Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 17:15 Marco Bizot var rekinn af velli í fyrri hálfleik og það skipti sköpum í leiknum. Getty/Neal Simpson Newcastle sló Aston Villa út í 32-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag, þrátt fyrir að lenda undir, með 3-1 sigri í Birmingham. Tammy Abraham kom Villa yfir á 14. mínútu en var reyndar rangstæður þegar hann skoraði. Engin myndbandsdómgæsla er hins vegar fyrr en í 16-liða úrslitum keppninnar og því fékk markið að standa. Útlitið versnaði hins vegar til muna fyrir Villa rétt fyrir hálfleik, þegar markvörðurinn Marco Bizot óð nánast fram að miðju í von um að stöðva skyndisókn, braut af sér og fékk réttilega rautt spjald. Newcastle-menn nýttu sér liðsmuninn vel í seinni hálfleik og skoraði Sandro Tonalo tvö mörk, á 63. og 76. mínútu, og var það seinna með sérstaklega góðu skoti utan teigs. Afmælisbarnið Nick Woltemade nýtti sér svo varnarmistök í lokin til að innsigla sigurinn. Enski boltinn Aston Villa FC Newcastle United