„Þú ert farinn að verða þybbinn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 06:30 Neymar Junior og félagar í Santos eru ekki að gera góða hluti og Neymar spilar bara heimaleikina. Getty/ Ricardo Moreira Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er að reyna að koma sér í gott form á ný eftir meiðslaár og tryggja sér í kjölfarið sæti í HM-hópi Brasilíumanna í sumar en þrátt fyrir að hann hafi skorað í síðasta leik þá voru stuðningsmennirnir ósáttir.
Stuðningsmennirnir voru nefnilega æfir eftir 1-1 jafntefli og Neymar lenti í heitum orðaskiptum og öskraði á nokkra í stúkunni: Púað var á leikmenn Santos þegar liðið yfirgaf völlinn eftir jafnteflið á heimavelli gegn Recoleta frá Paragvæ. Úrslitin og slakt gengi liðsins æstu enn á ný upp tilfinningar meðal stuðningsmanna. Þrátt fyrir að Neymar hafi skorað mark liðsins varð hann skotmark reiði stuðningsmannanna. ESPN sagði frá. Sussaði á stuðningsmennina Þegar brasilíska stjarnan var á leið í sjónvarpsviðtal eftir leikinn gaf hann merki til að sýna að stuðningsmennirnir ættu að þegja, sussaði á þá. „Ég skil gremjuna, en stundum verða þeir að átta sig á því að fótbolti er svona. Stundum fer boltinn bara ekki inn,“ sagði Neymar við sjónvarpsstöðina. 🚨 AGORA! ESPN pegou de perto o que Neymar disse para o torcedor do Santos:“Tu devia ter treinado mais. Tá gordinho, car****!”“Eu tenho que fazer tudo? Cala a boca!”“Eu sou mimado? Eu tô dando a vida aqui! Respeita!”🎥 @ESPNBrasil | @SportsCenterBR pic.twitter.com/2CF4pJXoWd— Planeta do Futebol 🌎 (@futebol_info) April 15, 2026 Eftir viðtalið hitnaði enn frekar í kolunum. Neymar stóð kyrr við hliðarlínuna og öskraði á einhvern í stúkunni: „Þú hefðir átt að æfa meira. Þú ert farinn að verða þybbinn,“ öskraði stuðningsmaðurinn á hann. Neymar var á leið í burtu en sneri aftur við. Er ég dekraður? „Er ég dekraður? Ég gef allt sem ég á hérna úti. Ég skal gefa þér þína mínútu af frægð,“ svaraði Neymar. Í nokkur ár hefur þessi 34 ára leikmaður verið mikið meiddur. Til að eiga ekki á hættu að missa af HM í sumar vegna meiðsla hefur Neymar ákveðið að spila aðeins heimaleiki Santos. Santos er í neðsta sæti í sínum riðli í Copa Sudamericana eftir tvo leiki. Í deildinni er félagið í fimmtánda sæti eftir ellefu umferðir.
Brasilía HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira