Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2026 07:40 Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur á staðið í ýmsum erfiðleikum á undanförnum árum. Hann er 81 árs gamall. AP/Seth Wenig Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann er sagður vera í alvarlegu en stöðugu ásigkomulagi. Talsmaður hans tilkynnti þetta í gær en sagði ekki hve lengi Giuliani, sem er 81 árs gamall, hefði verið á sjúkrahúsi né hvers vegna.
Þá liggur ekki fyrir hvenær hann var lagður inn á sjúkrahús en Ted Goodman, talsmaðurinn, bað fólk um að biðja fyrir Giuliani. Síðasta sumar var hann lagður inn á sjúkrahús vegna brákaðs hryggjarliðs eftir bílslys. Giuliani var borgarstjóri New York í átta ár en undir lok þess tíma var árásin á tvíburaturnana gerð. Hann þótti standa sig vel í starfi í kjölfar árásarinnar og var af mörgum kallaður „borgarstjóri Bandaríkjanna“. Árið 2000 bauð hann sig fram til öldungadeildar Bandaríkjanna gegn Hillary Clinton en dró framboð sitt til baka eftir að hann greindist með ristilkrabbamein. Hann reyndi seinna meir, árið 2007, að verða forseti fyrir Repúblikanaflokkinn en það gekk ekki eftir. Síðar varð hann einkalögmaður og ráðgjafi Donalds Trump, forseta, og leiddi um tíma viðleitni Trumps til að halda völdum þrátt fyrir að hafa tapað forsetakosningunum 2020, gegn Joe Biden. Sú vinna leiddi til fjölmargra lögsókna gegn Giuliani en ein þeirra leiddi til þess að hann var dæmdur til að greiða mæðgum frá Georgíu 148 milljónir dala í skaðabætur. Þá peninga átti hann ekki til og sótti um gjaldþrotaskipti. Hann gerði þó á endanum samkomulag við mæðgurnar um að greiða þeim ótilgreinda upphæð og fékk hann að halda heimili sínu og öðrum eigum. Sjá einnig: Giuliani sviptur lögmannsréttindum í New York Engar upplýsingar hafa litið dagsins ljós sem benda til þess að kosningasvindl hafi kostað Trump sigur í kosningunum. Hann lýgur því þó enn ítrekað . Það gerði hann síðast í gærkvöldi en þá skrifaði hann færslu á samfélagsmiðil sinn um Giuliani og hve illa „öfga vinstri geðsjúklingar, allir Demókratar“, hefðu komið fram við hann. „Og hann hafði rétt fyrir sér um allt! Þeir svindluðu í kosningunum, fölsuðu hundruð sagna, gerðu allt mögulegt til að rústa þjóð okkar, og nú, sjáið Rudy. Svo sorglegt!“
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Þriðja málið gegn Trump fellt niður Dómari í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur látið niður falla síðustu lögsóknina sem eftir stóð gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta. Málið sneri að meintum tilraunum hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020. 26. nóvember 2025 18:19 Giuliani sækir um gjaldþrotaskipti Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, hefur farið fram á gjaldþrotaskipti. Það gerði hann í New York í vikunni og tíundaði hann skuldir eins og mikinn lögfræðikostnað, ógreidda skatta og 148 milljónir dala, sem hann var nýlega dæmdur til að greiða mæðgum í skaðabætur. 22. desember 2023 10:14 Falskir kjörmenn og lygar kjarninn í málinu gegn Trump Listi yfir falska kjörmenn sem Donald Trump og bandamenn hans fengu repúblikana í Georgíu til þess að senda Bandaríkjaþingi og lygar um kosningaúrslitin eru kjarninn í víðfeðmri ákæru á hendur fyrrverandi forsetanum og átján samverkamönnum hans í ríkinu. Nokkrir þeirra eru ákærðir fyrir tilraun til að stela kjörgögnum og eiga við kosningavélar. 15. ágúst 2023 13:59 Sakar Giuliani um að þvinga sig til kynlífs Kona sem fullyrðir að hún hafi unnið fyrir Rudy Giuliani, persónulegan lögmann Donalds Trump, sakar hann um að hafa þvingað sig til kynlífs og að skulda henni milljónir í launagreiðslur. Hún segir eiga upptökur af lögmanninum. Giuliani hafnar ásökununum alfarið. 16. maí 2023 08:49 Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. 1. mars 2023 07:01 Giuliani sviptur lögmannsréttindum í New York Aganefnd áfrýjunardómstóls í New York svipti í dag Rudy Giuliani lögmannréttindum í ríkinu vegna falskra fullyrðinga sem hann setti fram til að fá dómstóla til þess að snúa við kosningaósigri Donalds Trump í nóvember. 24. júní 2021 19:04 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Sjá meira
Þriðja málið gegn Trump fellt niður Dómari í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur látið niður falla síðustu lögsóknina sem eftir stóð gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta. Málið sneri að meintum tilraunum hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020. 26. nóvember 2025 18:19
Giuliani sækir um gjaldþrotaskipti Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, hefur farið fram á gjaldþrotaskipti. Það gerði hann í New York í vikunni og tíundaði hann skuldir eins og mikinn lögfræðikostnað, ógreidda skatta og 148 milljónir dala, sem hann var nýlega dæmdur til að greiða mæðgum í skaðabætur. 22. desember 2023 10:14
Falskir kjörmenn og lygar kjarninn í málinu gegn Trump Listi yfir falska kjörmenn sem Donald Trump og bandamenn hans fengu repúblikana í Georgíu til þess að senda Bandaríkjaþingi og lygar um kosningaúrslitin eru kjarninn í víðfeðmri ákæru á hendur fyrrverandi forsetanum og átján samverkamönnum hans í ríkinu. Nokkrir þeirra eru ákærðir fyrir tilraun til að stela kjörgögnum og eiga við kosningavélar. 15. ágúst 2023 13:59
Sakar Giuliani um að þvinga sig til kynlífs Kona sem fullyrðir að hún hafi unnið fyrir Rudy Giuliani, persónulegan lögmann Donalds Trump, sakar hann um að hafa þvingað sig til kynlífs og að skulda henni milljónir í launagreiðslur. Hún segir eiga upptökur af lögmanninum. Giuliani hafnar ásökununum alfarið. 16. maí 2023 08:49
Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. 1. mars 2023 07:01
Giuliani sviptur lögmannsréttindum í New York Aganefnd áfrýjunardómstóls í New York svipti í dag Rudy Giuliani lögmannréttindum í ríkinu vegna falskra fullyrðinga sem hann setti fram til að fá dómstóla til þess að snúa við kosningaósigri Donalds Trump í nóvember. 24. júní 2021 19:04