Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2026 17:02 Á myndinni eru frá hægri Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, fulltrúi Viðreisnar, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, fulltrúi Framsóknar og Friðjón R. Friðjónsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Aðsend og Vísir/Vilhelm Fulltrúar Viðreisnar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu ekki umsókn Samhjálpar um breytingar á húsnæði sem þau hafa tekið á leigu við Grensásveg og segja í bókunum að þau hafi áhyggjur af ósætti íbúa við opnun kaffistofunnar. Þau harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar.
Umhverfis- og skipulagsráð afgreiddi á miðvikudag umsókn Samhjálpar um breytingar á húsnæði sem það hefur tekið á leigu við Grensásveg 46. Þar ætla samtökin að opna nýja kaffistofu. Kaffistofan er eins og er rekin í húsnæði Fíladelfíukirkjunnar og hefur verið þar síðan kaffistofunni var lokað í Borgartúni. Umsókn þeirra hefur nú verið send til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa. Flutningi kaffistofunnar á Grensásveg hefur verið mótmælt af fjölda íbúa en haldinn var fjölmennur íbúafundur í febrúar vegna málsins. Í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs kemur fram að umsókn Samhjálpar hafi verið samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar og er svo vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa. Í fundargerð ráðsins segir að erindi Samhjálpar hafi verið grenndarkynnt frá 28. nóvember 2025 til og með 5. janúar 2026 og að athugasemdir hafi borist. Þær voru alls 40. Í fundargerð er einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa. Fjallað var um hana í frétt á Vísi. Kaffistofa Samhjálpar var um árabil rekin í Borgartúni í nánast gluggalausu rými. Vísir/Vilhelm Lagðar voru fram fjórar bókanir við afgreiðslu málsins. Sú fyrsta er frá fulltrúum meirihlutans, það er fulltrúum Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Þau segja útgáfu byggingarleyfisins í samræmi við gildandi aðalskipulag og að í ljósi þess sé umsókninni vísað aftur til fullnaðarafgreiðslu. „Umhverfis- og skipulagsráð starfar samkvæmt samþykktum borgarstjórnar og er í umboði borgarráðs og fer eftir skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. 6. gr. laganna og eftir því sem lög mæla fyrir um, s.s. sveitarstjórnarlög nr. 138/2011. Það myndi ekki teljast góð stjórnsýsla að synja frjálsum félagasamtökum um leyfi til að breyta húsnæði eins og aðalskipulag gerir ráð fyrir,“ segir í bókunni. Heilbrigðiseftirlit og sýslumaður gefi út leyfi Þar er bent á að eftir að byggingarleyfið er gefið út og framkvæmdir hafa farið fram þurfi að fara fram lokaúttekt byggingarfulltrúa og að henni lokinni sé það heilbrigðiseftirlitið sem gefi út starfsleyfi og sýslumaður rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki I. „Málið kemur því ekki aftur til afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsráði,“ segir að lokum. „Við bíðum eftir fullnaðarafgreiðslu en erum þakklát að þetta sé afgreitt frá umhverfis- og skipulagsráði,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samhjálpar, um afgreiðsluna. Samhjálp hefur verið með rýmið á leigu frá því í október og ætluðu að opna fyrir jól en eftir að skyndilega var ákveðið að fara í grenndarkynningu hafa þau beðið eftir því að hefja framkvæmdir á ný. Staðsetning utan þess svæðis sem gestir halda sig Í bókun Sjálfstæðisflokksins er lýst yfir stuðningi við starf Samhjálpar en tekið fram að það veki fulltrúa flokksins áhyggjur að ekki hafi tekist að ná sátt við íbúa í nágrenninu. Fyrirhuguð starfsemi falli illa að umhverfi þar sem mikið sé um börn. „Þá er ljóst að staðsetningin er utan þess svæðis þar sem gestir Samhjálpar halda sig að jafnaði, sem getur torveldað aðgengi þeirra. Mikilvægt er að finna lausnir sem þjóna bæði nærumhverfi og notendum betur,“ segir í bókuninni en Friðjón R. Friðjónsson er fulltrúi Sjálfstæðisflokks í ráðinu. Samhjálp vill opna kaffistofuna í rýminu á jarðhæð í miðjunnni. Vísir/Vilhelm Eigi að flokka veitingahúsið öðruvísi Aðalsteinn Haukur Sverrisson, fulltrúi Framsóknarflokksins í ráðinu, harmar í sinni bókun að áhyggjur íbúa séu hundsaðar. Það hafi borist 40 athugasemdir frá íbúum og bersýnilega komið í ljós þar að þau hafi verulegar áhyggjur, sérstaklega með tilliti til hagsmuna barna. „Grensásvegur 46 er sannarlega staðsettur inn í miðju íbúahverfi ólíkt fyrri staðsetningu kaffistofunnar sem hingað til hefur verið miðsvæðis í borginni þar sem það þjónar hagsmunum skjólstæðinga betur vegna nálægðar. Einnig má benda á að ekki er leyfi í aðalskipulagi fyrir veitingahús í flokki III á þessum stað nema með breytingu í deiliskipulagi eða hverfisskipulagi,“ segir hann og að þung rök séu fyrir því að kaffistofan falli undir slíka skilgreiningu en í lögum segir um veitingastaði í flokki III: „Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist, og staðir sem kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.“ Aðalsteinn segist ósammála skipulagsfulltrúa að kaffistofan sé í flokki I sem er flokkur staða án áfengisveitinga. Þjónustuþegum sé illa mætt Fulltrúi Viðreisnar, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, lagði sömuleiðis fram bókun um málið og sagði málefnið snerta marga og það séu margar hliðar að rýna í. Íbúar hafi lýst yfir áhyggjum af nálægð við skóla og fjölda barna. Þá gerir hún athugasemdir við fjarlægð frá dvalarstöð þeirra sem leita til kaffistofunnar en á þá væntanlega við þann hóp sem heimilislaus er og nýtir þjónustu gistiskýla miðsvæðis. Mikill fjöldi sækir þó kaffistofuna hvern dag sem ekki er heimilislaus og býr ekki endilega í miðbænum. „Ástæða þess að fulltrúinn kýs gegn þessari aðgerð er að þörfum þjónustuþega sé illa mætt með þessari aðgerð, staðsetning hentar þeim illa og ber að huga að því að þess má vænta að notendahópurinn sé ekki virkur í samráðsferli vegna stöðu sinnar,“ segir að lokum í bókuninni.
Kaffistofa Samhjálpar Félagasamtök Reykjavík Skipulag Efnahagsmál Fjármál heimilisins Málefni heimilislausra Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira