Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2026 17:37 Kristján Óli Sigurðsson fór með rangt mál samkvæmt yfirlýsingu Breiðabliks. Samsett Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur fundið sig knúna til að leiðrétta fréttaflutning varðandi Gabríel Aron Sævarsson, tvítugan leikmann liðsins, og ástæður þess að hann var lánaður frá félaginu.
Í grein á vef DV var sagt frá því að Kristján Óli Sigurðsson hefði í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni fullyrt að leikmenn Breiðabliks hefðu kallað eftir því að Gabríel Aron færi frá félaginu. Að þeir teldu hann ekki nógu góðan og það væri ástæða þess að hann væri nú farinn að láni til Hauka. Þessi umfjöllun á ekki við nein rök að styðjast og er engum til framdráttar, segir í yfirlýsingu Breiðabliks í dag. Breiðablik keypti Gabríel Aron í fyrra frá Keflavík og lánaði hann um leið til ÍR, og lék hann alls 19 leiki í Lengjudeildinni á síðasta tímabili. Hann hefur nú verið lánaður til Hauka í 2. deild fyrir komandi tímabil en Haukar ætla sér stóra hluti og stefna upp um deild í sumar. „Frá því að Gabríel Aron kom til Breiðabliks var hugmyndin að lána hann í neðri deild, þar sem hann myndi öðlast mikilvæga reynslu og spilatíma. Hann hefur æft með liðinu af fullum krafti og staðið sig vel. Það er mjög algengt að ungir leikmenn fari á lán og hafa margir af okkar lykilleikmönnum gert það og hlotið af því mikilvæga reynslu,“ segir í yfirlýsingu Breiðabliks sem félagið kaus að gefa út til að „verja heiður leikmannsins og félagsins.“ Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan.
Breiðablik Besta deild karla Haukar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Þór - Stjarnan | Heimamenn í mikilli fallbaráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan | Heimamenn í mikilli fallbaráttu Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” Sjá meira