Ljóstruðu óvart upp um óvænt val Heimis Sindri Sverrisson skrifar 19. mars 2026 07:33 Harvey Vale gæti hjálpað Heimi og hans mönnum að komast á HM. Getty/Lee Keuneke Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, kynnir í dag landsliðshópinn sem ætlunin er að komi Írlandi á HM í sumar. Það er hins vegar óvart búið að segja frá óvæntu vali hans á einum leikmanni.
QPR-menn virðast hafa verið aðeins of spenntir yfir því að leikmaður liðsins, Harvey Vale, skyldi fá sæti í írska hópnum. Á heimasíðu FIFA var nefnilega í gær birt myndband þar sem þessi 22 ára leikmaður talaði um hversu stoltur hann væri af því að fá sæti í hópnum. Um mistök virðist hafa verið að ræða því myndbandið var svo fljótlega fjarlægt en þá höfðu breskir miðlar þegar náð skjáskoti af myndbandinu. Skjáskot af viðtalinu sem birtist á vef QPR en var svo tekið í burtu.Skjáskot/QPR Vale er fyrrverandi miðjumaður Chelsea og var fyrirliði enska U19-landsliðsins þegar það vann EM árið 2022. FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, staðfesti hins vegar síðasta föstudag að Vale væri nú orðinn gjaldgengur með írska A-landsliðinu en heimilt er að skipta um landslið ef leikmenn hafa ekki spilað meira en þrjá leiki fyrir A-landslið annarrar þjóðar. Ljóst er að Írar þurfa á öllum sínum kröftum að halda til að komast á HM en þeir byrja umspilið á að mæta Tékklandi á útivelli eftir viku, þann 26. mars. Vinni þeir þann leik spila þeir svo úrslitaleik á heimavelli við Danmörku eða Norður-Makedóníu, um sæti á HM. Sigurliðið í umspilinu mun spila í riðli í Mexíkó á HM, með heimamönnum, Suður-Afríku og Suður-Kóreu.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands HM 2026 í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Fleiri fréttir Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Sjá meira