Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 22:30 Markverðirnir Manuel Neuer, Sven Ulreich og Jonas Urbig eru allir meiddir hjá Bayern München. getty/F. Noever Þýskalandsmeistarar Bayern München eru í miklum vandræðum með markvarðastöðuna hjá sér fyrir leikinn gegn Atalanta í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn kemur.
Hvorki fleiri né færri en fjórir markverðir Bayern eru á meiðslalistanum. Manuel Neuer er meiddur á kálfa og búist er við að hann verði frá keppni þar til eftir landsleikjahléið. Neuer fór af velli í hálfleik í 4-1 sigrinum á Borussia Mönchengladbach um síðustu helgi. Jonas Urbig kom inn á fyrir Neuer og spilaði seinni hálfleikinn gegn Gladbach. Urbig stóð einnig milli stanganna í leiknum gegn Atalanta á þriðjudaginn. Bayern vann 1-6 sigur en Urbig fékk heilahristing undir lok leiks. Sven Ulreich var kallaður til fyrir leikinn gegn Bayer Leverkusen í gær en varð fyrir meiðslum og verður ekki með gegn Atalanta á miðvikudaginn. Til að bæta gráu ofan á svart hefur markvörður U-19 ára liðs Bayern, Leon Klanac, verið meiddur frá því í desember. Hinn sextán ára Leonard Prescott verður því væntanlega í marki Bayern gegn Atalanta. Hann var á bekknum gegn Leverkusen og Atalanta. Annar kostur er hinn nítján ára Jannis Bärtl sem leikur með varaliði Bayern og hefur tvívegis verið á varamannabekk liðsins í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Sem betur fer fyrir Bayern er liðið með gott forskot eftir fyrri leikinn gegn Atalanta og mikið þarf að ganga á til að Bæjarar komist ekki í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Bayern gerði 1-1 jafntefli við Leverkusen í gær og er með níu stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.
Þýski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira