Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Aron Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 13:25 Palmer í baráttunni í leik dagsins Vísir/Getty Liverpool og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í 36.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag á Anfield. Fyrsta stig Chelsea um langa hríð í deildinni. Heimamenn gátu í dag farið langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti með sigri og voru taldir góðir möguleikar á því í leik gegn Chelsea sem hafði tapað sex leikjum í röð í deildinni fyrir leik dagsins. Liverpool byrjaði leikinn betur og fyrsta mark dagsins leit dagsins ljós strax á 6.mínútu. Það skoraði Hollendingurinn Ryan Gravenberch eftir stoðsendingu frá Rio Ngumoah. Þegar komið var fram á 35.mínútu leiksins dró aftur til tíðinda. Aukaspyrna Enzo Fernandez við hægra horn vítateigs Liverpool söng í netinu og jafnaði leikinn fyrir Chelsea. Báðum liðum tókst að koma boltanum í netið í seinni hálfleik en bæði mörkin voru tekin af vegna rangstöðu. Joao Pedro, leikmaður Chelsea, taldi síðan á sér brotið innan vítateigs undir lok leiks þegar að Jeremy Frimpong var í baráttu við hann um boltann. Atvikið var skoðað í VAR sjánni en þótti ekki gefa tilefni til vítaspyrnudóms. Svo fór að liðin skildu jöfn 1-1. Liverpool er sem stendur í 4.sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 59 stig og á tvo leiki eftir. Chelsea er í 9.sæti með 49 stig. Enski boltinn Liverpool FC Chelsea FC
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Íslenski boltinn
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Íslenski boltinn