Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Lovísa Arnardóttir skrifar 6. maí 2026 22:30 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Vísir/Vilhelm Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi telur forsætisnefnd hafa brotið á sér í meðferð nefndarinnar á meintu einelti hans í garð starfsfólks Ríkisendurskoðunar. Í bréfi til þingmanna segir hann stöðuna á milli sín og nefndarinnar fordæmalausa og segist ætla að leita réttar síns.
Fjallað er um málið á vef RÚV en þar kemur fram að Guðmundur Björgvin hafi sent þingmönnum bréf fyrir helgi sem fréttastofan hafi undir höndum. Fjallað var um það í janúar á þessu ári að forsætisnefnd myndi taka fyrir tilkynningar um EKKO-mál af hálfu ríkisendurskoðanda. Sérstakt verklag hefði verið útbúið fyrir meðferð tilkynninganna. Forseti Alþingis sagði þá verklagið í samræmi við opinbert verklag. Töluvert hefur verið fjallað um mál Guðmundar á vef Vísis. Guðmundur Björgvin tók við embætti ríkisendurskoðanda í júní árið 2022 og herma heimildir Vísis að um hálfu ári eftir að hann tók við hafi farið að bera á ósæmilegri hegðun. Hann á að hafa sagt að fjörutíu prósent starfsmanna embættisins væru drasl og að hann þyldi hvorki vinnustaðinn né starfsfólkið. Í október 2025 tók Guðmundur Björgvin sjálfur við öllum mannauðsmálum í kjölfar þess að þrír sviðsstjórar, þar á meðal mannauðsstjórinn, fóru í leyfi vegna ástandsins. Jóhannes Jónsson var meðal sviðsstjóra sem fóru í leyfi en hann hyggst ekki snúa aftur. Hann sagði frá því í færslu á Facebook en fjallað var um það á Vísi. Í frétt RÚV segir að í desember hafi forsætisnefnd falið óháðum aðila að gera úttekt á stöðu mannauðsmála hjá stofnuninni og að nefndin hafi fengið greinargerð vegna úttektarinnar í apríl og ríkisendurskoðandi svo skilað umsögn 1. maí. Í fréttinni er svo vitnað í bréfið sem Guðmundur sendi nefndinni þar sem kemur fram að það sé hans skilningur að hann hafi ekki sýnt af sér EKKO-háttsemi en að málsmeðferð feli í sér „margföld brot gagnvart ríkisendurskoðanda, jafnt af hálfu þjónustuaðilans, sem og forseta Alþingis, skrifstofustjóra og forsætisnefndar“.
Ríkisendurskoðun Mannauðsmál Alþingi Stjórnsýsla Tengdar fréttir Vill að þingið skoði mál Ríkisendurskoðanda Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill kanna hvort þingið geti aðhafst í máli Ríkisendurskoðanda. Hann hyggst funda með Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta þingsins vegna málsins. 5. nóvember 2025 18:55 Íhugar ekki stöðu sína Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segist ekki íhuga stöðu sína vegna greiðslna Ríkislögreglustjóra til ráðgjafafyrirtækisins Intra ráðgjafar. Ekki hafi gefist tími til að bjóða verkið út og þrjátíu milljóna króna reikningur fyrir síðasta ár sé ekki mikið miðað við tólf milljarða króna veltu embættisins á sama tíma. Hún kallar eftir því að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál embættisins. 31. október 2025 14:40 Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Jóhannes Jónsson sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun segist vera í veikindaleyfi vegna alvarlegra mála sem hafa komið upp hjá embættinu sem hann hafi sjálfur orðið vitni að. Hann segir aðkoma ríkisendurskoðanda sjálfs að málum gera þau sérstaklega flókin og erfið og segist ekki ætla að snúa aftur til starfa, starfsfólk stofnunarinnar sæti þöggun. 4. nóvember 2025 21:44 Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Sjá meira
Vill að þingið skoði mál Ríkisendurskoðanda Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill kanna hvort þingið geti aðhafst í máli Ríkisendurskoðanda. Hann hyggst funda með Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta þingsins vegna málsins. 5. nóvember 2025 18:55
Íhugar ekki stöðu sína Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segist ekki íhuga stöðu sína vegna greiðslna Ríkislögreglustjóra til ráðgjafafyrirtækisins Intra ráðgjafar. Ekki hafi gefist tími til að bjóða verkið út og þrjátíu milljóna króna reikningur fyrir síðasta ár sé ekki mikið miðað við tólf milljarða króna veltu embættisins á sama tíma. Hún kallar eftir því að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál embættisins. 31. október 2025 14:40
Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Jóhannes Jónsson sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun segist vera í veikindaleyfi vegna alvarlegra mála sem hafa komið upp hjá embættinu sem hann hafi sjálfur orðið vitni að. Hann segir aðkoma ríkisendurskoðanda sjálfs að málum gera þau sérstaklega flókin og erfið og segist ekki ætla að snúa aftur til starfa, starfsfólk stofnunarinnar sæti þöggun. 4. nóvember 2025 21:44