„Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. apríl 2026 12:30 Arne Slot segir að Liverpool verði að vera meira með boltann í leiknum í kvöld en leiknum í París í síðustu viku. getty/Jan Kruger Þrátt fyrir að Liverpool sé 2-0 undir fyrir seinni leikinn gegn Evrópumeisturum Paris Saint-Germain hefur knattspyrnustjóri liðsins, Arne Slot, trú á því að hans menn geti snúið dæminu sér í vil. Hann segir að Liverpool verði að taka áhættu í leiknum í kvöld.
Liverpool tekur á móti PSG á Anfield í kvöld. Parísarliðið vann öruggan 2-0 sigur í fyrri leiknum á sínum heimavelli í síðustu viku. Désiré Doué og Khvicha Kvaratskhelia skoruðu mörk Evrópumeistaranna í leiknum. Slot segir verkefni kvöldsins erfitt en ekki ómögulegt. „Fyrir það fyrsta vil ég minna á hverjar lokatölurnar voru. Þær voru 2-0. Tilfinningin var ekki þannig, eins og við öll vitum, en úrslitin voru 2-0,“ sagði Slot á blaðamannafundi fyrir leikinn í kvöld. „Í annan stað höfum við sýnt svo oft í stórum leikjum á þessu tímabili að við getum skilað frábærri frammistöðu. Við höfum líka sýnt hið þveröfuga, ég er meðvitaður um það, en margir leikja okkar hafa verið mjög góðir, sérstaklega þeir stóru. Við höfum ekki allir verið saman í eitt og hálft ár en þeir sem hafa verið með mér allan tímann þá höfum við skorað tvö mörk eða meira í 46 af 49 heimaleikjum.“ Segi liðinu mínu aldrei að liggja í vörn Slot segir að leikmenn Liverpool hafi trú á því að þeir geti komið til baka gegn PSG. „Við trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt en við þurfum að vera mjög, mjög, mjög, mjög, mjög sérstakir til að framkalla það því við erum að spila við Evrópumeistarana. Það gerir verkefnið flóknara en ekki ómögulegt,“ sagði Slot og bætti við að Liverpool myndi tefla djarft í kvöld. „Fólki finnst kannski erfitt að trúa því þegar ég segi að nálgun okkar verður ekki svo frábrugðin þeirri í París. Fyrir þá sem þekkja mig sendi ég aldrei lið út á völlinn og segi því að liggja í vörn í níutíu mínútur. Ef þú horfir aftur á leikinn pressuðum við þá framarlega á köflum. Því miður leiddu 7-8 af þessum augnablikum til þess að þeir sluppu einir í gegn. Við munum taka áhættu því við þurfum þess en þú verður að ná boltanum af þeim, pressa þá og við sáum hversu erfitt er að pressa þá.“ PSG sló Liverpool úr leik í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra og hefur alls unnið fjögur einvígi gegn enskum liðum í útsláttarkeppninni undanfarin tvö tímabil. Leikur Liverpool og PSG hefst klukkan 19:00 í kvöld og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira