni.“ Ég og Eva Margrét dóttir mín á gamlárskvöld Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Kosningar snúast um málefni og stundum málamiðlanir. Við getum unnið með öllum, ef það næst ásættanlegur málefnasamningur og sátt um faglega stjórn bæjarins.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Splæsti í stærri dekk undir fjallajeppa fjölskyldunnar en gleymdi að bera það undir eiginkonuna.“ Ég og Laufey í Ríó í janúar. Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Golfvöllurinn á Seltjarnarnesi og nálægð við náttúruöflin.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Vatnsglas og kaffibolli. Fasta til kl. 12“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Skortur á samtali og samráði. Ofríki naums meirihluta sem hefur setið allt of lengi, frá 1950, nánar tiltekið. Við munum leitast við að ná miklu víðtækara samráði en gert hefur verið.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Bæta reksturinn og gera Seltjarnarnes skemmtilegt aftur.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Slá í gegn, Stuðmenn“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Röng forgangsröðun og losaralegur rekstur hefur valdið fjárhag bæjarfélagsins alvarlegu tjóni.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Kóla- Kristinn Ólafsson Starfaði á auglýsingastofunni AUK 1993 og kvittaði undir reikninga með upphafsstöðum úr nafninu mínu. Það festist við mig og var kallaður Kóla eftir það. Löngu á undan samnefndum tónlistarmanni.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Öll. Við lofum ekki miklu, en stöndum við það. Mikilvægast verður samt að stunda virka hlustun. Það er svo mikilvægt að hlusta á fólk.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Viðreisn Seltjarnarnes Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira