Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Magnús Jochum Pálsson og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa 18. febrúar 2026 16:21 Egilshöll fylltist þegar Röskun var frumsýnd í gærkvöldi. Valli Gísla Sálfræðitryllirinn Röskun í leikstjórn Braga Þórs Hinrikssonar var frumsýndur fyrir tveimur fullum sölu í Egilshöll í gærkvöldi. Þuríður Blær og Unnur Birna Backman fara með aðalhlutverk í myndinni.
Hjónin Bragi Þór og Helga Arnardóttir framleiða myndina ásamt Valdimari Kúld. Helga skrifaði jafnframt handrit myndarinnar upp úr spennusögunni Röskun eftir Íris Ösp Ingjaldsdóttur. Helga, Bragi og Valdimar fóru með tölu fyrir frumsýningu myndarinnar.Valli Gísla Röskun segir frá lögfræðingnum Heru, sem er leikin af Þuríði Blævi Jóhannsdóttur, sem er enn að jafna sig á hræðilegri nauðgun þegar hún flytur inn í kjallaraíbúð í gamla vesturbænum. Fljótlega kemst hún að því að nokkrum árum fyrr hafði unga móðirin Stella, leikin af Unni Birni Backman, verið myrt þar í köldu blóði. Undarlegir atburðir gerast í íbúðinni og Hera veit ekki hvort hún sé farin að missa vitið, það sé reimt í íbúðinni eða draugar fortíðar ásæki hana. Helga Arnardóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson, Lolla, Unnur Birna Backman, Arnar Dan og Bragi Þór.Valli Gísla Auk Þuríðar Blævar og Unnar Birnu fara þau Kolbeinn Arnbjörnsson, Arnar Dan Kristjánsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Damon Younger, Gunnar Hansson, Halldóra Rut Baldursdóttir, Aldís Amah Hamilton og Þóra Karítas með hlutverk í myndinni. Fjölmennt var á frumsýningunni þegar Röskun var sýnd í tveimur stærstu sölum Egilshallar. Myndin fer síðan í almennar sýningar á fimmtudaginn 19. febrúar. Bragi Þór og Helga sátt með vel heppnaða frumsýningu.Valli Gísla Glæsiparið Sigga Soffía og Arnar Dan en hann fer með hlutverk í myndinni.Valli Gísla Klara Einars söngkona mætti með góðri vinkonu.Valli Gísla Þrír læknar! Arna Dögg Einarsdóttir með dóttur sinni, Ragnheiði Huldu og systur, Huldu Einars.Valli Gísla Salóme Þorkels, Salka Sól og Eygló Gísla létu sig ekki vanta.Valli Gísla Tónlistarsnillingar létu sig ekki vanta.Valli Gísla Skarðhéðinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sagafilm, með Pálma Guðmundssyni sem lauk störfum sem forstöðumaður þróunarmála hjá Árvakri í fyrra.Valli Gísla Bragi Þór leikstjóri og Helga Arnar handritshöfundur og framleiðandi í flottum félagsskap.Valli Gísla Glæsilegir þrír.Valli Gísla Þessi glæsilegi hópur naut þess að sjá afraksturinn!Valli Gísla Þuríður Blær fer með stórleik í myndinni.Valli Gísla Halldóra Rut fer með hlutverk í myndinni.Valli Gísla Damon Younger ásamt vinum.Valli Gísla Glæsileg tvö í landsliðsklassa.Valli Gísla Bros og bíó!Valli Gísla Glæsileg þrjú.Valli Gísla
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Samkvæmislífið Mest lesið Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Sanna hét áður Díana Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Lífið Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Lífið Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira