Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Agnar Már Másson skrifar 26. apríl 2026 14:00 „Ég hélt að þetta væri bakki að detta,“ sagði Donald Trump um skothvellina. Donald og Melania Trump auk annarra ráðamanna voru flutt í öruggt skjól í gærkvöldi þegar skothvellir heyrðust frammi á gangi. Settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir að byssumaðurinn sem hleypti af skotum á Hilton-hóteli í Washington í nótt hafi líklega ætlað að ráðast á Donald Trump Bandaríkjaforseta og fleiri háttsetta ráðamenn.
Hvorki Trump Bandaríkjaforseta né aðra ráðamenn sakaði þegar skotum var hleypt af, en starfsmenn öryggisþjónustunnar fluttu ráðamenn í öruggt skjól þegar hvellirnir heyrðust frammi í anddyri. „Ég hélt að þetta væri bakki að detta,“ er haft eftir Trump um hvellinn í umfjöllun Washington Post en atvikið átti sér stað á Hilton-hóteli í Washington þar sem forsetinn snæddi galakvöldverð með fjölmiðlafólki. Byssumaðurinn var yfirbugaður en eitt af skotum hans hæfði öryggisvesti leyniþjónustumanns. Sá slasaðist ekki alvarlega og er kominn af spítala, samkvæmt því sem fulltrúi öryggisþjónustunnar segir við BBC. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað nákvæmlega byssumanninum gekk til en Todd Blanche, settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir við CBS að fyrstu niðurstöður lögreglurannsóknarinnar bendi til að líklega hafi Trump og fleiri viðstaddir ráðamenn verið skotmörk árásarinnar. Byssumaðurinn hafi ekki komist langt inn á svæðið, aðeins rétt svo inn fyrir lokunarpósta. Margir af valdamestu mönnum landsins voru viðstaddir, þar á meðal J.D. Vance varaforseti og Kash Patel, yfirmaður leyniþjónustunnar. Árásarmaðurinn hefur verið nafngreindur, heitir Cole Tomas Allen og er 31 árs gamall karlamaður frá Kaliforníu. Hann er talinn hafa skipulagt árásina einn síns liðs en hann undirgengst nú geðmat og fer fyrir dómara á morgun. Blanche sagði að byssumaðurinn hefði líklegast ferðast með lest þvert austur yfir Bandaríkin; komið sér með lest frá Los Angeles í Kaliforníu til Chicago í Illinois og svo þaðan til Washington. Hann sagði að lögreglan skoðaði hvort byssumaðurinn hefði sett saman vopnið inni á hótelherbergi en hann virðist hafa átt bókað herbergi á Hilton-hótelinu. Blanche segir einnig að hinn grunaði hafi ekki enn reynst samvinnuþýður. Árið 2024 var reynt að ráða Trump af dögum þar sem hann hélt ræðu á kosningafundi sínum og aftur var maður handtekinn í september sama ár fyrir utan golfvöll hans í Flórída grunaður um sömu fyrirætlan.
Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira