Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. apríl 2026 12:26 Friðjón Friðjónsson segir árásina til marks um heiftúðleikann í bandarískri umræðu. Til hægri má sjá leyniþjónustumenn bregðast við í Washington í gær. Skotárás á galakvöldverði Bandaríkjaforseta með fjölmiðlum í gær er til marks um aukna hörku í bandarískum stjórnmálum að mati sérfræðings. Árásin sé ekki til þess fallin að hafa áhrif á vinsældir forsetans.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Melania Trump auk varaforsetans J.D Vance og annarra ráðherra voru flutt í skjól í óðagoti í nótt á árlegum kvöldverði Samtaka blaðamanna Hvíta hússins á Hilton hótelinu eftir að vopnaður maður hleypti af skotvopni nærri öryggishliði við inngang í salinn. Maðurinn var yfirbugaður en eitt af skotum hans hæfði öryggisvesti leyniþjónustumanns sem slasaðist ekki alvarlega. Undrandi en samt ekki Árásarmaðurinn hefur verið nafngreindur, heitir Cole Tomas Allen og er 31 árs gamall frá Kaliforníu og er talinn hafa skipulagt árásina einn. Hann undirgengst nú geðmat og fer fyrir dómara á morgun. Friðjón Friðjónsson sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir árásina til marks um aukna hörku í bandarískum stjórnmálum. „Bæði bregður manni að heyra af þessu og ekki, því allt þetta skotvopnavandamál, þessi skotvopnakúltúr í Bandaríkjunum er svo súrrealískur og fjarlægur okkur. En þetta gerist nánast í hverri viku þar sem við fáum hræðilegar fréttir af skotvopnaárásum eða einhverjum morðum. Þannig maður er bæði undrandi en eins sorglegt og það er þá er maður ekki svo undrandi því orðræðan í Bandaríkjunum er orðin svo heiftúðug.“ Ekki er ljóst á þessari stundu hvað nákvæmlega manninum gekk til en 2024 var reynt að ráða Donald Trump af dögum þar sem hann hélt ræðu á kosningafundi sínum og aftur var maður handtekinn í september sama ár fyrir utan golfvöll hans í Flórída grunaður um sömu fyrirætlan. „Það hefur verið reynt að myrða flesta forseta Bandaríkjanna, sum tilvikin komast í fréttir, ekki öll. Ég held að undanfarin fimmtíu til sextíu ár hafi verið gerð morðtilræði við alla Bandaríkjaforseta. Menn hafa komist misnálægt hérna viðkomandi forseta. Þannig því miður kemur þetta ekki svo á óvart en þetta er auðvitað galið.“ Hafi líklega ekki áhrif á vinsældir Trump boðaði á blaðamannafundi eftir árásina að hinn árlegi galakvöldverði blaðamanna og forsetans yrði haldinn aftur síðar í mánuðinum. Friðjón segist ekki telja að árásin muni hafa áhrif á vinsældir forsetans, sem ekki hafa mælst neitt sérstaklega miklar. Hann bendir á að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki. „Þannig að mín tilfinning er sú að fólk líti á þetta sem einstakan viðburð. Stjórnartíð Trumps ræðst miklu meira af því hvert verðið á bensínlítranum er og hvert verðið á mjólkurlítranum er heldur en af svona atburðum. Það er ástæðan fyrir því að fólk er óánægt, það finnur fyrir verðbólgunni, það finnur fyrir hækkandi eldsneytisverði og það finnur fyrir því að lífið er erfiðara í dag heldur en það var í gær.“
Bandaríkin Donald Trump Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira