„Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Sindri Sverrisson skrifar 28. apríl 2026 21:47 Harry Kane passaði að félagar sínir misstu ekki vonina í stöðunni 5-2 og má vera sáttur eftir leikinn í kvöld. Getty/Chris Brunskill Eftir níu marka leik, 5-4 sigur PSG gegn Bayern, er kannski frekar skrýtið að hrósa varnarleik en það gerði Harry Kane, framherji Bayern, engu að síður eftir leikinn í kvöld.
Leikurinn í kvöld var einhver besta skemmtun sem um getur í Meistaradeild Evrópu í fótbolta og fjörið heldur áfram í München eftir rúma viku þegar það ræðst hvort liðanna kemst í úrslitaleik keppninnar. PSG komst í 5-2 en Bayern náði að minnka muninn í eitt mark og er í ágætri stöðu fyrir seinni leikinn. „Þið sáuð tvö úrvalslið í sóknarleik og skyndisóknum. Á heildina litið, ef við skoðum mörkin þeirra, þá var vítaspyrnan harkaleg en við hefðum getað gert út um leikinn fyrr,“ sagði Kane en PSG skoraði mark úr víti í lok fyrri hálfleiks sem dæmt var vegna hendi á Alphonso Davies. Eins og fyrr segir virtist PSG ætla að vinna glæsilegan sigur eftir að hafa komist í 5-2 í seinni hálfleik en gestirnir sýndu mikinn karakter: „Við börðumst og klóruðum okkur aftur inn í einvígið. Mér fannst varnarleikurinn stórkostlegur þótt níu mörk hafi verið skoruð. Stundum hafa sóknarmennirnir betur en varnarlínan var framúrskarandi í dag,“ sagði Kane í beinni útsendingu Amazon Prime. „Maður finnur alltaf fyrir því að það séu svið sem hægt er að bæta. Við förum á Allianz og höfum engu að tapa, við erum bestir þegar við erum ákafir og líkamlega sterkir,“ sagði Kane sem vonast til þess að heimavöllurinn hjálpi Bayern að landa sigri í næstu viku: „Þetta mun snúast um hver nýtir færin sín í næstu viku. Við verðum með áhorfendur á bak við okkur og vonumst til að það geti ýtt okkur yfir línuna.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira