Endurskoða skipurit áður en ákvörðun um varaslökkviliðsstjóra verður tekin Kjartan Kjartansson skrifar 27. febrúar 2026 07:33 Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, er nýr formaður stjórnar Brunavarna Suðurnesja. Vísir Skipurit Brunavarna Suðurnesja verður tekið til endurskoðunar áður en ákvörðun um auglýsingu á starfi varaslökkviliðsstjóra verður tekin. Stjórn slökkviliðsins telur ráðningu slökkviliðsstjóra sem varaslökkviliðsstjórinn kvartaði undan hafa verið faglega.
Starfslokasamningur var gerður við Sigurð Skarphéðinsson eftir sextán ára starf sem varaslökkviliðsstjóri í byrjun febrúar. Samningurinn var gerður eftir að umboðsmaður Alþingis lauk meðferð sinni á kvörtun Sigurðar vegna ráðningar Eyþórs Rúnars Þórarinssonar, slökkviliðsstjóra. Vísir óskaði eftir starfslokasamningnum en hefur ekki fengið hann afhentan enn sem komið er. Guðný Birna Guðmundsdóttir, nýr formaður stjórnar Brunavarna Suðurnesja og forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sagði í skriflegu svari við fyrirspurninni að viðkvæmar persónuupplýsingar væru í samningnum og Sigurður þyrfti að gefa leyfi fyrir því að gera hann opinberan. Sigurður lagði gegn því að samingurinn yrði opinberaður.* Sigurði kvartaði til umboðsmanns eftir að Eyþór Rúnar var ráðinn slökkviliðsstjóri fram yfir hann árið 2024. Taldi hann ákvörðunin hafa byggt á ómálefnalegum sjónarmiðum og að stjórnin hefði litið til fjölskyldutengsla Eyþórs Rúnars. Hann er tengdasonur Jóns Guðlaugssonar sem hann tók við af sem slökkviliðsstjóri. Umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að kanna málið frekar. Slökkviliðsstjóri útskýrt ákvörðunina vel í fjölmiðlum Guðný Birna sagði í skriflega svari sínu að Eyþór Rúnar slökkviliðsstjóri hefði upplýst stjórnina um starfslokasamninginn símleiðis í byrjun mánaðar þar sem stjórnarfundur hefði ekki verið á dagskrá fyrr en 19. febrúar. Í samtali við Vísi segir hún að slökkviliðsstjórinn sjái um mannauðsmál hjá slökkviliðinu og hafi umboð til að gera starfslokasamning af þessu tagi. Samningurinn þurfti ekki samþykki stjórnarinnar. Segir hún slökkviliðsstjóra hafa skýrt ákvörðunina vel í fjölmiðlum. Eyþór Rúnar sagði Vísi 11. febrúar að starfslok Sigurðar hefðu verið sameiginlega ákvörðun sem tekin hefði verið í sátt og samlyndi „Nei, það komu í raun bara viðræður. Þetta kom frá okkur, þetta kom frá honum. Við fundum bara svona sameiginlegan grundvöll um þetta. Þetta er ekki beint frá honum alveg, þetta var bara svona í umræðunni á milli. Ég er náttúrulega bara nýtekinn við, það er bara eitt og hálft ár síðan,“ sagði slökkviliðsstjórinn um tilefni starfslokanna. Sveitarfélögunum „fullkunnugt“ um kvörtunina Fundargerðir stjórnar Brunavarna Suðurnesja hafa ekki verið birtar á vefsíðu þeirra frá því áður en gengið var frá ráðningu Eyþórs Rúnar slökkviliðsstjóra árið 2024. Í þeim fundargerðum stjórnarinnar sem má finna í gegnum fundargerðir Reykjanesbæjar er ekki að finna upplýsingar um kvörtun Sigurðar til umboðsmanns Alþingis. Spurð að því hvers vegna kvörtunar Sigurðar hefði ekki verið getið í fundargerðum stjórnarinnar segir Guðný Birna að hvert sveitarfélag sem stendur að byggðasamlaginu eigi sinn fulltrúa í stjórn og því hafi þeim átt að vera fullkunnugt um kvörtunina. Brunarvarnir Suðurnesja eru byggðasamlag Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Voga.Vísir/Vilhelm „Þannig að það eru nú hæg heimatökin að upplýsa sín bæjarráð og sínar bæjarstjórnir um það sem stjórnarmenn,“ segir hún í samtali við Vísi. Auk Reykjanesbæjar standa Suðurnesjabær og Vogar að byggðasamlaginu um slökkviliðið. Óumdeilanlegt að ráðning hafi verið fagleg Varðandi ráðningu Eyþórs Rúnars sem Sigurður kvartaði undan til umboðsmanns segir Guðný Birna í skriflegu svari sínu að umboðsmaður hafi stutt ráðninguna og því sé óumdeilt að stjórnin hafi staðið faglega að ráðningarferlinu. „Stjórn BS unar [svo] vel við þeirri niðurstöðu og telur stjórn ekki þörf á sérstakri umræðu um málið né afgreiðslu enda er álitið lagt fram og það er óumdeilanlegt að ráðning slökkviliðsstjóra var fagleg,“ segir í svari stjórnarformannsins. Umboðsmaður sendi stjórn Brunavarna ábendingar um að hún hefði átt að halda betur utan um gögn úr ráðningarferlinu. Þannig hefðu aðeins verið skráðar niður munnlegar upplýsingar sem komu fram í viðtali við Eyþór en ekki aðra umsækjendur um stöðuna. Þurfi að uppfæra samstarfið Varðandi mögulegar breytingar á skipuriti Brunavarna Suðurnesja segir Guðný Birna að byggðasamlagið sé frá 2011 og að ýmislegt þurfi að uppfæra. Nýta eigi þennan tímapunkt til þess að fara yfir skipuritið. Ákvörðun um hvort að staða varaslökkviliðsstjórans verði auglýst verði tekin að þeirri yfirferð lokinni. *Fréttin var uppfærð 27. febrúar 2026 eftir að svar fékkst um að fyrrverandi varaslökkviliðsstjóri hafnaði að leyfa birtingu starfslokasamningsins.
Slökkvilið Reykjanesbær Vogar Suðurnesjabær Sveitarstjórnarmál Mannauðsmál Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira